Heima er bezt - 01.04.1983, Side 25
Fékk leiðangursstjóri ádrepur nokkr-
ar. Hann gat lítið annað gert en klóra
sér í kollinum og gat enga viðhlítandi
skýringu á þessu matarleysi gefið.
Lofaði hann mjög ákveðið, að málið
skyldi rannsakað ofan í kjölinn strax
að morgni. Varð hann við þessu yfir-
lýsingu eins og Jón spæó í framan.
Alitu flestir, að ekki væri seinna
vænna og töldu nokkrir sig vart lifa
þetta af. Þá hnussaði í „saltfiskkaup-
andanum“ og var engin furða. Lá um
stund í loftinu uppsögn nokkurra
leiðangursmanna og tafarlausa brott-
för til Þórshafnar. Þrátt fyrir þau stóru
orð, varð ekki af framkvæmd (enda
liðlega 30 km vegalengd og menn
þegar orðnir göngumóðir). Menn
drusluðust því í pokana og sofnuðu
svefni hinna kviðléttu.
FILtudaginn 18. júlí var mannskap-
urinn kominn í fjöruna. Kl. var um
08.00. Veður hvorki vont né gott,
hægviðri og svalt þokuloft. Haldið var
áfram verkinu frá kvöldinu áður,
hreinsun heimafjöru. Nokkru eftir að
vinna hófst, fékkst loks skýring á
hinni litlu matarsendingu frá borði
daginn áður. Matsveinninn á Gunn-
ari hafði ekki haft hugmynd um, að
hann ætti að sjá öllum leiðangrinum
fyrir fæði. Elli hafði aftur á móti gert
ráð fyrir því. Greinilega hafði eitt-
hvað klikkað í kerfinu, sem ekki er
óalgengt. Sú klikkun var litin alvar-
legum augum og skoðuð í ljósi þess
„að matur er mannsins megin“. Á
þessu stigi málsins, þótti óráðlegt og
raunar þýðingarlaust að fara ofan í
saumana, enda átti að gera þá brag-
arbót, sem kostur var. Að vísu voru
horfurnar ekki sem efnilegastar. Mat-
sveinninn hafði einungis keypt kost í
þær sálir er um borð voru og ekkert
fram yfir það. Það var því ekki mikið
til skipta. Sannaðist nú hið forn-
kveðna „að enginn kann sig í góðu
veðri heiman að búa“. Þó var einn
mótleikur, meira að segja nokkuð
sterkur — saltfiskurinn. Glotti nú
hinn framsýni maður í kamp, en aðrir
þögðu — og var það ráðlegast undir
þessum kringumstæðum. Var nú
Guðmundur sendur á „Villa“ sínum í
hvínandi hvelli til Skoruvíkur að
sækja fiskinn, er metta skyldi mann-
skapinn eins og skrifað stendur í bók
einni góðri.
Um tíuleytið kom kaffi og brauð frá
borði. Var ekki hægt að segja annað,
en rösklega hafi verið tekið til matar
og var sagt, að einhver gafi tuldrað
eitthvað um „baráttuna um brauðið“.
Líklega hefur hann eitthvað etist úr.
Um hádegið kom svo hinn Langa-
nesfrægi saltfiskur, soðinn og salla-
fínn frá borði ásamt kartöflum og
þrumara. Fór heldur að lyftast brúnin
á rekaviðarmönnum og enginn talaði
um ólyst né hungurdauða. Fóru flestir
að reita af sér fúla brandara, sem ekki
eru á þrykk setjandi, nema hvað
mætti geta þess, að einhver ræddi það
við Ella, að hann ætti að reisa eld-
spýtnaverksmiðju að Skálum. Tók
Elli ekki ólíklega í það, enda ýmsu
vanur. Ekki spillti það matarlystinni,
að skilaboð komu frá koícksa á
Gunnari, að landmönnum væri fyrir-
huguð veisla um borð seinni hluta
dagsins. A matseðli var stórsteik og
frómasé.
Rétt upp úr hádegi var lokið við að
hnýta á „trossur“ úr heimafjöru. Var
þá liði skipt. Nokkrir urðu eftir, til að
hjálpa við að koma „trossunum“ nið-
ur stórgrýtta fjöruna. Aðrir áttu að
fara með allar græjur út á svonefnda
Miðeyri. Er hún liðlega 3 km utan við
Skála.
XJndirritaður varð eftir í heimafjöru.
Meðan beðið var eftir enda frá borði,
notaði ég tækifærið og skoðaði örlítið
nánar gamla íshúsið. Það stóð snerti-
spöl frá okkur uppi á bökkunum.
Þetta hefur á sínum tíma þótt mynd-
arleg bygging. Það er um 17-18 m
langt og um sex á breidd. Því er skipt
með steinvegg (húsið er steinsteypt) í
tvo misstóra hluta. í þeim minni var
geymdur snjór, en í þeim stærri var
raðað kössum með nokkru millibili.
Meðan á söltun stóð, var fiskurinn
geymdur í kössunum, en sambland af
snjó og salti mokað í bilin. Húsið var
furðu heillegt, veggirnir lítið sen ekk-
ert sprungnir, en járnklætt og tyrft
valmaþakið töluvert farið að rofna og
sum staðar alveg fallið. Greinilegt var
að síðustu árin hafði húsið verið notað
sem staurageymsla., því nokkur stafli
af þeim var þar inni. Nú er þetta hús
ofurselt miskunnarlausum örlögun-
um. Þau hafa riðið undarlega marg-
slungið net um þessa byggð, gefið
henni nafn í sögunni, en svipt hana
síðan reisn sinni og tilgangi — eða
hvað? Ég veit ekki svarið og enginn í
þessari veröld. í þessum þönkum
settist ég undir húsvegginn og tuggði
punt, horfði eftir sæbarðri, klettóttri
ströndinni, sem er og hefur verið um-
vafin angan seltu, þangs og blóma.
Svo hrökk ég upp við köll. Blaðran
var að koma með enda í „trossurnar“
okkar.
Um kl. 18.00 var ég kominn um
borð í Gunnar. Síðasta „trossan“ úr
heimafjöru var að silast út. Lest báts-
ins var orðin full og byrjað að setja á
þilfar. Eftir góðan kaffisopa gekk ég á
stjórnpall. Þaðan var gott að fylgjast
með lestuninni. Mennirnir um borð
kunnu sitt fag og unnu það allt að því
vélrænt. Þeir voru búnir að handfjatla
nokkur hundruð rekadrumba þennan
tíma og „æfingin skapar meistarann“.
Síðan var akkeri létt og haldið út
með nesinu til Miðeyrar. Lagst var
undan henni um 300 m frá landi á
fjögurra faðma dýpi. I fjörunni var að
sjá slatta af rekavið. Var þegar hafist
handa við að hala hann út. Búið var
að binda allt nýtilegt timbur í „tross-
ur“. Mennirnir, sem strandhögg
höfðu gert á Miðeyri, tíndust því
smátt og smátt um borð, enda stutt í
steikina.
Ur af Miðeyri er nánast ekki um
bjarg að ræða, heldur bratta, skriðu-
runna hlíð með tveim megin kletta-
beltum. Þau voru hvorki þverhnípt
né samfelld. Má auðveldlega rekja sig
ofan af landinu niður í fjöruna. Hæð
nessins er þarna um 70-80 m. Mikið
ber á rauðum setlögum í hlíðinni. En
hér var ekki tími til jarðfræðilegra at-
hugana, heldur stóðum við í nokkurs
konar strandhöggi og skammt látið
stórra högga á milli. Eftir vel heppn-
aða landgöngu á Miðeyri, gaf leið-
angursstjóri út þá yfirlýsingu, að næst
yrði haldið til Lambeyrar. Taldi hann
gefið, að þar myndum við fylla bát-
inn.
Heldur er lengra milli Miðeyrar og
Lambeyrar en Miðeyrar og Skála eða
liðlega 4 km. Eru þá eftir tæpir 6 km
út í Font. Lambeyri er ysti staður á
Langanesi, þar sem reka festir a.m.k.
sem nokkru máli skiptir og varla hægt
að taka land utar nema í einhverri
rjómablíðu. Hún er afar sjaldgæf við
Langanes, straumar stríðir og landvar
lítið.
Framhald í nœsta blaði.
132 Heima er bezl
Heima er bezt 133