Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 32

Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 32
Umsagnir um bækur Merkilegasta æfiminningabók síðari ára Einar Magnússon: ÚR DAGBÓKUM EINARS MAGG. Rvík. 1984. Almenna bókafélagið. Það er almæli, að Einar Magnússon rektor eigi flesta nemendur núlifandi íslendinga. Kannski er það orðum aukið, en þó er það óumdeilt að í nær hálfa öld var hann einn athafnasamasti kennari landsins, allt frá því að hann hóf kennslu sem stunda- kennari í M.R. 22 ára 1922 til þess hann lét af kennslu sem rektor sama skóla 1970, þá sjötugur að aldri, en auk þess kenndi hann við ýmsa fleiri skóla og stundaði heima- kennslu. Starfsorku hans virtust engin takmörk sett, og undruðumst við starfs- bræður hans og öfunduðum hann kannski dálítið af dugnaðinum. En Einari voru heldur engin takmörk sett, því að auk kennslunnar átti hann mörg tímafrek hugðarefni, sem hann sinnti af sama áhuga og öðru. En raunar hverfur öll undrun þegar vér lesum þessa bók, sem er dagbækur hans frá fermingardegi til haustsins 1922. Þær gefa skýra mynd af hver töggur var í stráknum þegar á ungl- ingsárunum, og hann var hvorttveggja í senn ötull og ókvalráður, og sigraðist á ótrúlegum erfiðleikum. Fyrri hlutinn fjallar einkum um skólaár höfundar, og er hann um margt athyglisverður, þótt ein- ungis sé um stuttorðar dagbækur að ræða. Lesandinn kynnist höfundi í skóla, þar sem hann var í hópi fremstu námsmanna, en þó tilbúinn í allskonar hrekki og gam- anleiki, en hins vegar er minna um skóla- lífið í heild en mátt hefði vænta. Aftur á móti rekur höf. allnákvæmlega, hvernig skólapiltar höfðu öll spjót úti til að afla sé sumaratvinnu, og hann er í kaupavinnu, á sjó, í síld á Siglufirði og fer gangandi frá Akureyri til Reykjavíkur, til að spara far- areyri, því að hvern eyri varð að spara, sem auðið var. f látlausum dagbókarbrot- um sýnir hann ljóslega, hversu efnalausir skólapiltar fengu staðist námskostnað með handafla sínum einum saman og af- sannar þá margþvældu þjóðsögu, að ein- ungis efnamönnum hefði verið fært að stunda skólanám. Þeir brutust í gegn eins og Einar, og jafnvel við enn verri fjár- hagsástæður. í síðari hluta bókarinnar segir frá því hversu útþráin rekur hann út í lönd eftir eins árs háskólanám, og hvernig hann ferðast félaus suður um Evrópu og allt austur í Miklagarð og Rúmeníu. Sú saga er spennandi og hvergi kynnist lesandinn Einari jafnvel. Ég held enginn stúdent á þeim árum hefði leikið þá ferð eftir, og því síður mundi það gerast nú. Æfintýrin, sem hann ratar í voru mörg og einu sinni munaði mjóu að ítölsku fasistarnir skytu hann, en skýr hugsun og snarræði bjargaði honum. En þó frásögnin sé skemmtileg, er meira um vert að kynnast manninum sjálfum, sem aldrei bregðast úrræði, og lætur sig ekki muna um að fara gangandi langar leiðir, þræla sem háseti á skipum og liggja oft úti og svelta heilu hungri dögum saman. En honum bregst aldrei traustið á sjálfum sér og innileg Guðstrú, því að þegar frá bernsku er hann sann- trúaður. Af öllum þeim mörgu sjálfsæfi- sögum og minningabókum, sem út hafa komið á síðustu árum þykja mér dagbæk- ur Einars Magnússonar merkilegastar og mestur fengur í þeim. Eiríkur Hreinn Finnbogason hefir búið bókina til prent- unar af alúð og nærfærni og skrifað stutta og glögga greinargerð um höfundinn. Kvæðin rísa hærra við hvem lestur Kristján Karlsson: KVÆÐI 84. Rvík 1984. Almenna bókafélagið. Ég veit ekki hvort um nýjan tón er að ræða í þessari fjórðu ljóðabók Kristjáns Karls- sonar, en hún orkar meira á mig en hinar fyrri, og ég skil nú betur en fyrr hin eldri ummæli hans að „kvæði sé hús, sem hreyfist og rísi upp af pappírnum af eigin rammleik“. Það gera þessi nýju kvæði hans. Þau rísa í fangið á lesandanum, kyrr og hljóðlát en þó á hreyfingu, ef svo má að orði kveða. Ég hefi blaðað nokkrum sinnum gegnum bókina og alltaf fundið eitthvað nýtt, sem orkaði á hugann, og ef til vill er ekki hægt að segja meira hrós um kvæði en að þau rísi hærra því betur sem lesandinn kynnist þeim. Ég nefni engin sérstök dæmi en oftast staldra ég við ljóðaflokkinn Guðríður á vori, og litla ljóðið, Dauf fyrirmynd. Afbragðs þýðingar á sígildum verkum William Shakespeare: LEIKRIT, Ill.bindi. Rvik 1984. Almenna bókafélagið. í þessu þriðja bindi Shakespeares leikrita eru ritin: Rómeó og Júlía, Hamlet, Lér konungur og Makbeð í hinni nýju, snjöllu þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Öll hafa þau að vísu verið þýdd áður á íslensku af hinum gömlu snillingum Steingrími Thorsteinssyni, sem þýddi Lé konung og síra Matthíasi, sem þýddi hin þrjú. En nýrri öld hæfir ný þýðing hinna sígildu verka, og þótt vér ef til vill söknum ein- hvers úr gömlu þýðingunum, eru hinar nýju vissulega munntamari til meðferðar á leiksviði og í takt við nýjan tíma. Og ekki rýrir það orðstír gömlu mannanna þótt nýr maður komi fram jafnsnjall fyrir nú- tímann og þeir voru fyrir hið liðna. Ég veit ekki, hversu margir lesa rit Shakespeares og er ekki ugglaus um að þeir séu færri en skyldi, og er það miður, því að alltaf stendur hann óhagganlegur yfir tísku og dægurþras, og málið á þýðingu Helga er hverjum manni yndisauki. „Höll Þymirósu44? ÁRBÓK AKUREYRAR. 4. árg. Ritstjóri Ólafur H. Torfason. Bókaforlag Odds Björnssonar. Ak. 1984. Þá er Árbókin fjögra ára gömul og því í rauninni búin að slita bamsskónum og ætti eftirleiðis að verða fastur liður í bæj- 108 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.