Heima er bezt - 01.05.1962, Síða 25
Tvær konur á Snæfellsnesi sendu dægurlagaþættin-
urn ágætt bréf, og þar sögðu þær meðal annars þetta:
„Gætuð þið birt fyrir okkur í blaðinu Ijóð, en úr því
munum við aðeins þetta: ,Ég mætti hérna um morgun-
inn manni ofan úr sveit, viltu vita vinur minn, hann
var í kvenmannsleit‘.“ Undir þessa ljóðabeiðni skrifa:
Munda 54 ára og Rúna 88 ára. Æskuárin ylja enn þess-
um ágætu, lífsglöðu konum. Ef til vill kemur þetta ljóð
síðar í leitirnar.
Ég gat þess í þætti þessum í síðasta blaði, að margir
hefðu beðið um ljóð, sem hefst á þessari ljóðlínu: „Upp
undan bænum í blómskrýddri hlíð.“ Jafnframt gat ég
þess, að bak við þetta ljóð væri sönn saga. Höfundur
ljóðsins er Þorsteinn Gíslason, ritstjóri og skáld, og var
það prentað í litlu ljóðakveri, er út kom árið 1893. En
tilefni kvæðisins er þetta: Sigurlín Sigurðardóttir hét
ung stúlka ættuð úr Álftaneshreppi á Myrum. Hun
var heitbundin ungum manni, Kristjáni Fjeldsted frá
Hvítárvöllum. Höfðu þau sett upp hringa. - Þá greip
Kristján einhver útþrá, og réðst hann sem túlkur með
Vesturförum. Var ferðinni fyrst heitið til Englands,
en leiðin lá þó til Ameríku. Unnustan sat í festum
heima á íslandi. — Veit ég svo ekki hvað gerðist næstu
mánuði, en að ári liðnu berst Sigurlín upsagnarbréfið,
og fylgdi trúlofunarhringurinn uppsagnarbréfinu, eins
og þá var mjög í tízku. Sigurlín átti þá heima á Álfta-
nesi á Mýrum. Mun hana hafa grunað, að bréfið flytti
engar gleðifréttir, og gekk með það óupprifið upp í
brekku eða dálitla hæð á bak við bæinn. Þarna tók hún
bréfið upp. Lítil stúlka á bænum fór að forvitnast um
hana og kom hlaupandi heim aftur og sagði að Sigur-
lín væri grátandi ofan túns. Sigurlín var fríð kona og
fönguleg. Hún giftist síðar Sveini Níelssyni, bróður
Haraldar Níelssonar. Og hér kemur þá kvæðið: „Dá-
lítil sagalí.
Þau horfðust á lengi; þau hugsuðu eitt
og hvort annað skildi, þó segði’ ekki neitt,
því augun, þau tala bezt ástanna mál:
„Ég ann þér af hjarta, af lífi og sál.“
Og söngfuglinn grúfði sig glaður í sæng
í grasinu’ og höfðinu stakk undir væng,
og allt varð svo rólegt, svo hátignar hljótt,
hvert hjartaslag taldi hin grafþögla nótt.
Hver telur þá eiða’ og þau ástheitafjöld,
er elskendur hvísla um blíðviðriskvöld?
Þau skrifar á spjöld sín í húminu hljótt
hin hlustandi, ógleymna, þögula nótt.
Og aftur hún sýna þér angrandi má
hvern eið, sem að gleymdist, en svarinn var þá,
er aleinn þú vakir 'á andvökustund
og augunum þreyttum er neitað um blund.
Og sköpin nú dæmdu þeim skilnaðarstund,
hann skyldi með morgninunt leggja’ út á sund,
til ókunnra landa, frá ættjarðarströnd,
frá ástmey og vinum, frá foreldra hönd.
Hann kvaddi’ hana og sagði: „Ó, mundu mig mey.“
— „Ég man þig allt til þeirrar stundar ég dey.“
„í vor kem ég aftur, þá verðurðu mín.“
— „í vetur ég ávallt skal hugsa til þín.“
Og snemma að morgni skreið ferðbúið fley
með flaktandi seglum í dálitlum þey
frá landi, en meyjan á ströndinni stóð
og starði’ út á fleyið, er bárurnar óð.
En út yfir borðstokkinn unglingur lá
og augunum döprum mót landinu sá;
hann leit upp á fjöllin með bergskyggða brún,
um blómskrýddar hlíðar og fagurgræn tún.
Upp undan bænum í blómskrýddri hhð,
í blækyrru veðri, um hásumartíð,
er sólin í heiðríkju seig o’ní mar
og svalandi skugga um hlíðarnar bar.
Svo leit hann hvar unnustan stendur á strönd
og starir til hafsins, þá varpar hann önd:
„Nú flytur mig burt frá þér freyðandi sjár.“
— þá féllu’ o’ní hafdjúpið glóandi tár.
Þar gægðust upp brekkuna blástjörnur tvær,
tvö brosfögur augu, þar situr ein mær;
hún hönd ber við eyra og hlustar um stund:
„Nú heyri ég fótatak nálgast á grund.“
Á kinnarnar rósfögrum roðablæ sló,
því rétt þegar orðið á vör hennar dó
var hönd hennar gripin, við hlið hennar sezt
hinn hjartkæri vinur, er þráði hún mest.
Og skipið um öldurnar freyðandi flaug;
og fyrst, er það hverfur við sjóndeildarbaug,
þá gengur hún hugdöpur burt heim að bæ:
„Þið bárur ó, leiðið hann heilan um sæ.“
Og sumarið líður; hún hugsar um hann
og horfir oft döpur á bládýpisrann;
og haustið burt víkur, þá versnar í tíð,
og veturinn fæðist með kulda og hríð.
Heima er bezt 165