Heima er bezt - 01.04.1983, Qupperneq 9
starfi. Ein meginástæðan var sú að ég kynntist kjörum
mömmu og fleiri einstæðra mæðra í uppvextinum. Ég vildi
ekki setja allt mitt traust á fyrirvinnuna þótt góð mætti
teljast. Ég varð þó að láta undan síga á árunum 1972 til
1975. Þá voru börnin með mjög óreglulegan vinnudag í
skólanum eins og tíðkast hjá barnaskólanemum og flestir
foreldrar þekkja. Á þessum árum bjó mamma lika hjá
okkur, útslitin og búin að missa heilsuna og þarfnaðist
umönnunar. Tíminn leið, börnin þroskuðust, og mamma
dó og það losnaði um mig heima. Ég fékk aftur vinnu á
Orkustofnun hálfan daginn og hvarf til fyrri starfa við
virkjanarannsóknir og um tíma var ég við rannsóknir á
sandi úr ósum sunnlenskra jökuláa.
— í hvaða formi birtist svo úrvinnslan úr þínum rann-
sóknum þegar upp er staðið?
— í alls konar skýrslum og greinargerðum, sem gefnar
eru út hér á Orkustofnun og mjög oft er um samstarf
tveggja eða fleiri einstaklinga að ræða. Ég hef ekki skrifað
mikið í tímarit þótt það hafi borið við, t.d. Jökul, svo hef ég
skrifað nokkrar tækifærisgreinar um hitt og þetta að gamni
mínu.
— Fœr fólk sem vinnur að undirbúningi stórvirkjana ein-
hvern tíma á tilfinninguna að það geti hugsanlega verið út-
sendarar einhverra óhollra afla?
— Þetta er spælandi spurning og ég vil svara henni ját-
andi. Ég veit ekki hvernig það er með aðra. Ég get aðeins
svarað fyrir sjálfa mig. Ég verð að segja að ég er oft hrædd
við þann asa sem er á mönnum í sambandi við virkjana-
framkvæmdir. Menn virkja eins og þeir eigi lífið að leysa,
oft undir áhrifum utanaðkomandi afla, sem stundum eru
óholl. Svo það má segja að við sem vinnum þessi störf séum
útsendarar þeirra. Þó eru ekki allir því sammála.
En það hafa samt gerst mjög ánægjulegir hlutir í sam-
bandi við undirbúningsrannsóknir og hönnun virkjana
á síðari árum. Fyrr á árum, t.d. við undirbúning og virkjun
við Búrfeli og Sigöldu, þurfti erlenda sérfræðinga og verk-
taka til að hafa umsjón með rannsóknum, hönnun og
framkvæmdum. Nú búum við yfir þekkingu og tækni sem
til þarf að vinna þetta sjálf. Þetta er ekki ómerkari þáttur í
að efla íslenskt sjálfstæði og þjóðarvitund en hver annar og
er kannske ekki nógu mikið haldið fram.
— í hverju er starf þitt fólgið?
— Það hefur nokkuð breyst með árunum. Fyrst var ég
aðallega við umsjón með rannsóknaborunum, t.d. við
Búrfell, Sigöldu, Vatnsfell og Hrauneyjar og úrvinnslu og
skýrslugerð sem af því leiddi. En sl. þrjú ár hef ég starfað
meira við jarðfræðikortlagningu. Vinnustaður minn yfir
sumartímann er ofan byggða í Landssveit og Þjórsárdal en
sunnan jökla. Ég hef mest lagt mig eftir kortlagningu á
hraunum, sem urmull er af á þessu svæði.
Vissirðu að þú getur farið frá suðurströndinni, t.d.
Stokkseyri og inn að Hágöngum við vestanverðan Vatna-
jökul, án þess nokkurn tíma að fara út af hrauni? Syðsti
hluti þessarar miklu hraunabreiðu er best þekktur og
gengur undir samheitinu Tungnárhraun. Mörg þeirra hafa
náð mjög mikilli útbreiðslu, og það má rekja þau frá suð-
urströndinni að Hófsvaði við Tungnaá við Svartakrók. Þar
hverfa þau undir yngri gosmyndanir.
Hraunin eru 10 talsins og hafa verið tiltölulega vel
rannsökuð, enda eru 3 stærstu virkjanir okkar, við Sigöldu,
Hrauneyjar og Búrfell, byggðar að hluta til á þeim. Fyrsta
verk mitt sem jarðfræðinemi var að rannsaka borkjarna úr
hraununum og ég hef haldið tryggð við þau síðan. Ég
skrifaði skýrslu um þau, sem Orkustofnun gaf út árið 1977.
Þar er safnað saman þeim upplýsingum sem til voru um
þau, en þeirra hefur aðallega verið aflað i sambandi við
virkjanarannsóknir.
— Þetta er þykk skýrsla og í hávegum höfð veit ég. Varstu
að gera grein fyrir einhverju sérstöku, sem ekki var vitað
áður?
— Nei, eiginlega ekki, Svo til allar upplýsingar sem þar
er að finna höfðu áður komið fram, en í fjölmörgum
skýrslum, eitt atriði hér, annað þar. Þarna var þeim öllum
safnað á einn stað og reynt að gefa heildarmynd. Ég þarf
varla að taka það fram að þessi skýrsla er um margt orðin
úrelt og þyrfti að skrifa nýja. Margvísleg viðbótarvitneskja
hefur fengist um hraunin á sl. 5 árum við áframhaldandi
rannsóknir, sem gerir myndina skýrari og nákvæmari.
— Hvað ertu að gera núna?
— Að beiðni Landsvirkjunar er ég ásamt fleiri jarð-
fræðingum að vinna að heildaryfirliti yfir jarðfræði og
vatnafar á vatnasviði Þjórsár ofan Búrfells. Starfið er m.a.
að fella saman rannsóknir frá virkjanastöðunum, líkt og
áður var gert með Tungnárhraunin, ásamt nauðsynlegum
Þjórsár-Tungnársvæðið. ,,Það má kalla þetta sveitina mína. Ég fer þangað er snjóa leysir
leggstað“: Tungná austan Veiðivatna.
. og hverf heim þegar vetur
Heima er bezt 117