Heima er bezt - 02.10.1992, Síða 19
ENDURMINNINGAR OG ÆVISÖGUR
sveit á íslandi á fyrri helmingi
þessarar aldar, ástum hans og
lífsbaráttu. Þetta er heillandi sga
hugrekkis, þolgæðis, ástar og
drengskapar. Þetta er 8. bók Jóns
Gísla og fyrsta skáldsaga hans.
Bók 2012 HEB-verð kr. 500
RICHARDT RYEL:
KVEÐJA FRÁ
AKUREYRI
Minningar og Ijósmyndir frá
Akureyri
Richardt Ryel er fæddur á Akur-
eyri árið 1915, fór ungur að fást
við verslunarstörf á Akureyri en
síðar í Reykjavík og Danmörku,
þar sem hann er nú búsettur. Hér
skráir hann minningar sínar frá
Akureyri fram yfir seinni heims-
styrjöld. Frásögn hans er glettin
og hlý og hann lýsir mönnum og
atburðum á lifandi hátt. Bókin er
prýdd íjölda mynda frá gömlu Ak-
ureyri, sem margar eru áður ó-
birtar og gefa þær bókinni veru-
legt gildi. Þessi bók mun ylja
mörgum lesandanum um hjarta-
ræturnar.
Bók 2013 HEB-verð kr. 500
JÓN GÍSLIHÖGNASON:
VINIR í VARPA
Gísli á Læk, eins og hann er jafn-
an nefndur af samferðamönnum
sínum, er roskinn bóndi úr Árnes-
sýslu. í þessari gagnmerku og
skemmtilegu bók rekur hann end-
urminningar sínar frá æsku og
uppvexti á fyrstu áratugum þess-
arar aldar. Ljóslifandi er lýsing
hans á búskaparháttum þess
tíma, samskiptum við menn og
málleysingja í blíðu og stríðu.
Bók 2014 HEB-verð kr. 400
JÓN GÍSLIHÖGNASON:
YSJUR OG
AUSTRÆNA II
í þessu bindi koma enn fleiri frá-
; sagnarmenn til sögunnar og fylla
; myndina af þessari „Heimsbylt- \
ingu í Flóanum,” eins og Björn
' Þorsteinsson sagnfræðiprófessor |
við Háskóla íslands kallaði tíma-
bilið í lofsamlegum ritdómi sínum
um fyrra bindið.
Bók 2015 HEB-verð kr. 500
JÓN GÍSLl HÖGNASON:
GENGNAR LEIÐIR I
Fólkið kemur sjálft til dyranna
eins og það er klætt og leiftrar af
minningabrotunum. Sviðið er vítt,
en merkastar munu þykja frá-
sagnirnar af atvinnu- og búsetu-
þróun á Suðurlandi.
Bók 2016 HEB-verð kr. 800
JÓN GÍSLIHÖGNASON:
GEGNGAR LEIÐIR II
Þetta er sjötta bók höfundarins,
sem hefur getið sér orð fyrir viðtöl
og frásagnir. í bókinni eru sagnir
7 viðmælenda. Bókin er 197 bls.
með mörgum myndum og ítar-
legri nafnaskrá.
Bók 2017 HEB-verð kr. 800
ERLINGUR DAVÍÐSSON,
ritstjóri:
NOI BÁTASMIÐUR
Kristján Nói Kristjánsson var í
daglegu tali nefndur Nói báta-
smiður. Nói bátasmiður hefur
smíðað fleytur af mörgum stærð-
um og gerðum, allt frá jullum og
skektum, árabátum, trillum og
mótorbátum, upp í 140 tonna
fískiskip.
Bók 2018 HEB-verð kr. 600
GUNNAR BJARNASON:
LÍKABÖNG HRINGIR
í þessari bók segir Gunnar
Bjarnason frá ýmsum afskiptum
sínum af málefnum landbúnaðar-
ins. Fyrst og fremst er þetta þó
sagan um eins vetrar skólastjóra-
dvöl hans á Hólum í Hjaltadal,
forsögu þess og eftirmála. Á með-
an Gunnar var skólastjóri Bænda-
skólans á Hólum voru geysilega
mikil blaðaskrif um störf hans
þar, jafnvel svo jaðraði við rógs-
herferð. Endaði það með því að
hann var hrakinn frá störfum af
flokksbróður sínum, Ingólfi Jóns-
syni frá Hellu, þáverandi land-
búnaðarráðherra. Fleiri háttsettir
menn koma hér við sögu og í
þessari bók jafnar Gunnar reikn-
ingana. Hafi einhver haldið að
Gunnar ætlaði að láta þessi mál
liggja í þagnargildi, þá þekkir sá
hinn sami ekki Gunnar Bjarnason.
í krafti mælsku sinnar og sam-
visku svarar Gunnar fyrir sig svo
um munar.
Bók 2019 HEB-verð kr. 400
QD
FRIÐRIK HALLGRÍMSSON:
MARGSLUNGIÐ
MANNLÍF
í þessari bók rekur Friðrik Ilall-
grímsson frá Úlfsstaðakoti í
Skagafirði æviminningar sínar.
Friðrik er stálminnugur þó kom-
inn hafi verið á níræðisaldur þeg-
ar hann skrifaði bókina og frá-
sögn hans er leikandi létt og hann
fer ekki dult með skoðanir sínar á
mönnum og málefnum sinnar
samtíðar.
Bók 2020 HEB-verð kr. 300
Bókaskrá
19