Heima er bezt - 01.01.1962, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.01.1962, Qupperneq 6
ÁRAMÓT Enn einu sinni stöndum vér á áramótum, hin ófrá- víkjanlega endurtekning í lífinu, sem þó er ailtaf jafn ný. Vér horfum aftur til hins liðna árs með ljósi þess og skuggum, en það sem fram undan er, er hulið sjón- um vorum að fullu. Vér getum gizkað á, óskað og vonað, en allt er samt falið að tjaldabaki. Og ef til vill er það ein mesta gæfa vor mannanna, hversu skammt vér sjáum fram undan oss. Við hver áramót skjóta ýmsar minningar um at- burði liðins árs upp kollinum í huga vorum, er vér horfum um öxl af sjónarhóli tímaskiptanna. Hver og einn á sínar minningar, ljúfar eða leiðar, sælar eða sár- ar. Og þegar þær renna fyrir hugskotssjónir vorar líkt og kvikmynd á tjaldi, hverfa þær saman í eina heild, eins konar samhljóm, sem gefur liðna árinu svip, mild- an og bjartan eða harðan og myrkan eftir því, hvað markað hefur dýpst för í huga vorn. En vissulega væri það öllum mönnum heillaráð að lifa eftir reglu Indriða Einarssonar skálds, „að safna sólskinsblettunum í líf- inu“, en láta þoku- og hríðardagana hverfa í djúp gleymskunnar, jafnótt og þeir eru liðnir hjá, eða eins og Þorsteinn Erlingsson komst að orði, setjast hjá sum- argleðinni, „þegar vetrarþokan grá“ leggur á mann fjötra sína. Vafalítið er, að lífið allt yrði fegurra og léttara, ef vér fylgdum þessu heilræði. Hver björt hugsun skapar um sig aðra bjartari. Þær lýsa umhverf- ið og fylla það góðleik og mildi. Frá þeim stafar hlýju og ljósi, ekki einungis á oss sjálf, heldur einnig út á við. Náírrenni vort fær notið einhvers af sólskinsblettum vorum. Sólin býr ekki ein að ljósi sínu og hita. Hún eyðir því í hófleysu út í geiminn umhverfis sig. Og ofurlítið brot af geislaflóði hennar „kveikir líf úr steini“ vorrar örsmáu jarðar. Og þótt oss þyki stund- um lífið umhverfis oss næsta hversdagslegt, af því að vér höfum það sífellt fyrir augunum, er það samt æðsta dásemdin sem vér þekkjum, furðulegasta undrið og mesta fegurðin. Það sannfærumst vér bezt um, ef vér ölum upp í oss lotningu gagnvart lífinu í hverri mynd, sem það birtist, jafnt hinni smæstu og óbrotnustu og hinni stærstu og fjölþættustu. Og skyldi því ekki geta verið eitthvað líkt farið með oss menn og hina miklu sól. Ef vér söfnum sólskinsblettum h'fsins og leitumst við að gefa þeim meiri hlýju, þá fái eitthvert brot af þeim orkað svo á umhverfi vort, að það njóti góðs af, og einhverjir samferðamannanna taki að gera hið sama. Svo trúa að minnsta kosti dulfróðir menn, að hver hugsun sé eins og útvarpsbylgjur, sem komi fram, oft víðs fjarri þeim stað, er vér dveljumst á, líkt og bylgj- ur útvarpsstöðvanna eru gripnar af viðtækjum í óra- fjarlægð. Ef svo væri, þá er það í senn alvöruefni og áminning um að vanda eigi síður hugsun sína en at- hafnir. En hverfum nú frá oss sjálfum. Arið liðna hef- ur skráð minningu sína á spjöld sögunnar. Hér er ekki færi að rita annál liðins árs né rifja upp atburðaröð þess, aðeins drepa á örfátt, sem markað hefur spor í þjóðlífi voru. Hér meðal vor hafa orðið harðvítug átök um skiptingu vinnuarðsins. Langvinn verkföll með allri þeirri ógæfu sem því fylgir þegar hjól þjóðarvélarinn- ar stöðvast, að meira eða minna leyti, þrátefli, óvild og jafnvel hatur, sem af þeim atgerðum skapast, og að lokum lausn, sem allir eru óánægðir með og færir þjóð- arbúinu ný vandamál án þess að leysa þann hnút, sem riðinn var í upphafi. Það gegnir raunar nokkurri furðu um svo fámenna og vel mennta þjóð og íslendinga að oss skuli ekki hafa lærzt að leysa mál vor á friðsamari hátt. Sennilega er engin þjóð frábitnari vopnavaldi og ofbeldisaðgerðum en íslendingar, en samt heyja þeir illvígari deilur í ræðu og riti en flestir aðrir og eru flestum ósveigjanlegri, til að rétta fram höndina á hálfa leið við samningsborðið, þegar um hagsmunadeilur er að ræða. Samningslipurð þykir ódyggð og samningar oftsinnis stimplaðir sem svik. Allt eða ekkert, virðist vera eina boðorðið, og hefur verið það lengi. Á síðastliðnu hausti var haldið hátíðlegt hálfrar aldar afmæli Háskóla íslands með viðeigandi pomp og pragt. En skyldu menn yfirleitt hafa gert sér þá ljóst, hvílíkt átak það var þjóðinni að stofna háskóla fyrir 50 árum. Sá stórhugur og framsýni, sem þar var að verki er einn af Ijósblettunum í sögu þessarar aldar, þótt mönnum sjáist oft yfir það og festi hugann heldur við atburði, sem gerðust með meiri hávaða og bægslagangi. F.n að hátíðahöldunum loknum verður oss ósjálfrátt að spyrja, á þjóðin nú, að liðnum 50 árum, sama stórhuginn, sömu trúna á framtíðina og gildi menningar vorrar? Stund- um hvarflar að manni, að efast um það, þrátt fyrir all- ar framfarirnar og aukna velmegun á öllum sviðum. Skyggir Skuld fyrir sjón segir síra Matthías. Fram- undan oss er aðeins úlfgrár þokuveggurinn. í þokunni sjáum vér óraunhæfar skrípamyndir. Líkt fer og um flestar spásagnir vorar um framtíðina. Eitt er þó víst. Margt er nú uggvænlegt í heiminum. Andrúmsloftið er mengað helryki Rússanna, og vekur það mönnum meiri ugg en flest annað, og þykjast eygja í því vísinn að 9 Heitna er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.