Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 7
HUGGUN HARMI GEGN Eú hefur mikið misst og miklar fyrir þér að horfa alltaf á hið auða, stóra rúm. Þú grætur genginn vin og gleymir þeim, sem er. En hugsa þú um þá og þeirra dapra geð, sem aldrei áttu neitt og ekkert gátu misst. Og því er þakkar vert, hve þér var mikið léð. VIÐ GLUGGANN ✓ Eg dró mig í hlé þegar heilsan varð tæp. Og brugðið getur enn til beggja vona. - Nú bíð ég og horfi á himin og jörð í hljóðri spurn: var öll þessi fegurð hér áður? TÁKN Dimm eru ský og dapur hugur þinn, drúpir hvert blóm og fáni í hálfa stöng. Hljómur frá kirkju- klukku til þín berst, klökkur og sár og nístir hjartaþitt. Heyrist að nýju eftir eina stund ómur frá sömu klukku, mildur tónn. Dregur þú fánann upp, og í þann mund opnast á himni gluggi fagurblár. - Vorfuglar syngja, blómin breiða út blöðin sín öll á móti hlýrri sól. Lifir og þróast allt, sem eitt sinn var. Upp rís hvert líf, sem slegið er í hel. Heima er bezt 419

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.