Heima er bezt - 01.05.1962, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.05.1962, Blaðsíða 21
„ÞaS var góð og óvænt gleði að fá þessa ágætisbók á íslenzku!" Kristmann Guðmundsson, Mbl. 21. ágúst 1959. VIGÐIR MEISTARAR eftir Edouard Schuré. lljörn Magnússon prófessor íslenzkaði. lfókin er 436 bls. í stóru broti. Bókhlöðuverð kr. 198.00 Til áskrifenda „Heima er bezt“ aðeins kr. 140.00 „Ég minnist þess ekki, að nokkur bók, að frátekinni bók bókanna, hafi farið með anda minn um slíkar furðuveraldir, hæð og dýpt, í slíkan blindandi ljóma og slíkt glórulaust myrkur. Þar eru vissulega vandrat- aðar leiðir og torráðnar gátur. En eitt virðist mér óumdeilanleg- ast og háleitasta hugsjón, og af sið- gæðiskröfunni er aldrei slegið hárs- breidd, svo að í þeim efnum leiðir bókin engan afvega, en nýstárleg mun vafalaust mörgum virðast túlkun höfundar á sumu í fornhelg- um fræðum okkar kristinna manna. Þar með ætti þó mörgum að verða augljósara samhengið í árþúsunda þróun trúarbragðanna. Frá svimandi hæðum lætur höf- undurinn lesandann horfa vítt um heima alla, sýnilega og ósýnilega, um ómælisgeim og órafjar- lægðir, og einnig niður í hrollvekjandi undirheima. Pétur Sigurðsson, Vísir 10. ág. 1959. BOKAFORLAGSBOK „Ég er þess fullviss, að allir greindir og hugsandi menn munu bæði hafa ánægju og andlegan ávinning af að lesa þessa bók. Björn Magnússon prófessor á miklar þakkir skilið fyrir að hafa snarað henni á íslenzku. Og það er gleði- legt tímanna tákn, sem sennilega hefði ekki getað gerzt annars staðar en á íslandi, að háskólaprófessor í guð- fræði skuli hafa lagt hönd að þessu verki. Þctta sýnir, að enn er til meðal guðfræðinga vorra snefill af frjálsri hugsun, þó að margir reyni að draga guðfræðina niður í sama svartamyrkrið, sem grúfir yfir henni í nágrannalöndum vorum.“ — Sr. Benjamín Kristjánsson, íslendingur 12. des. 1958. — Þessi bók dulspekingsins Edouard Schure’s er rituð og útgefin á níunda áratug næstliðinnar aldar. Að óathuguðu máli kynni mörgum að verða það á að álykta sem svo, að hún sé nú orðin úrelt og lítt girnileg til lestr- ar. En svo er ekki. „Vígðir meistarar“ verður meðal þeirra bóka, sem

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.