Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 2
Skammdegismyrkrið grúfir yfir. Þá verður oss flestum ósjálfrátt að hverfa á vit vors og sumars, setjast hjá sum- argleðinni eins og skáldið segir, og að þessi sinni ætla ég að rifja upp minn- ingu frá síðasta sumri, í stað þess að lesa jólasögu eða hugvekju. Til eru þeir staðir, sem eiga ein- hverja helgi í löngu liðnum minning- um og atburðum. Til hinna miklu helgistaða leituðu pílagrímar kirkj- unnar þúsundum saman um aldaraðir og gera enn. En það eru einnig til smærri staðir, sem laða menn til sín vegna gamalla atvika. Einn sá staður er skógarvarðarhúsið Hjartakershús í Dýraskógi utan við Kaupmannahöfn, og hver er sá, sem komið hefir til Kaupmannahafnar að hann þekki ekki Dyrehaven eða Dýraskóg. Hjartakershúsin eiga aðeins eina minningu í hugum Islendinga, en þar var eitt ástsælasta ljóð íslenskrar tungu sungið í fyrsta sinn seint í júní fyrir rúmlega hálfri annarri öld. Ljóðið „Hvað er svo glatt“, sem síðan hefir hljómað á flestum gleðisamkomum íslendinga, hvar sem þeir hafa verið. Frá námsárum mínum í Höfn hafði ég oft hugsað mér að fara eins konar pílagrímsferð til Hjartakershúsa, en ekki varð það þó fyrri en á hvítasunn- unni s.l. vor í hópi fárra góðra vina. Ekki er mér kunnugt um, hversu oft íslenskir Hafnarstúdentar hafa lagt leiðir sínar til gleðifunda út í Hjarta- kershús, en víst er að þar héldu þeir nokkrum félögum sínum, sem voru að fara heim til fslands kveðjusamsæti 27. júní 1835, og var „Hvað er svo glatt“ sungið þá í fyrsta sinn, og þar var höf- undurinn sjálfur Jónas Hallgrímsson hrókur alls fagnaðar. Kvæðið nefnir hann ósköp látlaust Vísur fslendinga, og það hefir með öllum sanni verið vísur íslendinga í hálfa aðra öld, enda þótt hann hafi vart grunað það þá. Og alltaf á það sama hljómgrunninn í Sólskinsblettur í heiði „hjörtum, sem að geta fundið til“, svo listilega hafa hljómar hörpu hans snortið oss öll unga og gamla. Þar er svo haglega blandað saman hinum einlæga fögnuði góðra vina fundar, en þó um leið söknuðinum vegna þess, „að senn í vinahópinn komi skörð, þótt gleðin skíni enn á vonarhýrri brá“. Hópurinn á Hafnarslóð er að þynnast. En brottfarendunum fylgja heillaósk- ir, heim til fósturjarðarinnar, sem þeir allir þrá og sakna í ysi og erli stór- borgarinnar. Skyldi annars ekki orðið „landi“ sama og íslendingur vera orð- ið til þá og Jónas sjálfur búið það ósjálfrátt til. Úr því geta orðabókar- menn líklega skorið, og gaman væri, ef sú tilgáta reyndist rétt. En mitt í söknuðinum minnir Jónas menn á sólskinsblettina í heiði og setjast þar til að gleðja sig og gleyma söknuðinum. En varla hefir hann grunað þá, að hann væri að skapa einn sólskinsblett- inn í íslenskum bókmenntum og því síður hve margar kynslóðir ættu eftir að njóta hans. Hjartakershús eru bústaður yfir- skyttu og skógarvarðar í Dýraskógi, og hafa verið svo frá öndverðu. En fyrr- um var þar einnig veitingastaður, og þess vegna leituðu íslendingarnir þangað með kveðjuhóf sitt 1835, og vafalaust hefir svo verið oftar, þótt nú sé löngu gleymt. En hverfum aftur að hvítasunnunni og pílagrímsferðinni þangað 1986. Við fundum staðinn eftir nokkra leit í norðausturjaðri skógarins, sem ekki nær nú alveg upp að húsinu. Heldur opnast þar grasslétta inn í skóginn, þar sem hirtir og dádýr una oft á beit, þótt ekki væri svo að þessu sinni. Skógurinn var eins og hann getur fegurstur verið, nýlaufgaður, og aldrei er beykilaufið fegurra og fíngerðara, silkimjúkt, silf- urhært og gljáandi, og manni þykir, sem það hljóti að vera svo viðkvæmt að varla megi snerta það, svo að það skemmist ekki. Veðrið hafði verið þungbúið um morguninn, en þegar við komum á staðinn birti í lofti, rétt eins og skógurinn væri að bjóða okkur velkomin með glampandi vorsólinni. Húsið sjálft, sem reist er fyrir 1800, er lágveggjað með bröttu risi og stráþaki, sem minnir ofurlítið á torfþökin á ís- landi. Við göngum inn á hlaðið, sem lagt er hnullungagrjóti, steinarnir eru núnir af aldagömlu sliti, og ef til vill eru það sömu steinarnir, sem íslensku stúdentarnir gengu á 1835. Við ætl- uðum ekki að ónáða heimafólk, en í því við vorum að snúa brott kom góð- látlegur maður út og spurðist fyrir um, hvaða fuglar væru þarna á ferð. Við sögðum honum í stuttu máli, hvernig á ferð okkar stæði og rauluðum fyrir hann „Hvað er svo glatt“ þar á hlað- inu. En um leið og við erum að kveðja skógarvörðinn, því að þetta var hann, kom húsfreyjan fram í dyrnar og hafði hún sýnilega heyrt samtal okkar og bauð hún okkur að koma inn og skoða húsið, sem að herbergjaskipan mætti heita óbreytt frá öndverðu, og við síð- ustu aðgerð hefði verið leituð uppi elsta málningin á herbergjunum og endurnýjuð í sama lit. Eldhúsið væri óbreytt, með ævagamalli stórri elda- vél, og stór stofa, sem er inn af því væri veitingastofan gamla, nógu stór fyrir minni háttar hóf og veislur, en annars sagði húsbóndi okkur, að á sumrin hefðu veitingar oft farið fram úti í garðinum, fyrir opnum skóginum. Sögðu þau hjón okkur sögu hússins, en þegar komið var inn í stofuna féll mest í hlut samferðafólks míns að ræða við þau. Ég hreinlega gleymdi mér, og fannst ég horfinn hálfa aðra öld aftur í tímann. Mér þótti sem ég stæði nær Jónasi Hallgrímssyni en nokkru sinni fyrr, og hafði þó oft komið að Hrauni og Steinsstöðum og séð með eigin augum, með hve listrænni nákvæmni 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.