Heima er bezt - 01.04.1981, Page 37
Bókatilbad
mánaöanns
Þrjár úrvalsbækur á aðeins 60 kr.
Gene Fowler: Francois Sagan:
Málsvarinn mikli Sumarást
William J. Fallon var einhver fyrsti lög-
fræðingur í Bandaríkjunum sem frægur
varð fyrir það sérstaklega, að verja
sakamál, og ef til vill sá frægasti þeirra
allra. Sú var tíðin, að „Fallon" merkti
það sama og ,,bragðarefur“. En Gene
Fowler hefur allt aðra sögu að segja.
Hann segir okkur söguna af dregnum,
sem að vísu var brellinn og mesti
hrekkjalómur, en aldrei nein ótukt.
Drengnum, sem helst fannst það eiga
fyrir sér að liggja, að verða kaþólskur
prestur, og sagði við besta vin sinn, þeg-
ar hann lá fyrir dauðanum: „Eiginlega
held ég að ég hafi aldrei syndgað". En
Fallon var bam síns tíma, barn pen-
ingaflóðsins og lögleysunnar eftir
heimsstyrjöldina fyrri. Falsarar og fjár-
glæframenn sáu fljótlega, að hér var
maður, sem gat komið þeim úr klóm
réttvísinnar, og greiddu honum stórfé
fyrir.
Söguhetjan, Cécile, er einkadóttir efn-
aðs manns um fertugt. Hann er lífsglað-
ur, myndarlegur Don Juan, sem lengi
hefur verið ekkjumaður. Síðan Cécile
kom úr klausturskólanum, hefur hún
verið hinn besti félagi föður síns. Hann
hefur farið með hana með sér í veislur og
á drykkjukrár og hvatt hana til að njóta
óspart lífsins gæða, og hann hefur ekki
leynt hana hinum fjölmörgu ástarævin-
týrum sínum. Hún telur hann yfirborðs-
mann og siðleysingja og metur hann
heldur meira þess vegna.
Francois Sagan var aðeins átján ára
gömul þegar hún skrifaði þessa sögu og
hlaut bókin gagnrýnendaverðlaunin
frönsku, Grand prix critiques. Frásögn
höfundarins er einföld, tær, hröð og
málalengingalaus, hún skapar viðburði
og persónur af merkilegri nákvæmni og
öryggi.
Sylvia Edvards:
Gullnáman
Bækurnar um Sallý Baxter fregnritara
hafa náð geysilegum vinsældum meðal
unglinga. í þessari sögu fer hún til
Kanacía til að grafast fyrir um fréttir af
gullfundi þar. Lendir hún í mörgum
óvæntum og spennandi ævintýrum.
Hjón á bænum Bennettville eru sögð
hafa fundið gull, en haga sér afskaplega
undarlega, tala varla við nokkurn mann,
koma einungis í þorpið til að ná í mat, en
hverfa síðan burtu. Því undarlegra þar
sem áður kjaftaði á þeim hver tuska.
Sallý Baxter ætlaði að taka við þau við-
tal, en bóndinn skellir á hana hurðinni
og vill ekkert við hana tala.
Ég undirritaður áskrifandi að Heima er bezt óska eftir að kaupa
Sumarást, Gullnámuna og Málsvarann mikla.
Nafn
Heimilisfang
Póstnúmer
Póststöð
□ Greiðsla kr. 60,00 fylgir.
□ Sendið mér bækurnar í póstkröfu.
Heima er bezt 145
ATH.: Ef greiðslan er send með, þá er öruggast að senda þetta i lokuðu umslagi og setja i ábyrgðarpóst.
Tilboðið gildir til 31. mai.