Heima er bezt - 01.03.1985, Side 4
JÓN GÍSLI HÖGNASON
Það var í nóvember árið 1934, er deil-
ur urðu hvað harðastar og hæst lét í
sölum Alþingis íslendinga um Mjólk-
ursölulögin, að gamla „Islandið“ háði
örðuga glímu við krappar skamm-
degisöldur Atlantshafsins á leið sinni
til Islands. Meðal farþega á skipinu
var ungur danskur mjólkurfræðingur,
sem hafði ráðið sig til starfa hjá
Mjólkurbúi Flóamanna, að tilstuðlan
þáverandi mjólkurbússtjóra Carl
Jörgensen.
Þrátt fyrir að þessum unga danska manni, Claus Bryde,
þætti Hellisheiðin há við fyrstu kynni, og „aumlegt“ að sjá
ferðamáta íslenskra bænda, átti þessi maður fimmtíu ára
starfsafmæli á íslandi í nóvember 1984.
Það segir sig sjálft að Bryde varð þess fljótlega var, að
menn hér á landi höfðu mjög andstæðar skoðanir á þessum
mjólkursölumálum og átti hann jafnvel eftir að hafa af því
persónuleg kynni.
Nú situr hann hér gegnt mér og hefur fallist á að segja
mér lítillega frá starfsferli sínum. Hann er meðalmaður á
hæð, dökkur yfirlitum, yfirbragð lýsir ljúflyndi og röddin er
hlý er hann svarar spurningu minni:
— Hvar ert þú fæddur Claus Bryde?
— Ég er fæddur í Danmörku 20. febrúar 1909 í bæ sem
heitir Holsted og er skammt frá Esbjerg á Jótlandi. Móðir
Claus Peter Kortsen Bryde segir frá
Claus og Kareti með barnabörnin.
„Þetta var bara sjúss“
S
50 ára starfsafmœli sem mjólkurfrœðingur á Islandi:
80 Heima er bezl