Heima er bezt - 01.02.1963, Page 19

Heima er bezt - 01.02.1963, Page 19
Draumur Erlendar Sturlusonar SKRIFAÐUR EFTIR HANS EIGIN HANDRITI AF JÓNI HINRIKSSYNI 12. APRÍL 1863. r Arið 1831, þegar eg hafði búið á Rauðá fra 1821, / \ um veturinn þann 27. desember var ég að ganga /w. við kindur mínar um daginn eftir vana. Hláka var og hvassviðri og svellalög mikil. Ég kom seint heim um kvöldið og með lúnara móti. Eftir að ég var seztur að, lagði ég mig upp í rúm mitt og sofnaði, sjaldan þessu vanur, því rökkursvefn var mér óeðlileg- ur. Þegar ég var sofnaður dreymdi mig: Ég þóttist vera staddur á Finnsstöðum í Kinn, sá bær er í Ljósavatnssókn. Var ég þar vel kunnugur. Þóttist ég vera að búa mig til heimferðar, og lézt ég fara í beina stefnu og sunnan við túnið á Fremstafelli. Liggur sú jörð undir Munkaþverárklaustur, og stendur sunnan og austan undir felli því, sem liggur til norðurs þaðan milli Skjálfandafljóts og Köldukinnar. Þar bjó Drauma-Finni, sonur Þorgeirs Ljósvetningagoða, og var þá nefnt undir Felli. Hans getur í Ljósvetninga sögu, líka í sögunni af Finnboga ramma, og stendur Finnbogasteinn þar norð- vestur í Fellinu. Ég þóttist vera staddur í holti nokkru sunnan við túnið í Felli, og var að hugsa um, hvar ég mundi komast yfir Fljótið, sem ekki var lagt. En í þessu sá ég kvenmann standa nokkurn veginn hjá mér. Var það að sjá gömul kona, mikið gildvaxin en í meðallagi há. Hún var i viðhafnarfatnaði, og hafði brúnan klút eða lín bundið um ennið og hvítt skaut þar upp af, sem ekki bar þó hátt. Mér stóð enginn stuggur af henni. Hún leit glaðlega til mín og sagði: „Þykir þér ekki fallegt hérna?“ Ég lét já og svo við því. Þá sagði hún:: „Fallegt var héma!“ í þessu verður mér litið hjá mér, og þóttist ég sjá þá langan stein og fremur mjóan. Var hann líkur legsteini í lögun með átta köntum, svo sem hann skyldi vera sex eða sjö álnir á lengd. Hann lá suður og norður. Á hön- um var letur. Ekki var það klappað ofan í hann, held- ur var það eins og á drifnu látúni ellegar á mótuðu brauði, gömlum trafakeflum ellegar svoleiðis skurð- verki, tvær línur á hvörjum kanti. Frá norðri til suðurs varð að lesa og standa eða krjúpa austur við steininn. Mér þótti hún segja: „Lestu þetta.“ Ég sagði: „Ég held ég muni ekki geta það.“ Þá sagði hún: „Ég skal þá minna þig á, en þess mun ekki þurfa við.“ Ég fór svo að lesa þetta, og hugsaði ég mundi ekki geta velt við steinin- um, til að geta lesið allt í kring, en er ég fór að reyna það, gekk mér það vel. Þó þótti mér það steinn vera en ekki kubbur eða kefli. Öðruvísi get ég ekld lýst letri þessu, en mér gekk vel að þylja það, og las ég það í sífellu hvað eftir annað, þangað til ég þóttist ég mundi vera búinn að læra það. Stóð ég þá upp, en í því var gamla konan að hverfa eða líða burt eins og í reyk eða móðu. Og í sama vetfangi hvarf steinninn. Ekki vaknaði ég strax við þetta, en litlu síðar mun ég hafa vaknað, og þá fór ég að hugsa um draum minn og rifja upp það, sem ég gæti munað af honum, og var það sem fylgir. Forðum tíð var ég hér fyrirráðandi, þá var fold vor fjölbyggð víða, og fallegt undir Felli þessu. Faldi og gróf ég fé í jörðu. Þú mátt frændi það upp taka, en enginn annar aldarsona, er ég þá laus úr ánauðardróma, sem þér ég gjama þakka vildi. En fýsi þig þetta framar að vita, hlýtur þú þá að hyggja að og læra. Eg hét Alaría Eggertsdóttir, átti ég son, sem Érlendur nefndist. Manninn ég snemma missa náði, sjódauður varð, en sorg mig lúði. Éjársjóð í jörðu fól ég síðan, ætlaði reyndar arfa mínum, hafði sá gran af hegðan minni, en vissi þó ei, hvar vera mundi. Eg vildi mínum arfa vera innan handar, en ei það dugði. Hann gjörðist ódæll óspektarmaður, átti þó nokkra afkomendur, mér illa reyndist, móður sinni, hataði mis og hundsvelti. Þá sex um áttrætt ár ég hafði, sótti mig heim sótt til dauða. Byrstur kom eitt sinn að banasæng minni og fýstist að vita, hvar féð dyldist. Ég þverneitaði því með öllu, og kvað hann aldrei hreppa skyldi, og aungvum auðnast af því vita, utan þeim einum ættingja mínum, sem Érlends nafni yrði heitinn, og föður átt hefði fjöraldraðan, mæddan lífdaga, mér jafnroskinn, og nonum nákvæmd og hjúkrun sýndi á hinnzta tíma hans lífdaga. Honum er nær það hlotnast mætti en illum þér, sem ódyggð sýnir, þó mun langt verða þess að bíða, og tvísýn not af téðum munum. Heima er bezt 55

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.