Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 28

Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 28
RAFN JÓNSSON: PERLUR í MOLD 4. HLUTI Á mánudaginn kom Fanney og var talsvert niðri fyrir. „Ég hef frétt, að stelpuskjátan sé farin að vinna hér,“ hóf hún máls. Hún gaf sér ekki tíma til að heilsa eða bjóða góðan dag, hvað þá meira. „Vinna? Ég get alls ekki kallað það að vinna, þó hún geri smásnúninga hér innan bæjar,“ ansaði Ranka, „enda er hún enginn bógur til þess, — ekki ennþá. En vonandi lagast þetta með timanum,“ bætti hún við. „Henni er alveg óhætt að fara að drauja sér heim. Búin að hvíla sig nóg, held ég, enda ekki að sjá, að mikið sé að henni. Feit og pattaraleg af iðjuleysinu," svaraði Fanney. Ragnheiður horfði hissa á nágrannakonu sína um stund og svaraði ekki strax. „Þú gerir þér vonandi ljóst, að hún hefur legið hér slös- >uð,“ sagði hún. „Ég þarf ábyggilega ekki að kynna þann, sem valdur er að verknaðinum, því sjálfsagt veiztu manna bezt deili á honum. Einhverjum hefði nú dottið í hug að hringja og spyrjast fyrir um líðan hennar eða þá að skreppa hingað. Ekki er svo langt milli bæjanna. Nei. Ekki svo mikið sem hósti eða stuna hefur heyrst frá Hól þennan tíma. Það sannar best, að samviskan er ekki sem hreinust.“ „Ég kom ekki hingað í dag til þess að munnhöggvast við geðbilað fólk, því það ertu, að halda því fram, að mínir krakkar hafi slasað þetta fífl. Hún getur bara komið heim, því þar á hún að vera. Henni var komið fyrir hjá okkur, en ekki hér. Hún getur tekið snúninga af fólkinu. Þórður hefur orðið að sækja kýrnar og svoleiðis, síðan hún fór hingað.“ „Hissa er ég á bíræfni þinni. Heldur þú virkilega, að einhver trúi þessari vitleysu?“ spurði Ranka. „Það sáu líka allir, er viðstaddir voru, að Þórður réðist á hana og mis- þyrmdi henni.“ Rétt í þessu renndi læknirinn heim að dyrunum og gekk inn að vanda. Honum brá sýnilega, er hann sá, hver kom- inn var. „Er hún komin til að sækja Sóley?“ hvíslaði hann að Rönku. „Það skilst mér,“ svaraði hún, „en ég fæ ekki séð, að hún eigi nokkurt erindi þangað strax.“ Hann var óvanalega lengi að athuga sjúklinginn í þetta sinn. Ranka heyrði, að þau töluðu eitthvað saman, en greindi ekki orðaskil. Hún hellti upp á könnuna að nýju og lagði þrenn bollapör á borðið. „Nei, takk. Ég ætla ekki að drekka kaffi hér,“ sagði Fanney og setti upp merkissvip. „Þér er það velkomið, ef þú vilt, en hins vegar var enginn farinn að bjóða þér það. Ég ætlaði honum Bensa þennan bolla,“ ansaði Ranka tómlátlega. „Jæja. Hvar er stelpan? Ég er að fara. Hún kemur með mér,“ og Fanney stóð á fætur. Hún sneri sér næst að lækninum, sem kominn var fram, og spurði smjaðurslega, hvort Sóley væri ekki vinnufær. „Vinnufær? Hvað eigið þér við?“ spurði hann. „Ég á við svona venjulega snúninga innan bæjar,“ svar- aði Hólsfrúin og kveikti sér í sigarettu. Bjarni læknir svaraði henni ekki strax og virtist vera að hugsa málið, en svo fór hann að hlæja. „Já, því ekki það? Svona létta smásnúninga. Já, já. Við skulum reyna. Ekkert gerir það til. En hún verður að vera tilbúin að fara í rannsókn eftir tvo daga. Ég hef ekki að- stöðu eða tæki til að framkvæma myndatökur,“ sagði hann. Sóley kallaði Rönku á eintal, áður en hún fór. „Ég verð ekki nema þrjá daga enn á Hól, enda er það mér nóg — og reyndar fyrir alla. Ég hefði helzt ekki viljað fara þangað aftur, en ég kemst ekki hjá því. Fanney er slæm manneskja og Þórður líka. Þau eru fantar. Það verður Jón gamli, sem bjargar mér.“ Svo féll hún grátandi í faðm Rönku. „Sóley mín. Ég veit, að þú ert gædd hæfileikum, sem fáum eru gefnir, og sérð fyrir það, sem á eftir að koma fram. Slíku verður ekki afstýrt — það geri ég mér ljóst —, en fólk lítur á þig sem eitthvert viðundur og álítur, að þú sér bara að ljúga þessu til að vekja á þér athygli, — segir þig heimskingja og allt þar fram eftirgötunum. Það áttar sig ekki á, að hér er um raunveruleika að ræða. Það er gert gys með svona lagað og hlegið að þeim einstaklingum, er hafa eitthvað fram yfir fjöldann. 104 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.