Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1986, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 02.10.1986, Blaðsíða 23
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR SIDNEY SHELDON: í TVÍSÝNUM LEIK („Master of the game“) Metsölubók í tveim bindum. Enginn bandarískur rithöfundur hefur skrifað fleiri metsölubækur en Sidney Sheldon. Marg- ir kannast við myndböndin eftir þessari bók. sem voru vinsælasta efnið á videóleigum hér- lendis árið 1984. I. BINDI: Bók 437 HEB-verð kr. 630,00 II. BINDI: Bók 447 HEB-verð kr. 630,00 SIDNEY SHELDON: EF DAGUR RÍS Hluti af söguþrœðinum: Tracy Whitney er tvítug, ólétt, háttsett í banka og ætlar að gift- ast ríkum syni úr einni elstu ætt Bandaríkj- anna. Henni er þá tilkynnt að móðir hennar hafi framið sjálfsmorð. Maðurinn sem kom henni til þess ræðst nú að Tracy. Hún sleppur naumlega við nauðgun, er ákærð fyrir þjófnað og morðtilraun og dæmd í fimmtán ára fang- elsi. Tracy ákveður að hefna sín grimmilega á illvirkjunum, og beitir til þess brögðum sem koma henni í koll. Helstu vopn hennar eru fegurðin og gáfurnar. Hún þeytist milli New Orleans og London, frá París til Biarritz, frá Madrid til Amsterdam. Og hittir mann sem hrífur hana, því hann á líka litríkan feril að baki. Bók 456 HEB-verð kr. 780,00 KEN FOLLETT: NÁLARAUGA Petta er spennandi saga úr síðustu heimsstyrj- öld, en jafnframt óvenjulegt ástarævintýri. Sagan fjallar um þýskan njósnara sem hefur dulnefnið ,,Nálin“ vegna aðalvopns hans, flugbeitts rýtings. Segir frá æðislegum eltinga- leik leyniþjónustu Breta við hann og tvinnast líf ungrar stúlku á óvæntan hátt í atburðarás- ina. Bók 408 HEB-verð kr. 300,00 KEN FOLLETT: ÞRENNING I þessari bók er reynt að ímynda sér raunveru- lega ástæðu þess að forseti Egyptalands, An- war Sadat, sótti heim sína fornu fjandmenn í Jerúsalem. Hér er sagt frá einhverju furðu- legasta njósnamáli síðustu áratuga og best geymda leyndarmáli aldarinnar. Arið er 1968. Leyniþjónusta ísraels hefur komist að því um seinan að Egyptar, með aðstoð Sovétmanna, munu eignast kjarnorkusprengju innan nok- kurra mánaða - sem þýddi ótímabæran endi á tilveru hinnar ungu þjóðar. Bók 415 HEB-verð kr. 300,00 KEN FOLLETT: LYKILLINN AÐ REBEKKU Þetta er hörkuspennandi njósnasaga úr seinni heimssyrjöldinni. Sögusviðið er Kaíró árið 1942. Rommel sækir að höfuðborg Egypta- lands með eyðimerkurher sinn og vinnur hvern sigurinn á fætur öðrum. Honum tekst hvað eftir annað að koma óvinum sínum að óvörum og það er eins og hann viti um allar þeirra ráðagerðir. Petta er ekki bara hörku- spennandi frásögn um baráttuna í Kaíró, held- ur einnig, og ekki síður, mögnuð ástarsaga. Ken Follett heldur okkur í spennu allt til síð- ustu blaðsíðu. Það tókst honum einnig í fyrri bókum sínum, Nálarauga og Þrenningu. Bók 425 HEB-verð kr. 300,00 KEN FOLLETT: MAÐURINN FRÁ ST. PÉTURSBORG Rússneski stjórnleysinginn Felix í Englandi 1914. Æsispennandi viðskipti við rússneska og breska aðalsmenn, fátæklinga, kvenréttinda- konur og lögregluna. Örlög sögupersónanna eru kynngimögnuð og mannlegar ástríður leika lausum hala. Ken Follett er einn mest lesni reyfarahöfundur okkar tíma. Bók 431 HEB-verð kr. 350,00 ARTHUR HAILEY: BÍLABORGIN Hér er flett rækilega ofan af baktjaldamakki forstjóra, verkalýðsforingja og óprúttinna bílasala. Við kynnumst einnig einka- og ástar- líft sögupersónanna náið. Arthur Hailey er þeim hæfileikum gæddur að geta gert sögur sínar svo spennandi að lesandinn á erfitt með að leggja þær frá sér fyrr en þær eru lesnar til enda. Bók 339 HEB-verð kr. 300,00 ARTHUR HAILEY: SKAMMHLAUP Raforkuskortur vofir yfir í Bandaríkjunum, umhverfisverndarmenn fara á stjá - en blað- amenn, lögregla, vísindamenn og hryðjuverk- amenn koma við sögu í þessari raunsæju spennusögu. Bók 448 HEB-verð kr. 680,00 ARTHUR HAILEY: STERK LYF Arthur Hailey hafði lýst því yfir að hann væri hættur að skrifa skáldsögur. Þá veiktist hann alvarlega og kynntist sjúkrahúsum, læknum og lyfjameðferð að eigin raun. Þessi reynsla hafði þau áhrif á hann, aðspennusagan „Sterk lyf“ varð til. Sagan gerist á árunum 1950 til samt- ímans. Hún segir frá lyfjamisnotkun lækna, hræsni sumra bandarískra þingmanna, ár- vökrum varðhundum neytendasamtakanna og glöggum, breskum vísindamönnum. Bók 455 HEB-verð kr. 780,00 Bókaskrá 23

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.