Heima er bezt - 01.05.1961, Síða 32

Heima er bezt - 01.05.1961, Síða 32
„Þú værir ánægð með það að hún hlypi til hans aftur og léti þig hafa stráldnn,“ sagði Steinn gamli. „Eins og sagt er að hann hafi verið við hana,“ sagði Asgeir. „Þó út yfir tæki í sumar. Þvílíkur þrældómur og þvílík viðbúð. Aldrei talað við hana almennilegt ósnúið orð. Það er svo sem ekki undarlegt þó hún sé með hugann hjá honum.“ „Það er nú svona þar sem ástin og tryggðin sitja að völdum í hug og hjarta, Ásgeir minn, það áttu eftir að reyna,“ sagði móðir hans. Feðgarnir skelltu báðir í ^óm við þessari spaklegu athugasemd húsfreyju. Ásdís fór út í fjós og sat þar sár og reið og fór ekki inn fyrr en bróðir hennar var farinn. „Það er búið að spilla honum svo við mig og Kristján að hann getur varla talað við mig fyrir merkilegheitum. Kannske hann sé að hugsa um að ná í Rósu og sé svona drjúgur yfir sinni hamingju,“ sagði hún. „Hann er nú líklega skynsamari en það, að láta sér detta það í hug,“ sagði faðir hennar. Þetta var sjálfsagt sneið til hennar. Hann hafði alltaf verið í eftirlæti hjá föður sínum. í þorrabyrjun gerði hlákublota. Eftir hann kom ágætt gangfæri. Þá lagði Ásdís af stað út í kaupstað. Það var margt, sein þurfti að kaupa og gaman að sjá útsveitina. Þar var hugurinn oft. Hana sárlangaði til að koma við á Hofi, en hætti við það. Hún átti þar víst litlum vin- sældum að fagna. Heldur ætlaði hún að líta inn til Stínu á Bala, hvíla sig og fá kaffisopa. Þar fengi hún líka allar fréttir, sem fáanlegar væru. Stína gamla var lík sjálfri sér, hálfóhreinleg til fara og krímug í andliti, en hún tók henni hlýlega og bauð henni gistingu. Varla færi hún að fara fram eftir alla leið í þessari hálku. „Ég var nú svo sem hálfpartinn að hugsa um að fara heim að Hofi og heilsa mæðgunum, því einu sinni þekktist maður nú, en svo hætti ég við það. Bróðir minn er orðinn svo dryssugur síðan hann kom þangað, að hann vill helzt ekki tala við mig. Þá er líklegast ekki von á því að vandalaust fólk sé kumpánlegt við mann,“ sagði Ásdís, þegar hún var sezt niður. „Það var nú alveg rétt af þér að fara ekki að þvælast þangað heim. Ekki vantar fínheitin og praktina á bæn- um þeim, eins og fyrr. Og svo er nú-presturinn orð- inn þar heimilismaður. Ekki óprýðir hann heimilið, þetta blessað ljós.“ Ásdís skellihló. „Kannske Ásgeir hafi ætlað sér Rósu og sé svona argur yfir því að missa hana. Ég var svo sem búin að tala um það við hann,“ sagði hún. „Svo mikið flón er hann ekki. Hvað hefði hann haft að gera með svo fallega og fína konu. Það búast allir við því að þau verði hjón hún og blessaður prestur- inn. Hún verður falleg prestskona. Ég hef það nú til enn þá að líta í bolla ef ég sýp kaffi í maskínuhúsinu. Þú kannast við mig,“ sagði Stína og brosti drýginda- legu brosi. „Það er vel líklegt, að ég þekki eitthvað til þín. Þú lítur nú líklega í bollann minn þegar þú ert búin að hita kaffið. Það er orðið langt síðan að maður hefur getað hlegið að svoleiðis,“ sagði Ásdís. „Það er nú líklegt,“ sagði spákonan og flýtti sér að láta sjóða á katlinum. Nu máttu ekki láta mjólk í kaff- ið. Þá sést ekki það sem þar birtist. Þar næst varð að snúa bollanum þrisvar yfir höfðinu á sér og svo varð að láta hann þorna. „Það er verst hvað hann verður lengi að þorna,“ sagði Ásdís. „Ó, láttu þér bara skaplega. Það er víst ekki svo mikið að sjá þar, býst ég við,“ sagði Stína. Svo fór hún að velta bollanum á ýmsa vegu með miklum spek- ingssvip. „Þú mátt vera vel ánægð þar sem þú ert. Lifir eins og blóm í eggi í foreldrahúsunum. Það er ólíkt eða bollinn þinn í fyrravetur. Reyndu bara að gleyma Kristjáni Hartmannssyni og öllum hans líðileg- heitum. Hann er ekki þess verður að þú hugsir hlýlega til hans.“ „Því dettur þér í hug að ég hugsi um hann?“ sagði Ásdís. „Það er líklega eins og það hefur verið með ykkur þessar ástríku konur, þið gleymið og fyrirgefið um leið og þeir eru þagnaðir,“ sagði Stína. „Leggðu spilin, þar sérðu meira,“ sagði Ásdís. „Já, hvað er nú að heyra. Ég býst við að þau séu týnd. Það eru ekki margir, sem trúa mér lengur. Helzt ungar stelpur, sem langar til að giftast.“ Spilin fundust samt, tárhrein innan í fínu bréfi, niðri í kommóðuskúffu. Nú varð að hætta öllu skvaldri og gaspri. Það var grafarþögn í baðstofukrýlinu með- an spákonan raðaði spilunum á borðið. Ásdís horfði á með vQt augun af eftirvæntingu. Hún trúði á Stínu. Hún hafði sagt henni svo margt, sem fram hafði kom- ið. En nú leit út fyrir að gátan væri talsvert torráðin. Spákonan velti vöngum og rýndi í spilin, án þess að tala orð. „Hvað sérðu, Stína mín? Góða segðu mér eitthvað,“ sagði Ásdís með barnslegri ákefð. „Þú verður þarna áfram. Þér líður vel, en alltaf er hugurinn á Bakkanum. Þar eru slæmar ástæður og eiga þó líklega eftir að versna. Nú er bezt að athuga þetta betur. Ójá, þarna kemur nýtt tímabil. Eitthvað ferðu að skipta þér af því. Það er heldur ekki hægt annað að segja en það sé gustuk, en bara að það verði endur- goldið. Þarna eru þau orðin ein gömlu skörin.“ „Hvað er orðið af Kristjáni?“ „Hann er farinn í eitthvert ferðalag, líklega til Reykjavíkur, en vertu nú ekki að trufla mig. Ég er í öðrum heimi. Hann hefur verið lánsamur að fá Val- borgu. Hún er dygg kona og hugsar vel um heimilið. Hún er nú ekkert unglamb, heldur ekki ég.“ „Hún juðar þetta í bænum. Sjaldan kom hún nú út,“ tautaði Ásdís. „Það var nóg að hugsa um innanbæjar,“ sagði Stína og raðaði spilunum fyrir framan Ásdísi. „Ójá, þama 176 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.