Heima er bezt - 01.09.1983, Page 10

Heima er bezt - 01.09.1983, Page 10
stöðva sem Jón smíðar. Jón fer ekki dult með aðdáun sína á Birni sem verkmanni og hugvitsmanni, enda er hann sonur smíðakennarans góða á Laugum, Þórhalls Björnssonar, sem kenndi þar í áratugi og ól upp hagleiksmenn. „Þótt við viljum ekki vera á naflastreng samveitnanna ætlum við ekki að keppa við RARIK eða aðra raforkuselj- endur, en það er grátlegt að sjá, ef ekki er virkjað þar sem það liggur beint við“, segir Jón, „ég forðast samt að hvetja menn, þeir eiga að vera sjálfráðir og eru fullfærir um að átta sig á möguleikunum, þegar ég hef bent á þá. Ég veiti þeim hinsvegar alla tæknilega ráðgjöf, ef þeir sækjast eftir henni. Síðan sjáum við Björn oft um viðhald þessara tækja þegar fram í sækir.“ Almennt eru 20 kW nægileg orka fyrir venjuleg sveita- býli, mest raforkan fer í súgþurrkunina. En margir hafa ráðist í stærri virkjanir i samráði við Jón, t.d. má nefna virkjunina að Fossvöllum á Jökuldal, sem komst í fréttir á sínum tíma, 45 kW að stærð. Hún var sett upp 1969. Þar hafði ekki verið rafmagn af nokkru tagi áður, heldur notast við kerti, gas, kol og koks til ljósa og eldunar. Segir Jón það vera mestu breytingu sem hann hafi orðið vitni að í einu vetfangi, þegar fólkið þar fékk rafmagnið sitt. Það vakti líka talsverða athygli þegar Jón Sigurgeirsson og Björn Þórhallsson settu niður 50 kW stöð við Eyvindarstaði í Sölvadal, Eyjafirði, haustið 1980. Þeir feðgar í Árteigi smíðuðu túrbínuna fyrir Eyvindar- staði að mestu leyti á verkstæði sínu og virkjunin stóra í Húsafelli, stærsta vatnsvél sem hefur verið smíðuð hér- lendis, afkastar 150—160 kW. Þess ber að geta að rafstöðin hjá Jóni sjálfum afkastar svipaðri orku núna, en með þeim aðveituframkvæmdum sem nú standa yfir eru möguleikar á allt að 250 kW stöð þarna hjá þeim í Árteigi. Enda eru engar venjulegar framkvæmdir hér á ferðinni. Eins og fram kemur á myndunum hafa þeir feðgar látið stóra jarðýtu ýta upp kömbum í hlíðinni og myndað stórt uppistöðulón. Slík lón eru ekki einsdæmi, t.d. er eitt slíkt hjá Lambeyri í Tálknafirði og annað hjá Hnjóti í Örlygs- höfn. Lónin tryggja stöðugt vatnsmagn og hindra krapa- rhyndun og tímabundnar reksturstafir af þeirra völdum að vetrarlagi. Góð dœmi um það, að hverjum aðstæðum hentar sín túrbínugerð. Þessi er fyrir rafstöðina í Fossi í Arnarfirði. Túrbínan sjálf er aðeins um 20 cm í þvermál og sést laus til vinstri. Vatnið fer inn um leiðiskófl- urnar en út milli skáblaðanna á hœgri hliðinni. Myndir: Matthías Gestsson. AS neðan: Sigurgeir og Eiður með skófluhjólið í nýju rafstöðina í Arteigi. Þetta eru 32 skóflur úr pressuðu stáli, frœsaðar og síðan soðnar saman. Uppistöðulónið í hlíðinni er um 500 m á lengd. Það á að duga Granastaðatorfunni í sólarhring, ef vatn krapar og rennsli truflast ífyrstu snjóum eða aföðrum orsökum. íbaksýn er Skjálfandafljót og séstyfir á Lundey og til Húsavíkur.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.