Heima er bezt - 02.10.1992, Qupperneq 14
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
HÁSKI Á
HVERAVÖLLUM
Einhver undarlegur dularhjúpur
var yfir afdrifum Kristínar, blaða-
konunnar fögru. Blaðakonan
Marta fer til Hveravalla, þar sem
slysið átti sér stað. Þar bíða henn-
ar margs kyns hættur og háski,
ekki einungis af mannavöldum,
heldur einnig af hjarta hennar
sjálfrar. Aþingismaðurinn Friðrik
kemur inn í líf hennar. Það er ást
við fyrstu sýn, en gallinn er sá að
Friðrik á konu, Maríu, sem ekki
er á því að sleppa manni sínum
fyrirhafnarlaust.
Bók 1025 HEB-verð kr. 350
BIRGITTA HALLDÓRSDÓTTIR:
í GREIPUM
ELDS OG ÓTTA
Þetta er fjórða skáldsaga Birgittu
H. Halldórsdóttur. Sögusvið bók-
arinnar er við Eyjafjörð. Margar
helstu persónurnar eru kennarar
við skófa í nágrenni Akureyrar, |
þar á meðal Rósa, sem ung að
árum hafði fellt ástir til Halldórs
skólabróður síns og átt með hon-
um soninn Óskar. En þau fengu
ekki lengi að njóta ástar sinnar. i
Síðar áttu þó örlögin eftir að leiða {
þau saman, en áður hafði mikið
vatn runnið til sjávar og atburða-
rásin í lífi Rósu var bæði hröð og
fjölbreytileg. Hugkvæmni og ,
fjörugt ínmyndunarafl höfundar j
nýtur sín með ágætum í þessari J
bók.
Bók 1026 HEB-verð kr. 350
RIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
ÁTTUNDA
FÓRNARLAMBIÐ
Sagan gerist í Reykjavík og á
Vesturlandi. Eins og í fyrri bókum
Birgittu blómstrar ástin hjá sögu-
persónum þessarar bókar, en það
er ekki friðsamlegt eða átakalaust
í kringum á ástarelda. Hvað eftir
annað er lífsdansinn háður á ystu
nöf hins mögulega, þar sem eng-
inn fær séð hvort framundan er líf
eða dauði. Atburðarásin er hröð
og hugmyndaflug höfundar með
ólíkindum.
Bók 1027 HEB-verð kr. 350
BIRGITTA II. HALLDÓRSDÓTTIR:
DAGAR
HEFNDARINNAR
Birgitta Halldórsdóttir hefur þeg-
ar unnið sér sess á íslenskum
bókamarkaði. Þetta er hennar
sjötta bók. Áður eru út komnar:
Inga, Háski á Ilveravöllum, Gættu
þín Helga, í greipum elds og ótta
og Áttunda fórnarlambið. Birgitta
er viðurkennd sem einn helsti
spennubókahöfundur landsins.
174 bls.
Bók 1028 HEB-verð kr. 350
Oj
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
SEKUR FLÝR PÓ
ENGINN ELTI
Birgitta H. Halldórsdóttir er tví-
mælalaust einn fremsti spennu-
sagnahöfundur landsins og sendir
hér frá sér sína sjöundu bók.
Hvers vegna er Bragi kominn að
Sjávarbakka, nýsloppinn af
Hrauninu, eftir að hafa setið inni
fyrir morð? Hver er þessi Viðar
með marglitu augun sem Stella á
svo erfitt með að standast? Stöðug
spenna þar til yfir lýkur, því sekur
flýr þó enginn elti.
Bók 1029 HEB-verð kr. 350
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
MYRKRAVERK
í MIÐBÆNUM
,,Ég er hrædd og ég veit ekki mitt
rjúkandi ráð. Það hafa verið
framin tvö morð, með stuttu milli-
bili, hér í Reykjavík. Morð, sem
aflir telja að séu skýranleg dauðs-
föll. Hið fyrra var haldið að væri
sjáffsvíg en það síðara slys. Ég er
hrædd því að ég veit að morðing-
inn gengur laus og hefur næsta
fórnarlamb í sigtinu. Ég óttast að
áður en yfir lýkur komi röðin að
mér...”
Bók 1030 HEB-verð kr. 750
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
KLÆKIR
KAMELUÓNSINS
Þetta er níunda spennubók höf-
undarins en bækur hennar hafa
allar fengið góðar viðtökur. Á-
nægðir ferðamenn á ferðalagi á
hálendi íslands, í fallegu um-
hverfi, en ekki er allt sem sýnist,
KAMELLJÓNIÐ er á meðal frið-
samra ferðamanna... Spennubók
sem nær tökum á lesandanum.
Bók 1031 HEB-verð kr. 1680
14
Bókaskrá