Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.03.1985, Blaðsíða 25
ARNGRÍMUR SIGURÐSSON: Bjargvættur hinna týndu í Stóra St. Bemharðsskarði Björgunarhundasveit íslands var ný- lega stofnuð. En í Alpafjöllunum hafa munkar öldum saman þjálfað Bern- harðshundana til aðstoðar ferðafólki. Mannslífi bjargað vJegnum snjófok, sem fljótlega myndar álnarháa snjóskafla, gengur ítalskur vinnumaður hina erfiðu leið upp Stóra St. Bernharðsskarð. Brátt eru hinar bröttu hlíðar Mt. Velan (3765 m) komnar á kaf í snjó. Snarpur vindurinn feykir snjónum inn um hinar minnstu glufur í fötunum, skafrenningurinn blátt áfram límir saman eyrun, munninn og augun. Þreytan vex stöðugt. Áfram! Áfram! Klaustrið, þar sem hinir líknsömu Ágústínusarmunkar eða Kannik- amir — sjá um aðhlynningu og hjúkrun ferðamanna, og þar sem þægilegt rúm stendur tilbúið, getur varla verið langt undan. En ekki sést það enn. Hjálp! Hjálp! Hoho! Ekkert svar. Hinn þreytti ferðalangur sest þreklaus niður. En hvað það er gott að hvíla sig á bak við stóran stein, sem veitir svolitið skjól í hinum ofsalega snjóstormi! Svefninn bugar hann, og brátt er hann alveg hulinn af snjónum. — Allt í einu vaknar hann! Eitthvað snertir vanga hans og hendur, hann heyrir hundgá. Fyrir framan hann stendur Bemharðs- munkur, sem nýr stíffrosnar hendur hans kröftuglega með snjó. Iðandi hundar lykjast um hann. Tveir kraftalegir klaustursþjónar nálgast og bera hinn hálfhelfrosna ferða- mann til klaustursins, þar sem hann nýtur umönnunar og fær gistingu alveg endurgjaldslaust. Munkarnir í St. Bern- harðsklaustrinu og hinir tryggu hundar þeirra hafa aftur bjargað mannslífi. Merkar söguslóðir A10. öld stóð þarna uppi lítill, kristilegur gististaður, er kom í stað gamals rómversks hælis (sbr. norsku flutn- ingastöðvarnar), og þar var einnig æruverðugt Júpítershof. Á eftir Rómverjum komu Márarnir og höfðu þar ræn- ingjahreiður, sem var bækistöð fyrir ránsferðir þeirra í nærliggjandi dali í Kanton Wallis. Kringum 1000 tókst savoyiska aðalsmanninum, Bernharð af Menton, að flæma Múhameðstrúarmennina á brott frá Wallis og reisti St. Bernharðsklaustrið, sem frægt er orðið. Klaustrið starfaði með svo góðum árangri, að fleiri þess háttar klaustur voru reist í flestum stærri Alpaskörðunum Yfir St. Bernharðs- skarðið, þar sem hinn strangasti vetur herjar í níu mánuði ársins, fóru flestir á milli hins þýska ríkis og Milano. Hinir miklu herstjórar sögunnar notuðu það oftast, til þess að gera árásir á hina frjósömu Norður-Ítalíu. Þannig fór Brennus með Gallana yfir St. Bemharðsskarð og til Róm- ar. Þýsku konungarnir fóru þessa leið til Tíberstaðarins (Rómar), til þess að fá sig krýnda af páfanum. Árið 1800 fór Napóleon Bonaparte með 40.000 menn yfir skarðið og barðist hinn 14. júní við Marengo-Austurríkismennina. Starf björgunarsveitarinnar Yfir skarðið fóru árlega um 20.000 manns, og þeir fengu umhygjusama umönnun og gistingu í klaustrinu. Allir gáfu — eftir bestu getu — sinn skerf til styrktar rekstri klaustursins. Á undanfömum öldum hafa þúsundir manna farist í St. Bernharðsskarði, en fleiri hefðu þeír orðið, ef munkarnir hefðu ekki verið þar með hæli sitt og hunda. Á hverjum degi fóru tveir klaustursþjónar til efstu Alpakof- anna og leiðbeindu þaðan ferðamönnum til klausturs sins. I vondum veðrum er þeim leiðbeint af munki og nokkrum hundum, því að Bemharðshundarnir eru bestu hjálpend- urnir við þessa erfiðu björgunarvinnu, og margan manninn hafa þeir grafið upp úr snjóflóðum. Þeir St. Bernharðs- hundar, sem menn þekkja í öðrum löndum, eru venjulega mjög loðnir, en hundarnir þarna í skarðinu eru snögg- hærðir, enda hentugra fyrir þá, er þeir eiga að berjast áfram í frosthörkum og stórhríðum. Talið er, að á undanförnum öldum hafi hundarnir í St. Bernharðsskarði bjargað um 3.000 mannslífum. Er talsíminn kom til sögunnar var það föst regla, að þegar einhver lagði af stað í tvísýnu veðri á skarðið þá var símað til munkanna og þeim sagt frá því. Kæmi maðurinn ekki fram á tilsettum tíma, voru hundarnir sendir út að leita. Þeir fóru alltaf tveir og tveir saman, og finni þeir einhvern mann í lífsháska í fönninni, örmagna af þreytu, er annar hund- urinn kyrr hjá manninum, en hinn hleypur heim til munk- anna. Sá, sem varð eftir hjá hinum hjálparvana manni, reynir að vekja hann með því að toga í föt hans og sleikja andlit hans. Dugi það ekki, veit hann, að hann á að leggjast ofan á manninn, til þess að halda honum hlýjum. Hundur- inn, sem fór heim til munkanna, vísar þeim nú leiðina til mannsins í fönninni. Munkarnir flytja hann þá heim í klaustrið og hjúkra honum. Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.