Heima er bezt - 01.02.1963, Page 21

Heima er bezt - 01.02.1963, Page 21
ÞATTUR ÆSKUNNAR HVAÐ UNGUR NEMUR NAMSTJ. RITSTJORI STEFAN JONSSON Hitalindir og heilsubmnnar (Framhald.) í íslandslýsingu Þorvaldar Thoroddsen og Ferðabók Eggerts Olafssonar og Bjarna Pálssonar er noltkuð sagt frá ölkeldum á íslandi. Um Rauðamels-ölkeldu hefur Guðlaugur Jónsson lögregluþjónn safnað miklum gögnum og með hans góða leyfi styðst ég við sumt af því, sem hann segir um Rauðamels-ölkeldu. Sjálfur er ég uppalinn í nágrenni við ölkelduna og styðst því í frásögn minni jafnframt við það, sem mér er í barnsminni um þennan fræga heilsubrunn. Allt myndar þetta í sameiningu stuðlana að frásögn minni í þessum þætti. Þorvaldur Thoroddsen segir þannig frá í íslandslýs- ingu sinni: „Öikeldur eru nokkrar á íslandi, einkum á Snæfells- nesi, en flestar eru þær smáar og vatnslitlar. Þær eru mjög breytilegar og hverfa stundum algjörlega. Öl- keldur eru þær uppsprettur kallaðar, sem innihalda tölu- vert mikið af kolsýru.“ Seinna segir hann svo: „Flin stærsta og merkasta ölkelda á Islandi er Rauðamels- ölkelda, en þó er hún ekki stór.“ í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er sagt frá ölkeldum á íslandi, en þeir ferðuðust um landið árin 1752—1757. LTm ölkeldurnar segja þeir með- al annars þetta: „Enda þótt Snæfellsnesið sé snautt af heitum upp- sprettum (þetta er þó ekki alls kostar rétt, því að sunn- anvert á nesinu eru tvær hitalindir, Lýsuhólslaug og Kol- viðarneslaug), er þó nokkur bót að hinum mikla fjölda ) ölkeldna, sem þar eru. En svo nefnast uppsprettur, sem I auðugar eru af málmsöltum, með bragðmiklu vatni. Það má furðulegt kallast, að Snæfellsnesið er eina héraðið á landinu, sem gætt er þessum kostum, enda þótt enginn reyni að hagnýta sér það.“ Að síðustu segja þeir þetta um Rauðamels-ölkeldu: „Að loltum skal skýrt frá Rauðamels-ölkeldu, sem kunnust er allra íslenzkra ölkeldna. Hún kemur upp við fjallsrætur í grösugu umhverfi, nálægt mílufjórðung (2.5 km) frá kirkjustaðnum Rauðamel. Ölkeldan sprett- ur upp í lækjarfarvegi. (Þetta er ekki alveg rétt, því að uppsprettan sjálf var utan við lækjarfarveginn, en ef lækurinn óx, þá flæddi hann inn í ölkelduna.) Yfir henni liggur náttúrleg jarðbrú, af samanfléttuðum plönturótum.“ Síðan segja þeir að ölkelduvatnið sé svo bragðmikið, að fá megi ágætt öl, þótt lækjarvatnið streymi yfir öl- kelduna. Svo segja þeir orðrétt: „Vatnið í Rauðamels- ölkeldu er tærara, bragðmeira og léttara, en í hinum ölkeldunum. Það hefur einnig þægilegan súrkeim og sérstaklega hressandi á bragðið, umfram vatn úr hinum ölkeldunum. Af þessum orsökum er það hinn ágætasti svala- og hressingardrykkur.“ Ferðabókin nefnir síðan margar ölkeldur og má segja, að allar þær merkustu séu á Snæfellsnesi. Fyrir utan Rauðamels-ölkeldu nefna þeir félagar þess- ar ölkeldur á Snæfellsnesi: 1. Ölkeldu við bæinn Ölkeldu í Staðarsveit. 2. Ölkeldu á Fróðárheiði. 3. Ósakots-ölkeldu við Búðarós.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.