Heima er bezt - 01.09.1983, Blaðsíða 12
varð rafvirki 1980 og hefur reist sér íbúðarhús á jörðinni.
Hann tekur nú fullan þátt í starfsemi föður síns og er mjög
áhugasamur um frekari framkvæmdir. Og yngsti sonurinn
Arngrímur hyggst stunda járnsmíðanám, enda leikur allt
slíkt í höndum hans eins og annarra á þessum bæ.
Þeir bræður hafa líka starfað að stórfelldum jarðabótum
með samveitum uppi í hlíðunum, lóngerð og síðast en ekki
síst sprengingum og vatnslögnum úr gljúfrinu sem glöggt
sést á myndunum.
Jón við rennibekkinn sinn stóra á verkstœðinu.
Hv
verjar eru trúarskoðanir Jóns Sig-
urgeirssonár? „Ég held að ég hafi nú verið trúlaus hérna
áður fyrr“, segir hann, núna læt ég þetta liggja milli hluta.
Ég er nokkuð kirkjurækinn, en bíð bara og sé til hvað tekur
við, þegar þar að kemur. Ég hef ekki „séð yfir um“, sem
kallað er, þótt ég hafi misst meðvitund vegna veikinda og
lent i því ástandi sem margir telja nánd dauðans. En það er
hinsvegar ekki hending, að ég verð var við hugsanaflutn-
ing. Hann er örugglega staðreynd".
Það er aldimmt að kvöldi þegar ég kveð í Árteigi.
íbúðarhúsin 5 eru upplýst og sterk útiljós víðs vegar gefa
Granastaðatorfunni dálítinn borgarsvip. Inni er allt fullt af
rafmagnstækjum til heimilishalds og atvinnurekstrar.
Gnýrinn í súgþurrkuninni er eins og bergmál þess krafts
sem í hlíðunum býr. Ég hrífst af allri þessari birtu, þessum
yl og þessum krafti sem andagift eins manns hefur áorkað.
Ævistarf hans blasir betur við en flestra annarra manna.#
Kristbjörg og Haukur með Hildi og Val.
Kristín og Sigurgeir, foreldrar Jóns.
Karitas og Eiður, foreldrar Hildar.
280 Heima er bezt