Heima er bezt - 01.09.1983, Page 29

Heima er bezt - 01.09.1983, Page 29
Á nokkrum svæðum landsins kemur vel til álita að reisa smærri virkjanir ístað langra og e.t.v. óhagkvæmra línu- lagna. . . samveitunum inn um húsvegginn held- ur en aö leggja vinnu og peninga í rekstur og viðhald misjafnlega öruggra einkarafstöðva. Sjá má þróunina í þessum málum á því, að frá upphafi voru reistar ca. 530 einkarafstöðvar á landinu, langflestar innan við 15 kW að stærð. En nú eru aðeins 186 stöðvar eftir í gangi og eru 88 þeirra á bæjum, sem ekki hafa annað rafmagn, en hinar eru aðallega notaðar til afmarkaðra hluta, svo sem til upphitunar húsa, til Ijósa í útihúsum, eða til súgþurrkunar á heyi. Síðan olíukreppan skall yfir heiminn hefir verð á annarri orku farið ört hækkandi. Svo er einnig um raforku, sem framleidd er með vatnsafli til al- menningsnota. Þetta veldur því, að margir fyrri eigendur sveitarafstöðva sjá nú eftir því að hafa ekki haldið þeim við og í gangi, því að þeir sem það hafa gert, spara drjúgum á því að þurfa ekki að kaupa allt rafmagn frá samveitum. Þess má að lokum geta, að á nokkrum svæðum landsins kemur vel til álita að reisa smærri virkjanir í stað langra og e.t.v. óhagkvæmra línulagna. rafstöðvar í einkaeign 1982 Samkvæmt skýrslu Ágústs Halblaub fyrir RARIK, sem út kom í des- ember 1982, voru þá 186 einkavatnsaflsrafstöðvar í gangi. Þar af voru án samveiturafmagns 88 staðir. Langflestar einkarafstöðvar eru í Suður-Þingeyjarsýslu. Á árinu 1982 voru þar í gangi 38 rafstöðvar, og hvorki meira né minna en 22 staðir án samveiturafmagns. í Ljósavatnshreppi eru t.d. 9 bæir sjálfum sér nógir um rafmagn og í Hálshreppi 8. Sýsla Fjöldi í notkun 1982 Fjöldi í notkun 1982 án samveitu Gullbr.- og Kjósarsýsla 0 0 Mýrasýsla 2 0 A-Barðastrandarsýsla 2 0 Borgarfjarðarsýsla 3 3 A-Húnavatnssýsla 3 1 Skagafjarðarsýsla 3 3 V-Húnavatnssýsla 4 1 Dalasýsla 4 2 A-Skaftaf ells sýsla 5 1 Strandasýsla 6 5 ísafiarðarsýsla 7 5 Árnessýsla 7 4 Rangárvallasýsla 8 3 N-Þingeyiarsýsla 10 2 Eviafiarðarsýsla 10 6 N-Múlasýsla 11 5 V-Barðastrandarsýsla 15 12 S-Múlasýsla 16 5 V-Skaftafellssýsla 33 7 S-Þinqeyjarsýsla 38 22 Samtals 186 88 Heima er bezt 297

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.