Heima er bezt - 02.10.1986, Qupperneq 30
pórarinn
Mio®n^r
frá
t PÍrhöfn
Þórarinn Elís Jónsson:
Minningar frá Leirhöfti
Höfundur þessarar bókar réðst sem smali að stórbýlinu Leirhöfn á
Sléttu árið 1915, til Helgu Sæmundsdóttur húsfreyju sem þar bjó
ásamt sonum sínum. Hann ólst þar upp á þroskaárum sínum og tók
miklu ástfóstri við heimilisfólkið, enda er bókin tileinkuð Helgu Sæ-
mundsdóttur og sonum hennar.
Höfundur rekur hér minningar sínar frá þessum árum, enda hefur
honum orðið þetta tímabil ævi sinnar ógleymanlegt. Þar varð hann
fyrir lífsreynslu sem gjörbreytti lífsferli hans. Fjöldi fólks kemur við
sögu og frásögnin er gædd nærfærni og hlýju.
Bók 968 HEB-verð kr. 780,00
Skagfirzkar æviskrár
1850-1890, IV. bindi
Stefán Jónsson, Höskuldsstöðum
Ritsafn
bindi
Sögufélag Skagfirðinga vinnur nú að samningu
og útgáfu á æviskrám skagfirzkra búenda frá
tímabilinu 1850-1890. í þessu bindi eru 180
þættir um bændur og húsfreyjur, þar sem raktar
eru ættir þeirra og getið barna. Auk þess er tal-
inn æviferill, búseta, efnahagur og fjölmargar
aðrar upplýsingar, eftir því sem heimildir greina.
Bókin er 412 bls. með ítarlegri nafna- og heim-
ildaskrá.
Sagnaþættir II
I þriðja bindi ritsafns Stefáns á Höskuldsstöðum
birtast þrír alllangir sagnaþættir. Sögusviðið er
Blönduhlíð, Austurdalur og Tungusveit.
Þetta er fróðleg bók fyrir þá sem unna þjóð-
legum fræðum og persónusögu.
Bókin er nokkuð á þriðja hundrað blaðsíður,
með nafnaskrá og prýdd fjölda mynda.
Bók 920
HEB-verð kr. 1.800,00
Bók 918
HEB-verð kr. 1.200,00
Vegamót
Ný ljóðabók eftir
Valtý Guðmundsson á Sandi
I þessari nýju ljóðabók eru
82 ljóð í hefðbundnum stíl.
Bókin hefst á ljóðinu Vegamót
Bók 969
HEB-verð kr. 780,00
Á vegamótum veit eg ekki lengur
hvað við mun taka næsta æfidag,
en tíminn áfram sína götu gengur
og getur eflaust komið þessu í lag,
því stefnu rétta reyni eg að taka —
Þó röksemdirnar hvarfli til og frá
— og neikvæð öfl samt beri allt til baka
sem betri vitund reynir oss að tjá.
Fylgjur hausts í förumanna klæðum
feta hring um sérhvert jarðarbarn,
líkt og hafi gömlum skinnaskræðum
skapanornir varpað út á hjarn.
Greina má þar lífsins sögu sanna
í sorg og gleði yrkja þagnarljóð
meðan laufblöð fjúka milli fanna
föl og visin, þreytt og göngumóð.
30 Bókaskrá