Heima er bezt - 01.01.1962, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.01.1962, Qupperneq 23
ar nokkuð þekktur sem ágætt ljóðskáld, af kvæðum, sem birzt höfðu eftir hann í blöðum og tímaritum. Veður var ágætt. Aðeins Ijúfur vestan andvari, svo að lítið eða ekki þurfti að róa undir seglum, en ágætt næði til að spjalla saman. Sagðist Gunnar aldrei geta gleymt þeirri sjón, er þessi unga kempa sat aftur í bátnum hjá þeim, er stýrði, en gamanyrðin og ljóðin léku honum á vörum. Þessir bændur gleymdu aldrei hinum unga sýslu- manni eftir þessa ánægjulegu sjóferð. Og það var Gunnari Þórðarsyni ekkert launungarmál, að þessir bændur í bátnum sáu í hinum unga sýslumanni tilvon- andi forystumann þjóðarinnar. Var Jón Sigurðsson þá látinn fyrir fáum árum. Var þar skarð fyrir skildi, sem vandfyllt var. Hannes Hafstein var ekki sýslumaður í Dalasýslu, nema nokkra mánuði, og gerðist málafærslumaður við Landsyfirréttinn. Söknuðu hans allir, er hann fór úr Dölum.-------- Sr. Árni Þórarinsson, prestur í Miklaholtsprestakalli, var samtímis Hannesi Hafstein í skóla. Sr. Árni var flestum mönnum minnugri og sagði vel frá. Hann var aðeins eldri, en tók þó stúdentspróf seinna. En Hannes Hafstein lauk stúdentsprófi 19 ára. — Þegar þeir kynnt- ust fyrst í Lærða skólanum, var Hannes Hafstein 17 ára en sr. Árni 18 ára. Var Hannes Hafstein þá þegar mikið glæsimenni í útliti og geysilega hraustur eftir aldri. Þá var lækurinn, sem nú felur sig undir Lækjar- götunni, merkileg landamæri milli Vesturbæjar og Aust- urbæjar. — Voru þá oft átök og margs konar glettingar milli Vesturbæinga og Austurbæinga. Kom stundum til allsnarpra bardaga. Fyrir kom það, að leikurinn harðnaði verulega, að virðulegir nemendur Lærða skól- ans, en það var Menntaskólinn nefndur þá, tóku þátt f bardaganum. Mér er nær að halda, að þeir sr. Árni og Hannes Hafstein hafi báðir talizt til Vesturbæjar, en hvað sem því leið, var sr. Árna það minnisstætt að sá flokkurinn, sem hafði Hannes Hafstein með sér, ef hann annars tók þátt í bardaganum, var öruggur um sigur. Skipulagði hann bardagann þannig og gekk svo hart fram í sókn, að allt varð undan að láta. Var það ekki fyrir nein smámenni að koma nærri foringjanum, Hannesi Hafstein, í slíkum bardaga. — Reyndist hann sigursæll þar eins og síðar á ævinni í stjórnmálabar- áttunni. Komu þarna snemma í Ijós frábærir forystu hæfileikar hans. — Jafnaldrar hans, og ekki síður þeir, sem miklu eldri voru, hrifust af glæsimennsku hans og viðurkenndu hans sterku foringjahæfileika. — Marg- ir af þessum skólabræðrum hans urðu síðar á ævinni hans traustustu fygismenn. Eina sögu sagði sr. Árni mér, sem hafði átt að gerast á fyrstu ráðherraárum Hannesar Hafstein. Hann sat þá konungsveizlu í Kaupmannahöfn. Var þar margt fyrirmanna frá Norðurlöndum og víðar að, — sendi- herrar og konungborið fólk. Þar á meðal rússnesk prinsessa, ung og fögur. Það varð til tíðinda í veizl- unni, að hin unga, fagra prinsessa gat ekki dulið hrifn- ingu sína á hinu íslenzka glæsimenni, svo að öðrum háttsettum fyrirmönnum þótti nóg um. Fannst þeim þessi óþekkti ráðherra frá fátæku, fjarlægu landi, vekja fullmikla athygli kvenþjóðarinnar í veizlunni. Við þessu gátu hinir virðulegu menn ekkert gert. Konur láta ekki segja sér fyrir verkum í slíkum málum. Þær hika aldrei í vali sínu og velja og meta oftast rétt. Þegar ég var lítill drengur heima á Snorrastöðum, heyrði ég mikið um Hannes Hafstein rætt. Pabbi dáði hann mjög og fylgdi honum fast að málum. En það var ekki aðeins stjórnmálamaðurinn, sem fólkið dáðist að. Það var ekki síður skáldið, glæsimennið og hetjan. Eru mér í barnsminni umræður fullorðna fólksins um afrek Hannesar Hafstein, er hann lenti í átökum við enska landhelgisbrjótinn. En þá var ég rúmlega sex ára. En sú saga er þannig: í byrjun október árið 1899, hafði sami, enski togar- inn verið að veiðum inni á Dýrafirði í marga daga, langt fyrir innan landhelgislínuna. Þetta blöskraði sjó- mönnum við Dýrafjörð, og var það því tekið til bragðs að senda mann gagngert norður á ísafjörð og tilkynna þetta sýslumanni, en Hannes Hafstein var þar þá sýslu- maður. Hann brá skjótt við og fór með sendimanni vestur um heiðar til Dýrafjarðar, þá strax um nóttina. Hittir sýslumaður þannig á, að togarinn er enn á veið- um rétt framundan verzlunarstaðnum Haukadal. Sýslu- maður fær sér bát og rær út að togaranum við sjötta mann. Skipsmenn togarans tóku strax dólgslega á móti batnum, og er talið, að íslenzkur maður hafi verið á togaranum, sem hafi strax þekkt sýslumann, en þó var hann í kápu utan yfir enikennisbúningnum. — Veður var kalt og ylgja í sjó. Um leið og báturinn nálgaðist skipshliðina, þustu skipverjar með barefli út að borðstokknum. Rcvndu bátsverjar að ná í kaðal, sem hékk utan á skipinu, en það tókst ekki, og seig báturinn þá aftur með skipinu, en það var á hægri ferð. Um leið rakst hann á vírana, sem drógu vörpuna, og náðu menn sýslumanns þá taki á vírunum. Er togaramenn sáu það, urðu þeir trylltir af vonzku og reyndu að hrekja bátinn frá, með því að skjota að honum ár. En þegar það tilræði mistókst,, hljop einn skipverji að spilinu og linaði snögglega á dráttarvírunum, en við það lentu vírarnir niður í bát- inn og sökktu honum. Tveir af mönnum sýslumanns náðu strax taki á bátnum, þar sem hann maraði í hálfu kafi, en sýslumaður einn var syntur, og reyndi hann að koma hinum þremur mönnunum til hjálpar, sem ekki náðu taki á bátnum, en það varð honum ofurefli. Var sýslumaður sjálfur þá orðinn mjög þjakaður. Þessar aðfarir togaramanna höfðu sézt úr landi og voru þá í skyndi mannaðir tveir bátar, sem reru líf- róður út að togaranum. Þá fyrst, er togaramenn sáu vel mannaða bátana koma á fleygiferð, sýndu þeir yiðleitni til bjargar. Ekki settu þeir þá niður bát, en létu sér nægja að renna niður kaðli og kasta bjarghringum til mannanna, sem hengm í bátnum. Mönnunum tveimur tókst að ná í bjarg- Heima er bezt 19

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.