Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1992, Page 5

Heima er bezt - 02.10.1992, Page 5
áttu, jafnvel þótt því tækist að hefja sig yfir erfiðleikana og sjá þá síðar á ævinni frá öðru sjónar- horni.” Bók 10 HEB-verð kr. 2105 ÖRN HELGASON: KÓNG VIUUM VIÐ HAFA í þessari bók er upplýst eitt af mestu feimnismálum íslenskrar sögu á þessari öld. Þrír kunnir ís- lendingar, þeir Jón Leifs, Guð- mundur Kamban og Kristján Al- bertsson, fóru á fund þýska prins- ins Friedrich Christian Zu Schaumburg Lippe og óskuðu eft- ir því við hann að hann tæki við konungdómi á íslandi. Prinsinn starfaði í áróðursmálaráðuneyti Göbbels. Hverjir stóðu að baki þeirra félaga? Af hverju vill utan- ríkisráðuneyti íslands ekki leyfa aðgang að skjölum þeim er skýra frá þessum ráðagerðum? Þetta er forvitnileg bók. Bókll HEB-verðkr. 2115 BRAGISIGURJÓNSSON: ÞEIR LÉTU EKKI DEIGAN SÍGA Hér er sagt frá nokkrum forystu- mönnum í síldarútvegi á árunum 1880-1968. Þeir sem sagt er frá eru: Jakob V. Hafstein, Eggert Laxdal, Snorri Jónsson, Rögnvaldur Snorrason, Ásgeir Pétursson, Björn Líndal, Valtýr Þorsteinsson, Ottó Tulinius, Guðmundur Péturs- son, Anton Jónsson og Ingvar Guðjónsson. Fróðleg bók um merkilegt tímabil í atvinnusögu landsins. Bók 13 HEB-verð kr. 2540 NÝJAR BÆKUR PÁLL SIGURÐSSON, PRÓFESSOR: SVIPMYNDIR ÚR RÉTTARSÖGU Þessi bók hefur að geyma 9 rit- gerðir um margvísleg réttarsögu- leg efni. Sumar birtast hér í fyrsta skipti á prenti, en aðrar sem hafa birst áður í endurskoðaðri mynd. M.a. Lagastefnur gegn látnum mönnum, Þegar Bjarni sýslumað- ur Halldórsson stefndi Lafrantz amtmanni dauðum. Brúðarrán og brúðarkaup, Þegar Oddur V. Gíslason „rændi” brúði sinni. Bók 14 HEB-verð kr. 2540 JÓNAS THORDARSON: VESTUR-ÍSLENSKAR ÆVISKRÁR VI Þetta er sjötta og lokabindi þessa mikla verks. Þetta ritverk er lyk- illinn að upplýsingum um frændur og frænkur og geymir þess utan merkar heimildir um þá sögu sem landar okkar hafa skapað í Vest- urheimi. Auk þess er þetta ritsafn mikilvægt framlag til íslenskrar ættfræði. Bók 16 HEB-verð kr. 2540 NÁTTÚRULÆKNIR HEIMILANNA AÐALRITSTJ.: DR. ANDREWSTANWAY HÖFUNDAR: ÝMSIR Bókin er skrifuð með aðstoð á annað hundrað sérfræðinga. Nátt- úrulæknir heimilanna er alfræði- legur vegvísir til sjálfshjálpar með óskaðlegum náttúrulegum úrræð- um og leiðbeiningum til viðhalds alhliða heilbrigði, ómetanlegt at- hvarf þeim sem hafa áhyggjur af aukaverkunum nútímalyfja og þeirra er óska að bera sjálfir á- byrgð á heilsu sinni. I bókinni eru yfir 1000 náttúrulegir læknisdóm- ar. Bók 17 HEB-verð kr. 3390 MARJORIE BAMEY, CHRISTOPHER GREY- WILSON: FLÓRA ÍSLANDS OG NORÐUR EVRÓPU Skýringar og teikningar af meira en 2400 jurtum. Óvenjulega falleg og fróðleg bók, á sjötta hundrað blaðsíður. Frábær gæði mynda, spássíuskýringar og skírleiki text- ans, allt auðveldar þetta hverjum skoðanda að greina plöntur af ör- yggi. Jafnframt er þetta jurta- fræði, kennslutæki og uppsláttar- rit sem endurspeglar þróunina til nútímavinnubragða í greiningu og nafngift plantna sem þrífast villtar íheimahögum. Hún Qallar um all- ar tegundir, innlendar, aðfluttar, útbreiddar og staðbundnar, norð- an Alpafjalla, að undanskildum grösum, sefi, stör og elftingum. í rauninni er þetta hin fullkomn- asta og ítarlegasta litmyndaflóra sem gefin hefur verið út í Norður- Evrópu. Bók 18 HEB-verð kr. 4240 Bókciskrá

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.