Heima er bezt - 01.01.1962, Side 36

Heima er bezt - 01.01.1962, Side 36
annan samastað, þó ég kunni hvergi við mig nema hér. En ég kann ekki við þessar ráðagerðir. Það er eitthvað óhreint við það allt saman.“ Ásgeir frá Giljum hafði verið sunnanlands þennan vetur, en Leifi hafði hirt féð á Hofi. Ásgeir hafði skrifað föður sínum það að hann kæmi norður með kærustu og ætlaði að setjast að hjá þeim. Það var langt frá því að þessi frétt gleddi gömlu hjónin. „Hvar svo sem átti hann að komast fyrir í baðstofukytrunni,“ sögðu mæðgurnar. „Það er nú bara svoleiðis ef hann fer að kássast hing- að er ég farin og hana nú. Ég þoli ekki að búa við hans merkilegheit ef ,hún‘ er þá álíka skemmtileg,“ sagði Ásdís. „En hvar skyldir þú geta komið þér fyrir með allar þær skepnur sem þú átt og drenginn,“ sagði faðir hennar. „Ég verð ekki í neinum vandræðum. Ég bý í félagi við Hartmann gamla. Það er ekki svo margt hjá hon- um. „Ég anza nú ekki svona löguðu. Kannske það yrði til þess að þú færir að daðra við hann,“ sagði Steinn gamli. Svo var ekki talað meira um það, en gömlu hjónin voru dauf í dálkinn næstu daga. Um fardagaleytið kom svo Ásgeir með sitt frúar- efni að Hofi. Þar stönzuðu þau. Maddama Karen sagð- ist ekki geta hugsað til þess að missa hann að öllu leyti. Hann réði sig þá þar í vorvinnu og um túnaslátt- inn eins og hann var vanur. Svo flutti hann farangur þeirra þangað og þau gistu þar um nóttina. Daginn eftir riðu þau fram að Giljum. Það var ekki hægt að segja annað en þeim væri vel tekið. En ekki fannst Ásdísi mikið koma til þessarar tilvonandi mág- konu sinnar. Ásgeir sagði föður sínum að þau væru búin að ráða sig á Hofi í vor- og sumarvinnu, eða þangað til taðan væri komin inn. Það var vanalegt. Svo kæmu þau hingað til að heyja handa sínum skepnum. Sig langaði til að fjölga. Guðfinna yrði svo hér í vet- ur. „Ég fer suður ef þið viljið hirða fyrir mig. Við hljótum að geta kúldazt einhvern veginn saman, en þröngt verður það.“ „Ég sé ekki að það sé hægt ef húsakynnin eru ekki önnur en þetta, sem ég sé hér,“ sagði Guðfinna. „Og svo eru peningshúsin rétt fyrir þær skepnur, sem hér eru núna. Ekki hætis hóti hægt að bæta þar við,“ sagði gamli bóndinn. „Þá er að byggja kofaanga,“ sagði Ásgeir stuttlega. „Ég er nú búinn að leggja þó nokkuð inn í þetta heimili þar sem allur gaddavírinn er og vinna mín bæði þá og oftar.“ „Ég vann líka við girðinguna og lagði til alla staur- ana og borgaði manninum sem lagði þá,“ sagði Ásdís. „Ég verð ekki þægur Ijár í þúfu ef þú ætlar að fara að troðast hingað inn, því þá verður ekki hjá því kom- izt að ég verði að hrökklast burtu. Ég á talsvert í bú- inu svo það rýmist ef ég fer, en það er ekki víst að allir verði ánægðir yfir því.“ Ásgeir geispaði ólundarlega. „En það er ekki svoleiðis að ég sé hrædd um að ég geti ekki komið mér fyrir með mínum skepnum. Fá mig sjálfsagt færri en vilja.“ „En sá gorgeir,“ sagði Ásgeir. „Það er ekki ólíklegt að þú grípir upp staði fyrir þig og krakkann. En lík- lega ætlar þú heldur að láta móður þinni hann eftir.“ „Það verður líldega þú, sem reynir að koma þínum krógum á hana þegar þeir koma í dagsljósið. En ég vona samt að foreldrum mínum finnist þau ekki hafa neinn skaða af því að hafa mig hérna,“ svaraði hún. „Nei, það er langt frá því að mér detti það í hug að það yrði að nokkru leyti betra fyrir mig að hún færi,“ sagði gamli maðurinn. „Ég efast um að ég gæti heyjað handa mínum skepnum ef hún væri ekki í samverki með mér. Svo mikill garmur er ég nú að verða.“ „Hann hjálpar þér nú líklega ef hann flytur hingað,“ greip Ásdís fram í. En varla þarftu að gera því skóna að þú getir þotið suður á land og látið hann hirða skepnurnar þínar. Nema konuefnið sé góð að hirða.“ „Ég fer nú líklega með honum,“ sagði hún, „því ég hef aldrei hirt skepnu á ævi minni.“ „Ég ætlaði ykkur að gera það,“ sagði Ásgeir. „En það eru engin húsakynni fyrir mig ef þið kom- ið. Ég fer til Hartmanns gamla á Bakka. Hann hefur alltaf getað virt vinnuna mína að verðleikum,“ sagði Ásdís. „Ég býst ekki við að hann ráði til sín fólk þar sem sonur hans ætlar að fara að búa þar og er búinn að ráða til sín hjú,“ hnussaði í Ásgeiri. „Nema þú viljir fara að bjóða honum þína þénustu enn einu sinni.“ Ásdís glápti á bróður sinn. Það gerðu líka allir í baðstofunni. „Mér þykir þú segja fréttir, sem við höf- um ekki heyrt hér, en þú nýkominn sunnan af landi. Maður er eins og álfur út úr hól hér í þessari dal- skoru,“ sagði hún. „Mig langar áreiðanlega ekki til að setjast hérna að þar sem aldrei kemur maður. Mér brygði áreiðanlega mikið við,“ sagði Guðfinna. „Hvaða vinnufólk er hann þá búin að ráða til sín?“ spurði Ásdís kafrjóð af áhuga. Hver á að verða ráðs- konan? og hver sagði þér þetta?“ „Leifi í Garði sagði mér þetta í fréttum í gær ásamt fleiru, sem við hefur borið í sveitinni í vetur. Ekki veit ég hvort það er satt eða ekki. Hann sagði að Jói frá Grund, sem þar hefur verið þetta ár, væri búinn að leigja honum allar sínar skepnur og konuna líka. Hún yrði ráðskona hjá honum, en hann vinnumaður eða kaupamaður. Svo fer Bogga þangað enn einu sinni. Meira get ég ekki sagt þér.“ Ásdís fhssaði. „Já, hvernig skyldi sá búskapur ganga. Mér sýndist Óla vera duglegust við að laga sig frammi fyrir speglinum. Mikill bölvaður asni er Kristján og hefur alltaf verið. Skyldi honum bregða við.“ „Ég segi það líka. Skyldi honum bregða nokkuð við 32 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.