Heima er bezt - 01.01.1966, Page 15

Heima er bezt - 01.01.1966, Page 15
Astralskir landkönnuðir ferðast á snjóbil og hundasleða i rannsóknarleiðangri i nánd við bcekistöð sína Mawson Station á Suðurskautssvaðinu. byggðarhætti. jafnvel svo lítil jöldaleysing þar syðra, að hún hefði ekki teljandi áhrif á sjávarstöðu, mundi hafa veruleg áhrif á veðurfar jarðarinnar, þegar frá liði. jMargar hættur vofa yfir þeim, sem leggja leiðir sín- ar urn Suðurskautslandið. Ein hin geigvænlegasta er þeg- ar náttúran leggur fyrir hann ljósgildrur sínar. Grein- arhöfundur varð einu sinni fyrir slíkri gildru og segir svo frá: Ég hafði yfirgefið stöðina og einungis ætlað í stutta gönguferð, en ekki hafði ég gengið lengi, er ég veitti því athygli allt í einu, að litur loftsins breyttist. Áður cn mig varði var ég umluktur hvítu þokuljósi, enginn skuggi sást, og ókleift var að gera sér grein Jfyr- ir nokkurri mishæð eða ójöfnu. Himinn og jörð runnu saman í eina heild. Mér fannst helzt líkast því að ég væri innan í geysistórri borðtenniskúlu, allt var hvítt, engin kennileyti eða ójafna. Skýring á þessu fyrirbæri er, að ljósið endurkastast hvað eftir annað milli ísbreið- anna og hvítra þokuskýja, við það hverfa allir skuggar, ójöfnur landslagsins líkt og þurrkast út, og það er ómögulegt að sjá mun lofts og jarðar. Hið óhjákvæmi- lega gerðist. Ég steig fram af hengju í brún á opinni gjá og hrapaði eða öllu heldur rann um 20 fet niður á við. Til allrar hamingju hafði ég með mér tvenna auka- vettlinga. Þegar ég fór að klifra upp á gilbarminn, fleygði ég vettlingunum upp fyrir mig, til þess að ganga úr skugga um, hvort þar væri fótfesta fyrir eða ein- tómt lofthafið. Ég lærði á þessu, að hér var ég staddur í landi, þar sem aðeins fimm mínútna leið frá strönd- inni, gat leitt til glötunar manns. Þá má ekki gleyma ofviðrunum. Þau bresta á fyrir- varalaust með þeim ofsa, sem engan á sinn líka. Frönsku rannsóknarmennirnir sögðu frá, að þeir hefðu eitt sinn mælt þar 200 mílna stormhraða á klukkustund, en þá brotnuðu vindmælamir, svo að enginn veit hversu hátt vindhraðinn komst. Á undan þessum ofviðrum heyrist enginn hvinur. Á einu vetfangi gleypa þau mann með þungum dyn og nístandi ýlfri, og þessi veður geta hald- (Framhald á bls. 19.) Heima er bezt 11

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.