Heima er bezt - 01.10.1993, Síða 8
Ekki geta allir grœtt
Allar breytingar hafa sína kosti og galla, sumir
hafa grætt og aðrir tapað. Systurnar frá Siglufirði
komu á staðinn á réttum tíma, þegar ævintýrið var
rétt í þann veginn að hefjast. Og þær voru tilbúnar
að Ieggja allt sitt undir, líkt og síldarkóngarnir á
Siglufirði forðum.
„Fljótlega eftir að við komum hingað til Al-
bufeira fengum við augastað á litlum bar, sem var
til sölu á viðráðanlegu verði,“ segir Bára og við
gefum henni orðið áfram. ..Þessi bar var þá ekki
sérlega vel staðsettur, það var mikil bílaumferð um
götuna, sem þýddi að færri fóru þar um gangandi í
enn búinn að hrista af sér
timburmennina eftir síldaræv-
intýrið en hér í Albufeira var
rétt að hefjast ævintýri, sem
enn er ekki séð fyrir endann á.
Það snerist allt um að veiða
sem mest af síld á Siglufirði,
en hér veiðum við ferðamenn,
sóldýrkendur.
Síldin hvarf, en ég held að
sóldýrkendur verði alltaf til,“
segir Bára.
Þegar þær systur komu til
Albufeira voru þar aðeins um
tíu þúsund íbúar, aðallega
Portúgalir, sem flestir hverjir
höfðu í sig og á með því að
stunda sjóinn. En það var
kominn vísir að þeim breyt-
ingum sem síðar hafa orðið.
Albufeira hafði lengi verið
vinsæll sumarleyfastaður með-
al Portúgala, en nú var landið
að opnast, ekki síst fyrir er-
lenda fjárfesta, sem voru til-
búnir að leggja fé sitt í ný hót-
el. Og þeir voru margir, ekki
hvað síst Bretar. Ný hótel
spruttu upp út um allt og flóð
ferðamanna gekk yfir litlu
fiskimannabæina í Algarve.
Þeir eru nú óþekkjanlegir.
Þessir litlu, fallegu og vina-
legu bæir með sínum þröngu
steinlögðu götum hafa að
mestu drukknað í nýtískuleg-
um hótelbyggingum. Og enn
er verið að byggja.
Kátir gestir á Classic-bar.
Bára og Jóhanna hafa haft marga íslendinga í
vinnu á barnum.
328 Heima er bezt