Heima er bezt - 01.01.1962, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.01.1962, Blaðsíða 38
HEIMA_____________ BEZT BÓKAHILLAN Náttúra íslands. Reykjavík 1961. Almenna bókafélagið. í öllu því flóði bóka, sem árlega kemur út hér á landi, er at- hyglisvert, hversu fátt er um raunvísindi, og hve lítil skil landinu sjálfu og náttúru þess eru gerð. Það er því stórlega lofs- vert, hversu Almenna bókafélagið hefur farið myndarlega af stað í því efni á þessu ári, er það hefur sent frá sér tvær bækur um náttúru lands vors, hvora annarri betri, fyrst Hafiö eftir Unnstein Stefánsson og nú Ndttúru fslands, sem flytur fjórtán ritgerðir um mismunandi þætti í náttúru lands vors. Að uppruna eru þetta útvarpserindi, og því samin án beins samhengis sín á milli, og ber bókin þess nokkrar minjar. 1 ritgerðum þessum er yfirlit um það, sem menn nú vita sannast um jarðfræði landsins, veðurfar, sjóinn umhverfis landið, gróður þess og dýralíf í sjó og á landi. Enda þótt jarðfræði landsins sé hin merkilegasta og mikið til frásagna um hana, þykir mér þó, að lífið á sjó og landi verði nokkuð útundan á þessu þingi, þar sem einungis þrjú erindi fjalla um þá hluti. En ekki er um slíkt að sakast, heldur að geta hins, sem vel er gert. En öll eru erindin hin fróðlegustu, og gegnir furðu, hve miklu efni höfundar hafa getað gert skil í svo stuttu máli, og það á auðskilinn og læsilegan hátt. Hver, sem bók þessa les, verður að verulegu leyti fróður um náttúru þess lands sem elur oss og vér eigum afkomu vora undir, og ekki þætti mér ó- sennilegt, að þau kynnu að opna augu manna fyrir nauðsyn þess, að þekkja land vort og náttúru þess, til þess að þjóðfélag vort fái blómgazt. Ekki er ætlun mín að vega og meta einstök erindi eða gera athugasemdir við þau, en eins og vænta má, eru þau misjöfn að framsetningu. Bókin sem heild er stórmikill fengur öilum almenningi, og er vonandi, að fleiri slíkar mættu á eftir fara, þar sem einstökum efnisþáttum yrðu gerð fyllri skil, því að sannast að segja vekja öll erindin hungur i að vita meira, en slíkt er einkenni góðra fræðibóka. Ritskrárnar hefði ég kosið miklum mun fullkomnari, einkum um suma kafla bókarinnar. Forsetabókin. Reykjavík 1961. Menningarsjóður. Þetta er glæsileg myndabók um störf tveggja fyrstu forseta lýðveldisins íslenzka. Birgir Thorlacius hefur tekið hana saman og ritað inngangsorð og samið myndatexta. Verður eigi annað séð en að myndavalið hafi tekizt vel, og er þeim smekklega fyrir komið, og með þeim gefin svipmynd af lífi forsetanna. Eins og gefur að skilja hafa hinir fyrstu forsetar hlotið að móta starfs- hætti, og ef svo mætti að orði kveða, svip embættisins. Það er gæfa þjóðarinnar, að til þessa starfa völdust menn, sem slíkt kunnu öðrum betur og gæddir voru persónuleika til að fram- kvæma það. Bók þessi gefur að vísu ekki nema takmarkaða hug- mynd um það starf, en er engu að síður merkileg heimild og fagur minjagripur um samtíð vora og upphaf og fyrstu ár hins íslenzka forsetadæmis. Kristján Albertsson: Hannes Hafstein. Ævisaga. Rvík 1961. Almenna bókafélagið. Það er ekki vónum fyrr, að rituð sé ævisaga Hannesar Haf- steins, glæsilegasta íslendingsins á þessari öld og farsælasta stjórn- málaforingja vors síðan Jón Sigurðsson leið. Ævisögu þessa ritar Kristján Albertsson, og er vafasamt, hvort til þess hefði fengizt hæfari maður, fjölmenntaður, víðförull og í senn gæddur þekk- ingu og áhuga á skáldskap og stjórnmálum, en það varð ævisögu- ritari Hannesar Hafstein að vera. Er það og mála sannast, að ævi- saga þessi er ein hinna fremstu ævisagna, sem ritaðar hafa verið á íslenzku, og með meiri menningarblæ en of oft tíðkast, þegar vér ritum um forystumenn vora eða aðra. Söguhetjan stendur Iesandanum skýr fyrir hugarsjónum, og vér fylgjumst með Hann- esi í blíðu og stríðu, og skynjum alls staðar manninn að baki at- burðanna. Saga einstaklingsins og saga þjóðarinnar renna saman í tveimur straumum, sem hvorugur ber hinn ofurliði. Megin- atriðum eru gerð góð skil, en sagan ekki þyngd og þynnt með smá- atriðum. Samtíðarmennirnir koma fram einnig með kostum sín- um og göllum. Aðdragandi Heimastjórnarinnar er rakinn af mikilli nákvæmni og þekkingu, en ekki tel ég dóma höfundar um dr. Valtý sanngjarna. Þar hefur aðdáun hans á Hannesi villt honum sýn, eða ef til vill hefur allt moldrykið frá deilum þeirra ára varpað glýju í augu honum. Annars er erfitt að kveða upp fullnaðardóm yfir bókinni fyrr en hún er öll, en víst er um það, að seinni hlutans munu menn bíða með eftirvæntingu. Bamabækur frá Menningarsjóði. Menningarsjóður hefur nú í haust gefið út nokkrar barnabæk- ur, sem hiklaust má telja meðal úrvalsbóka á því sviði. Veiga- mestar eru þar Ævintýraleikir Ragnheiðar Jónsdóttur, en þetta er annað bindi þeirra. Flytur það fjóra leiki samda upp úr göml- um ævintýrum af miklum hagleik. Létt er yfir þeim öllum, og eru þeir sérlega vel til þess fallnir að láta unglinga spreyta leik- Iistarhæfileika sína á þeim. Nokkrar myndir eru í bókinni, en ekki fæ ég séð að þær séu til bóta. Bergsteinn Kristjánsson segir nokkrar dýrasögur í bókinni Æskan og dýrin. Þær eru af sönnum atburðum en vel stílfærðar. Hafa sögurnar bæði nokkurt menn- ingarsögulegt gildi um lifnaðarhætti, sem eru að týnast, en eink- um eru þær þó vel fallnar til þess að glæða skilning unglinga á lífi dýranna og kenna þeim að umgangast þau sem vini og lifandi verur með skynjan og tilfinningu. — Þá er komin út 3. útgáfa af ævintýrinu Kóngsdóttirin fagra eftir Bjarna M. Jónsson, ágætri og gamalkunnri bamasögu, sem er jafnfersk og þegar hún kom fyrst út fyrir um þrjátíu árum síðan. — Síðust þessara bóka en ekki sízt er Ævintýrabók Júlíusar Havsteens sýslumanns. Á titil- blaði segir, að hann hafi endursagt þessi ævintýri úr erlendum málum. Ekki ber að rengja það, en hins vegar eru þau með svo sterkum persónulegum blæ, að vel mætti kalla hann höfund þeirra. Ævintýrin eru sögðu af hreinni frásagnarsnilld og þeirri frásagnar- gleði, sem fátítt er. Og undarlega er þá farið hinum ungu les- endum, ef þeir kunna ekki að meta það, sem þeim er svo gótt gefið. En ævintýrin eru líka ánægjulestur fyrir fullorðna og eiga í því sammerkt við hinar beztu barnabókmenntir. En lestur þeirra hlýtur að vekja söknuð lesandans yfir því, að höfundi þeirra eða endursegjanda skyldi ekki gefast meira tóm til ritstarfa um æv- ina. St. Std. 34 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.