Heima er bezt - 02.10.1992, Side 59
LJÓÐ OG LEIKRIT
hans, er hann gekk inn í helgidóm
hjarta síns og söng eins og líkur
væru að enginn heyrði til.”
Bók 6013 HEB-verð kr. 150
BALDUR EIRÍKSSON
FRÁ DVERGSTÖÐUM:
DVERGMÁL,
LJÓÐ
Lítið mun höfundur hafa fengist
við kveðskap á uppvaxtarárum
sínum, en þegar hann kom til
starfa hjá KEA voru þar starfandi
nokkrir snjallir hagyrðingar og
spéfuglar, sem hvergi spöruðu
yrkingar. Var þar ekki deigum
vært, og vildi hann þá ekki láta
sinn hlut eftir liggja.
Bók 6014 HEB-verð kr. 300
KVÆÐI OG STÖKUR
EYFIRSKUR FRÓÐLEIKUR OG
GAMANMÁL I. BINDI
SAFNAÐ HEFUR INGÓLFUR
GUNNARSSON
í þessari bók eru kynntir fjórtán
þekktir og óþekktir hagyrðingar.
Hugmyndin með útgáfu þessari er
sú að bjarga frá glötun ýmsu því
sem til er í handritum af kvæðum,
vísum, sögum og sögnum í Eyja-
firði og á Akureyri.
Bók 6015 HEB-verð kr. 250
BALDUR ÓSKARSSON:
STEIIMARÍKI
Erlingur Halldórsson segir svo um
kveðskap Baldurs:
„Einkenni á ljóðagerð Baldurs
Óskarssonar virðist mér vera
skörp sjón, djúp íhygli og þrótt-
mikill kliður hendinga. Hann er
kjarnyrtur, ljóðform hans yfirleitt
þröngt og málfarið agað... Undan-
tekningarlítið er eining efnis og
forms fullkomið en það má telja
aðal skáldskapar.”
Bók 6016 HEB-verð kr. 150
CD
BALDUR ÓSKARSSON:
DÖGGSKÁL í
HÖNDUM
Ljóðastíll Baldurs Óskarssonar og
tónn er sérkennilegur, en mynd-
málið er þó sú eigind ljóða hans
sem gerir þau að alveg persónu-
legu framlagi til ljóðbókmennta
þessara ára.
Bók 6017 HEB-verð kr. 150
RAGNARINGIAÐALSTEINSSON:
EN HITT VEIT ÉG
Ljóð úr bókinni:
Líður kvöldið, ljós er slökkt
lokast dagsins brautir.
Malbik svefnsins mjúkt og dökkt
mildar hugans þrautir.
Nýjar lendur nem ég einn
nóttin vitjar sinna.
Fer á kostum frjáls og hreinn
Fiat drauma minna.
Bók 6018 HEB-verð kr. 250
JÓHANNM. KRISTJÁNSSON:
SÁL MÍN HLUSTAR
Höfundur þessa ljóðakvers er
Norður-Þingeyingur, Jóhann M.
Kristjánsson frá Skoruvík á
Langanesi. Hann hóf sig upp úr
heilsuleysi með þrotlausri líkams-
rækt um árabil á unga aldri og
varð efldur að líkamsburðum. Síð-
ar lagði hann rækt við hin and-
legu svið. Sér til hugarhægðar
hefur hann lagt stund á ljóðlist,
samið allmikið af lögum, m.a. við
mörg ljóð sín og auk þess lagði
hann um árabil stund á málaralist
og seldi þá fjölda málverka.
Bók 6019 HEB-verð kr. 100
ELÍSABET PORGEIRSDÓTTIR:
AUGAÐ í FJALLINU
Höfundur yrkir um viðfangsefni
og vandamál ungs fólks, innileg
ljóð, en einnig „hversdagsleg.”
Haf og Qöll eru víða nálæg í ljóð-
um hennar, og gleði og sorg ungr-
ar konu. Þó má vera að mennta-
skólaljóð hennar í nýjum stíl veki
mesta athygli lesandans við fyrstu
sýn. Aðeins fá þessara ljóða hafa
áður birst á prenti.
Bók 6020 HEB-verð kr. 250
SÉRSTAKUR PÖNTUNARSEÐILf \
FYLGIR BÓKASKRÁNNI. / \
Merkið númer bókanna inn á /
pöntunarseðilinn og setjið í póst sem fyrstD"--^ /
Bókaskrá
59