Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1993, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.10.1993, Qupperneq 4
til* liláðUMpAHMh Agœtu lesendur Mikil er sú óöld sem ríkir alls staöar í heiminum uin þessar mundir. Jaf'nvel hér heima á okkar friðsæla landi berast æ tíðar fregnir af óhæfuverkum ymiss konar, frömdum í vímu áfengis eða annarri ólvfjan. Úti í hinum stóra heimi ríkir vægast sagt skálmöld í sumum ríkjum hans og þær hörmungar sem fólkið þarf að ganga í gegn- um hreinlega með ólíkindum. Allt frá lokum síðari heimsstyrj- aldarinnar hefur mannkynið hrvllt við þeim glæpaverkuin sem unnin voru í nafni nasismans. Samt er eins og mannkynið nái seint eða aldrei að læra af reynslu sögunnar. Mörg þau hryll- ingsverk sem verið er að fremja nú, jafnvel á heilum þjóðum, eru síst betri en hryllingsverk síðari heimsstyrjaldarinnar og stundum virðist manni þau jafnvel vera verri og svívirðilegri. Hvað er það sem veldur því að svona stutt er í villimennsku inanns- sálarinnar? Orsök margra stríða er valdagræðgi og stórmennskubrjál- æði örfárra manna. Þannig hefur það verið frá alda öðli og virðist aldrei breytast. Og jafnan er það svo að það er saklaust fólk, almenn- ingur viðkomandi þjóða, sein verst fer út úr slíkum hremmingum. Allt fyrir verk og oft á tíðum hégóma- girnd örfárra aðila sem finnst að sér vegið og aðstöðu sinni. Mann undr- ar slíkt óréttlæti og varnarleysi almenns saklauss fólks. Tækni sjónvarpsins hefur fært slíka atburði inn á stofugólf til okkar og þó það sem þar er sýnt sé ófagurt er það áreiðanlega varla neina brot af því sem raunverulega gerist. Þrátt fyrir full- komnun sína megnar sjónvarpið einungis að sýna yfirborð at- burðanna, bakgrunnur hörmunga einstaklingsins kemur sjaldn- ast fram. Horfnir ástvinir, örkumla ættingjar, brostnar vonir, örbirgð, limlestingar, flótti, sundrung, allt er þetta daglegt brauð heilla þjóða í dag. Það virðist því heldur fátt sem þjóðir utan þessara land geta gert almenningi þar til aðstoðar. Vestrænum þjóðum var legið á hálsi eftir síðari heimsstyrj- öldina fyrir að hafa horft framhjá ýmsum óhæfuverkum sem þá var verið að fremja, eða þá talið þau svo ótrúleg að fregnir af þeim gætu vart verið sannar. Núna vantar svo sem ekki upplýs- ingastreymið eða möguleika á sönnunum. Samt gera þeir sem vald og getu hafa lítið til þess að skerast beinlínis í leikinn þar sem svona er ástatt, svo ekki virðist sagan hafa kennt mönnum neitt í því efni, þó svo allir hefðu fordæmt slíkt á eftirstríðsárun- um og fordæmt þá sem þá réðu. Ýmislegt virðist hér koma til sem þessu veldur. L'ppi er veru- legur ótti við að átök sem af íhlutun kynnu að orsakast geti breiðst út og valdið allsherjarstríði. Þessu hóta og ala á þeir sem hagsmuna eiga að gæta við stríðsreksturinn og tekst svo vel upp að stórþjóðir hika. Einnig virðist liðurinn „innanríkismál“ vera býsna sterkur þegar að slíku kemur. Stríðsherrar viðkomandi þjóðar reka gjarnan upp ramakvein ef til álita kemur íhlutun annarra þjóða og staðhæfa að hér sé um innanríkismál að ræða, þeir einir hafi rétt til athafna og ráðsinennsku innan síns ríkis. Stundum getur lýðræðið og virðing fyrir því verið til trafala og í raun hindrun þess að það nái fram að ganga. í slíkum tilfellum má í raun segja að hagsmunir fárra aðila sé látnir ganga fyrir hagsmununt almennings. Lítum til Irans. Þar er við völd einræðisherra sem, frá sjón- arhóli leikmanns séð a.m.k., verður ekki séð að sé gera landi sínu neitt það til góða sem réttlæti valdastól hans. Það eru fyrst og fremst hagsmunir hans sem ganga fyrir öllu, fólkið sem byggir landið er aukaatriði. Þar var gerð tilraun til að koma honum frá, eða svo virtist a.tn.k. í fvrstu þegar Persaflóastríðið stóð sem hæst, og ekki varð annað séð en að þær þjóðir sem að stóðu hefðu til þess alla burði. Samt var það ekki gert, þrátt fyrir að það kostaði enn frekari hörmungar og dauða þúsunda, ef ekki milljóna nianna. Þar komu allt í einu til hagsmunir „bjargvætt- anna.“ Af tvennu illu töldu þeir betra að hafa harðstjórann áfram við völd þó svo hann væri upphafsmaðurinn að öllu saman. Skítt veri með einhvern saklausan almenning í landinu sem kvnni að verða hungri og hörmungum að bráð. Hann koin ekki málinu við. Það voru hagsmunir stjórnmálanna sem koinu fyrst og síðast. Hvaðan kem- ur ráðamönnum heimsins vald til að búa milljónum manna slík örlög með nánast einu „pennastriki,“ á meðan þeir sjálfir halda áfram að lifa í vellyst- ingum pragtuglega? Þeirri spurningu er vandsvarað. í allflestum tilfellum er þetta vald sem þeir taka sér sjálflr. Það verður þó að játa að slík mál eru flóknari en svo að hægt sé að setja orsakir og atleiðingar þeirra upp á svo einfaldan máta sem hér er gert. Það eru síður en svo allir sem geta farið með hlutverk sigurvegarans svo verðugt sé eða meðhöndlað vönd réttvísinnar á réttlátan hátt. Næst þessu hefur þó verið komist, skyldi maður ætla, með stofnun Sameinuðu þjóðanna, og hefur það sjálfsagt verið ein grundvallarhugmyndin á bak við stofnun þeirra. En þar fyigir þó böggull skainmritl eins og svo víða í heimsstjórnmálunum. Þar hafa einstakar þjóðir algjört neitunarvald og geta því stöðv- að mál ef þeim býður svo við að horfa og verður því ekki sagt að lýðræðið hafi þar algjöran forgang. En svona verður þetta nú sjálfsagt um óræða framtíð. Öllum finnst málstaður sinn og fyr- irkomulag það réttasta hverju sinni og erfitt verður hér eftir sein hingað til að finna flöt sem allir geta sætt sig við. Það virðast vera örlög mannkynsins á meðan það er ekki komið lengra á þróunar- og þroskabraut sinni. Á fyrstu öldum íslandsbyggðar tíðkaðist það að vígamenn og höfðingjar hyggju mann og annan. En aðfarir þeirra voru smá- ræði á við það sem tækni og aukin útsjónarsemi gefur af sér í höndum manna í dag. Það eru því margir fvrirvararnir sem hafa þarf áður en hægt er að segja sem svo að heiinur batnandi fari, a.m.k. eins og málum er háttað um þessar mundir. Með bestu kveðjum, Guðjótt Baldvinsson. 324 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.