Heima er bezt - 01.02.1965, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.02.1965, Blaðsíða 11
að krókinn og tók ég undir það. Frá þeim umræðum sofnaði ég. Um nóttina dreymir mig, að fundum okkar Áskels ber saman. Spyr ég hann eftirvæntingarfullur, hve marga seli hann hafi fengið. Hann er seinn til svars, glottir dálítið stríðnislega, en segir loks: „Fjögur voru andlitin.“ — Mér þótti hann heldur en ekki hafa skák- að okkur. Ég sagði félögum mínum drauminn strax um morg- uninn, þegar við vöknuðum. Þetta reyndist rétt. Áskell hafði fengið fjóra seli, — en það voru allt smáselir. Hugskeyti. — Viltu að ég segi þér eitt dæmi um hugskeyti? Já, segir þú, og þá skal ég gera það. Ég var eitt sinn staddur út við Grímsey á handfæra- veiðum snemma vors. Var þá formaður á vélbátnum Víkingi, sem Kaupfélag Þingeyinga átti — 11 lesta báti. Hann var öðrum þræði, einkum á vetrum, notaður til flutninga og sendiferða í þágu félagsins og félags- manna þess, — og reyndar hverra sem var, ef þeim lá á. Upp úr miðjum degi fór að sækja á mig hugboð um, að ég þyrfti að fara heim til Húsavíkur strax, — eitt- hvað mikilsvert lægi við. Ágerðist óróleiki minn af þessum sökum meir og meir eftir því, sem á daginn leið. Loks stóðst ég ekki mátið, þegar kvöldaði, lét ganga frá öllu til heimferðar og tók strildð til Húsavíkur. Við komum til Húsavíkur um kl. 4 að nóttu. Eng- inn vélbátur var á höfninni. Enginn maður sást á ferli í þorpinu. Enginn virtist hafa beðið eftir okkur. Ég spurði konu mína, sem vaknaði, þegar ég kom heim, hvort nokkur hefði spurt eftir mér. Nei, enginn. Ég fór því strax að sofa. En varla var ég búinn að festa svefninn, þegar barið var að útidyrum. Þar var þá kominn Aðalgeir Sigurðsson á Máná, til þess að biðja mig að sækja systur sína á Víkingi. Hún þurfti að kom- ast til læknis strax, en sjóleiðin eins og á stóð eina færa leiðin frá Máná til Húsavíkur með rúmliggjandi sjúkling. Sigurður Jónsson, bóndi á Máná, gamall og góður kunningi minn, faðir þeirra systkina, sem hér er getið, — sagði mér seinna, að hann hefði allan daginn verið að reyna að senda mér hugskeyti um að koma heim frá Grímsey. Jafnframt hefði hann lagt spil og reynt að sjá í þeim, hvort ég yrði við beiðni sinni. Loksins sagð- ist hann hafa þótzt sjá, að ég væri kominn á heimleið, og þá sent Aðalgeir af stað til Húsavíkur að hitta mig. Fjölskylda Einars: Efri röð: Njáll, tengdasonur hans, Einar, Sören. Neðri röð: Arnina, Guðný, Kristjana, tengdadóttir hans, og móðir hennar. — Manstu ekki einhverja sögu til þess að segja mér af átökum þínum við aðra menn? — Nei, alls ekki. — Þá skal ég segja þér eina slíka sögu af þér, Einar, þar sem ég var sjónarvottur: Þú varst dyravörður á skemmtisamkomu hér á Húsa- vík. Drukkið ofstopamenni, ungur maður, stór vexti og áflogagjarn, veittist að þér. Þú reyndir með prúð- um orðræðum að sefa hann og stilla, en það gagnaði ekki. Hann flaug á þig. Þú brást hart við, tókst hann hryggspennutökum og lagðir hann, eins og Jóhannes frændi þinn mundi hafa gert. En maðurinn var ofsareiður og brauzt um. Krækti fingri upp í þig og ætlaði að taka á þér munnvikstak. Þú varst þá ekki seinn né hikandi, og beizt í fingurinn áður en honum yrði nokkuð úr takinu. Þá gafst svolinn upp og hljóðaði hátt. En þú lézt hann standa á fætur, skyrptir éinhverju smávegis út úr þér og sagðir við okkur, sem á horfðum: „Skrattakoll svíður víst.“ Kannastu ekki við þennan atburð? — Ég verð víst að meðganga. Þú ert talinn vel vitn- isbær. — Þegar þetta skeði var Einar kominn nærri sextugu. Skrattakoll sveið. — Varstu ekki áflogagjarn, eins og Jóhannes á Borg, frændi þinn? — Nei, það var ég ekki. Æfði aldrei glímur og flaugst lítið á. Var ekki áflogasterkur, að ég held. Aldrei til mennta settur. — Varstu nokkurn tíma í skóla? — Nei, aldrei. Ég var sannarlega ekki til mennta sett- ur. Efnahagsástæður voru ekki til þess, enda annar ald- arháttur þá en nú. Ég lærði að lesa hjá foreldrum mínum, aðallega hjá Heima er bezt 55

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.