Heima er bezt - 01.09.1983, Síða 32

Heima er bezt - 01.09.1983, Síða 32
Magnús Árnason MINNISBLÖÐ UM HRAKNING OG ILLA MEÐFERÐ 3 VESTUR-ÍSLENSKIR SKÓGARHÖGGSMENN 1911-1912 SÍÐARI En nú kom kvíðinn því það hlaut að koma að því að upp um okkur kæmist, hverjir amlóðar við værum í þessari iðn. Þá kemur verkstjórinn með tvíblaðaða exi og segir okkur að fara að kanta stærðar timbur með þessu verkfæri. En við höfðum ekki hugmynd um hvernig við gætum gert það, og þá komst fljótt upp að við vorum ekki þeir menn sem við sögðum þeim þarna i Winnipeg að við værum. Verkstjór- inn horfir á okkur og tekur blöð upp úr vasa sínum og spyr um nöfn okkar. Já, allt stóð heima. Þetta voru blöð sem við skrifuðum undir á skrifstofunni í Winnipeg. „Þið eruð hér ráðnir sem númer eitt skógarhöggsmenn, en ég sé að þið kunnið ekki neitt til þessarar vinnu. Með öðrum orðum, — engir skógarhöggsmenn.“ Við gátum ekki annað en þagað við þessu og skammast okkar. Hann snýr sér við og kallar í mann, stóran dreka, og segir honum að kanta tréð. Og þá sáum við hvaða börn við vorum hjá þessum snillingi, sem sýndist veitast þetta svo létt að það var unun að horfa á hann vinna. HLUTI Svo snýr verkstjórinn sér að okkur og segir: „Þið hafið nú séð að þið eruð engir skógarhöggsmenn, en samt góðir verkmenn, og ég hef annað verk fyrir ykkur að gera og það breytir ekki kaupi ykkar.“ Þetta þótti okkur býsna gott að heyra. Bræðurna setti hann í brúarsmíðið, en mér fékk hann hesta til að draga timbrið út úr skóginum. „Nú verður þú að tala ensku við hestana, og passa sjálfan þig að verða ekki fyrir þeim trjám sem þeir mölva þegar þeir ryðjast út úr skóginum.“ Það voru engar línur, bara tangir sem voru kræktar á timbrið. Þetta voru eflings skepnur, höfðu mannsvit og gerðu strax það sem þeim var sagt að gjöra. Ég hafði aldrei keyrt svona stóra hesta og var hálf smeykur við þá. Ég sagði þó ekki neitt, en hugsaði að ég skyldi verða vinur þeirra og reyna að skilja þá, því þeir kunnu verkið ef þeir voru rétt höndlaðir. Og þvílík heljar- tök! Allt ruddust þeir í gegnum með þessi stóru tré á eftir sér, og þá var nú betra að vera ekki fyrir þeim. 300 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.