Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1986, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 02.10.1986, Blaðsíða 24
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR FRANK G. SLAUGHTER: DYR DAUÐANS Þetta er sagan um alræmda hryðjuverkakonu, illa anda og myrk öfl. Hér fer höfundurinn á svið dulrænnar spennu svo sumum þykir nóg um. En þeir sem vilja virkilega spennandi bók ættu ekki að láta þessa fara fram hjá sér. Bók 411 HEB-verð kr. 300,00 FRANK G. SLAUGHTER: LÆKNAÞING Frank G. Slaughter er víðfrægur fyrir sínar skemmtilega skrifuðu og spennandi skáld- sögur. Hann starfaði sjálfur um margra ára skeið sem skurðlæknir, enda er hann öllum hnútum kunnugur og fer með lesandann bak við tjöldin þar sem ýmislegt er að gerast, sem almenningur hefurekki mikla hugmynd um. Bók 315 HEB-verð kr. 300,00 JAMES BARWICK: SKUGGI ÚLFSINS Að kvöldi hins 10. maí 1941 stökk annar valdamesti maður Hitlers Þýskalands, Rúdolf Hess, í fallhlíf yfir Skotlandi. Við lendingu fót- brotnaði hann og hélt þá samferðamaður hans, Alfred Horn, áfram ætlunarverki Hess, að komast til Bandaríkjanna. Hin stórkostlegu ævintýri Horns í Bretlandi og Bandaríkjunum fá lesandann til að standa á öndinni af spenn- ingi. Þetta er hrollvekjandi saga af mann- aveiðum og miklum áhættum. Frá sögulegu sjónarmiði eru getgátur bókarinnar jafn furðulegar og ægilegar eins og raunveru- leikinn. Bók 416 HEB-verð kr. 300,00 ERIC KNIGHT: ÞAU MÆTTUST í MYRKRI Hrífandi ástarsaga, sem gerist á síðari heims- styrjaldarárunum. 294 bls. Bók 109 HEB-verð kr. 250,00 MIKA WALTARI: FÖRUSVEINNINN I-II Þetta er ævintýraleg og spennandi skáldsaga um ástir og tryggðarof, kvennabúr og geld- inga, orrustur og stjórnmálabrellur, sjóræni- ngja og krossferðariddara. 386 bls. Bók 64 HEB-verð kr. 250,00 CLAUDE HAUGHTON: SAGA OG SEX LESENDUR Ein af sérkennilegustu bókum höfundar, bæði að efni og byggingu. Séra Sveinn Víkingur þýddi. 414 bls. Bók 281 HEB-verð kr. 250,00 E. M. CORDER: HJARTARBANINN Þessi einstæða saga er byggð á kvikmyndinni The Deer Hunter, Hjartarbaninn, sem sýnd var á Islandi fyrir skömmu síðan og hlaut metaðsókn. Sagan fjallar um örlög ungra manna, sem rífa sig upp úr hversdagsleika heimabyggðar sinnar og í hildarleik stríðsins í Víetnam. Einkunnarorð bókarinnar er til- vitnun í Hemingway: ,,Engar veiðar jafnast á við mannaveiðar, og þeim sem vcitt hafa vopnaða menn um langa hríð og notið þess, þykir þaðan í frá allt annað lítils vert.“ Þýð- andi bókarinnar er Erlingur Sigurðarson. Bók 900 HEB-verð kr. 300,00 FRANCOISE SAGAN: SUMARÁST (Bonjour Tristesse). Fyrsta bók skáldkonunnar, sem gerði hana á svipstundu heimsfræga, og þá var hún aðeins 18 ára gömul. Bókin hlaut frönsku gagnrýn- endaverðlaunin, Grand prix de critiques, og hefur selst í milljónum eintaka víðs vegar um heim síðan hún kom út. 160 bls. Bók 24 HEB-verð kr. 250,00 FRANCOISE SAGAN: DÁIÐ ÞÉR BRAHMS Viðkvæm og töfrandi ástarsaga. Hér slær Francoise Sagan á nýja strengi. Thor Vil- hjálmsson rithöfundur þýddi. 180 bls. Bók 65 HEB-verð kr. 250,00 FREDERIQUE HÉBRARD: SEPTEMBERMÁNUÐUR Þetta er heillandi nútímaskáldsaga, sem gerist í París. Bókin hlaut Craven-bókmenntaverð- launin í Frakklandi árið 1957. 166 bls. Bók 49 HEB-verð kr. 250 J. W. BROWN: SCOTLAND YARD Afarspennandi leynilögreglusaga. Bók 131 HEB-verð kr. 200,00 JAMES HILTON: Á VÍGASLÓÐ Höfundur þessarar bókar er löngu víðfrægur fyrir skáldsögur sínar, sem hafa verið gefnar út og endurprentaðar allt að fjörtíu sinnum, s.s. ,,I leit að liðinni ævi“. Sömuleiðis hafa nokkrar þeirra verið kvikmyndaðar. Allar bækur Hiltons eru skrifaðar af mikilli hlýju og mannkærleika, en eru auk þess afar spenn- andi og hugarfluginu gefinn laus taumur. Bók 112 HEB-verð kr. 200,00 E. PHILIP OPPENHEIM: HIMNASTIGINN Sagan segir frá enskum kaupsýslumanni, sem varð gjaldþrota á því að leggja fé í olíufélag með bróður sínum. Síðan fannst olía í landar- eign þeirra og verða þeir þá stórríkir. En inn í frásögnina fléttast ástarævintýri. 220 bls. Bók 133 HEB-verð kr. 250,00 WILLY BREINHOLST: ELSKAÐU NÁUNGANN Saga um kynþokkaskáld. Bækur eftir Willy Breinholst eru nú gefnar út í öllum löndum Vestur-Evrópu og er það ekki nein tilviljun. Skáldsagan Elskaðu náungann er svæsin ádeila á kynóradýrkun og klámbók- menntir nútímans, auk þess að vera sennilega skemmtilegasta bók, sem Willy Breinholst hefur nokkru sinni skrifað. Bók 264 HEB-verð kr. 250,00 SIGURD HOEL: UPPGJÖRIÐ Hér er á ferðinni mikilsháttar skáldskapur, sálfræðileg og siðferðisleg úttekt. Hér er fjall- að um ástir, uppgjör og baráttu. Spennan er mikil og lesandinn verður undrandi þegar hún leysist í bókarlok. Bók 965 HEB-verð kr. 250,00 24 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.