Heima er bezt - 01.01.1962, Page 34

Heima er bezt - 01.01.1962, Page 34
GUÐRtJN FRA LUNDI FERTUGASTI OC ÁTTUNDI HLUTI „Ég get svo sem trúað því að hún geri það ekki. Þetta eru allt bölvaðir hrokagikkir nú orðið. Það var öðru vísi. Hún má víst ekki heyra þetta tengdafólk Rósu nefnt á nafn, hef ég heyrt. Var víst aldrei hrifin af Kristjáni handa Rósu. Það var altalað að hún hefði viljað fá hann sjálf. Það hefur líklega verið ein sanna sagan,“ sagði Asdís og kastaði kveðju á gamla mann- inn. Hann vildi láta hana koma heim og gista, en það var ekki við það komandi. Hún varð að vera ein og gráta beiskum tárum yfir því að Kristján hefði farið heim að Hofi til að sjá Jón iitla og fá hann til að fylgja sér, en það yrði líklega seint sem hann virti son hennar svo mikið að nefna hann á nafn hvað þá meira. Veturinn leið tíðindalítið. Kristján skrifaði föður sín- um fyrir jólin. Hann var við barnakennslu í sveit. Það var heldur leiðinlegt að sitja yfir því, en allt var þó betra en ekkert. Á kærustuna minntist hann ekki einu orði. í lok bréfsins stóð þetta: „Ég býst við að koma norður í vor og fara að hokra á Grýtubakka. Ég get hvergi verið ánægður, nema helzt í Hofssókninni. Þú byggir engum af jörðinni þó einhver fari fram á það.“ „Það er nú bara svona,“ sagði Hartmann karlinn, þegar hann hafði lokið við að lesa bréfið. „Hann ráð- gerir að koma norður í vor og fara að búa hér.“ „Það er verst að vita það ekki,“ sagði Jói. „Því lík- lega getur hann ekld lofað okkur að vera hérna ef hann ætlar að fara að búa.“ „Ég fer ekki hvað sem þú gerir,“ sagði Óla. „Ég get orðið ráðskona hjá honum og þá höfum við skepnurn- ar á kaupinu mínu.“ „Já, einmitt það,“ sagði Hartmann. „Það væri ekki svo vitlaust hjá þér, Óla litla.“ Hann gaf henni horn- auga og sá að hún var æði blómleg á vangann. Það var víst ekki allt búið enn fyrir Kristjáni. Hann hafði alltaf grunað þetta síðan í haust eftir að hurðar- skömmin gat aldrei tollað opin. Þar kæmu ný vandræði með nýju vori. Daginn eftir settist hann niður og fór að skrifa syni sínum. Það varð langt mál. Þegar hann hafði lokið því lagði hann sig upp í rúm, því dagsbirtan var á þrotum. Þá var Óla allt í einu komin yfir hann, því þau voru tvö ein inni, og hún hvíslaði í eyra hans: „Ef þú ert að skrifa Kristjáni þá lofaðu mér að stinga fáeinum línum innan í umslagið." Honum varð ekki rétt vel við. „Náttúrlega skal ég gera það, en ég skil ekki hvað þú ætlar að skrifa hon- um. Þú trúlofuð Jóa og hann Svövu.“ „Það er ekkert um trúlofun, sem ég ætla að skrifa,“ sagði hún hálf ergileg. „Það er bara svona hinsegin.“ Lengra varð það ekki. Valborg gamla kom inn. En bréfinu var lokað um kvöldið og litli miðinn frá Ólu vandlega vafinn innan í aðalbréfið. Hún ætlaði sjálf að fara með það út í kaupstað þennan sama dag. Ungt kvenfólk hefur alltaf haft gaman af því að fara í kaup- stað. Hartmann gamli var hálfkvíðinn út af þessu öllu. Það leið svo ein vikan og mánuðurinn af öðrum og ekki kom bréf frá syni hans. En Óla kom einu sinni kaf- rjóð á vanga út í hlöðu til hans og skilaði kveðju frá Kristjáni til hans. „Ég fékk fáeinar línur frá honum. Hann segist koma norður unr sumarmálin.“ „Var það ekkert annað en kveðja?“ spurði Hart- mann. „Nei, það var ekkert annað. Hann kemur um sumar- málin.“ Þurfti hún að segja það tvisvar. Skárri var það roð- inn og ánægjan á andlitinu á veslings stúlkunni. Þær voru brokkgengar stúlkutetrin eins og fyrri. Hann heyrði það stundum að Jói var að nudda um það við hana, að það dygði ekki að láta það dragast svona að útvega sér samastað, fyrst karlinn þyrði ekkert að segja nema já og nei. Þó að Kristján hefði spaugað að því við hana í haust að vera ráðskona hjá sér, væri ekkert á það að treysta. En hún bjóst við að það mætti bíða sumarmálanna. Seinna höfðu þau ráðið sig í fyrra- vor. Það voru ekki svo margar skepnurnar að það væri víst alls staðar pláss fyrir þær. Ef Kristján færi að búa gætu þau bæði fengið vinnu hjá honum ef ekki yrðu þau kyrr. Gamla manninum leiddist að hlusta á þetta 50 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.