Heima er bezt - 01.01.1962, Side 9

Heima er bezt - 01.01.1962, Side 9
sagði, og frændi minn lítill af hinu búinu var með mér. Við vorum í ró og næði að leika okkur, því að okkur datt ekki í hug að gæta þyrfti vatnsins, það var lagt, og þar átti engin hætta að vera fyrir féð. En svo sjá- um við allt í einu, að nokkrar kindur eru komnar út á ísinn á vatninu, og þá fóru þær að detta niður, svo að okkur leizt ekki á blikuna. Pabbi var á sjó og bróðir hans, bara kvenfólk og krakkar heima. Mér varð það fyrst fyrir að hlaupa og reyna að komast fyrir kind- urnar, en sendi strakinn heim og skipaði honum að sækja hjálp, þó ég vissi ekki, hvers konar hjálp það ætti að vera. Ég hljóp út á ísinn og ætlaði víst að bjarga kindun- um, en skall þa sjalf ofan í eina vökina og lenti hjá gríðarlega stórum hrút og varð dauðhrædd. Ég fór á bola kaf, en skaut bratt upp og greip til sundsins, sem ég hafði svolítið lært 9 ára gömul, og náði strax í skörina, en hrútsi var jafnhræddur við mig og ég við hann. Við vorum sitt hvorum megin í vökinni. Svo komst ég upp úr fljótlega og hljóp að næstu vök, og þar var annar hrutur, þetta voru bara hrútar, þeir voru vitlausastir, það hefði engin rolla farið að asnast þetta, og ég náði einhvers staðar í hann, og það skipti engum togum, ég fór niður til hans líka, og svo komst ég þar upp úr aftur, og þetta gekk allt eins og í sögu, ýmist datt ég ofan í eða skreið upp úr. Þegar ég svo var í þriðju vökinni, sá ég þær vera að koma, mömmu mína, mágkonu pabba og eldri systur, en þar fann ég botn með tánum og öskraði til þeirra, að ég væri í engri hættu. Þær komu nú með reipi og hrífu, og ég skipaði þeim að koma til min. Áður en við vissum af, vorum við allar í vökinni. Mágkona pabba var lítil og fór á bóla kaf, en við hinar naðum til botns og komum henni og hrútnum upp úr, hvernig sem það skeði, ég veit það ekki almennilega, og svo bröltum við upp á eftir, og hrúturinn launaði lífgjöfina með því að reyna að stanga okkur a skörinni. En ekki varð okkur meint af volk- inu. Hinir hrútarnir drukknuðu, því að það var svo djúpt þar, að við höfðum engin tiltök að bjarga þeim. Að sjá þá drukkna var ömurlegt. Þeir syntu alltaf hring eftir hring og jörmuðu. Það er líklega þess vegna, sem ég man þetta svona vel. Svo þegar ég kom heim, þá varð ég fyrst hrædd, alveg ofsalega hrædd. Þá fór ég að hugsa um, að ég hefði getað drukknað, og stund- um dreymir mig, að vatnið sé að skella saman yfir hausnum á mér, og það er heldur ónotalegt, þegar það skellur saman. Það var reyndar nóg af ævintýrum, þegar maður var krakki. Að ganga a rekann, það var alltaf ævintýri, þó maður fyndi ekki nema eina flösku. En á stríðsárunum rak margt og misjafnt, mest tundurdufl og svoleiðis dot, stundum jafnvel dauða menn, og það var ekkert gaman að ganga á rekann þá. Tundurduflin, ég var alltaf svo hrædd við þau. — Dauða menn, sagðirðu. — Já, þá rak marga á Ströndum, en aðeins einn heima. Það voru Russar. Sagt var, að rússnesku skipi hefði verið sökkt úti fyrir Vestfjörðum. Svo hirtu Bretar líkin. Þeir voru víst á Drangsnesi. Okkur létu þeir í friði, ég sá aldrei hermann nema þegar ég var á ísafirði einn vetur. Og þó. Þeir komu cinu"sinni á her- skipi inn a vikina og sottu þýzkan mann, sem var gift- ur konu a næsta bæ. Það var leiðinlegur dagur. Þau voru fyrir stuttu gift, áttu eina unga dóttur. Þau hjuggu a ísafirði, en byggðu lítið hús í víkinni heima og voru þar á sumrin. Til vinstri: Séð inn i Kaldbaksdal frá Kleifum. — Til hægri: Róið inn Kaldbaksvik. Þokukúfur á Kaldbakshorni.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.