Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1993, Side 14

Heima er bezt - 01.10.1993, Side 14
Það er ekki Ameríku-hiigur í þér, enda vildi ég ekki hvetja þig til þess að koma, því ekki vildi ég ábyrgjast að þú yrðir ánægður. Ekki hvet ég full- orðinn bónda frá bærilegum efnum. Einhleypt fólk sem komist getur, ætti að koma, sömuleiðis ógiftar persónur, því Ameríka hefur betri vinnu að bjóða en Gamla landið og betra frelsi en Island vill bjóða. Það er heppilegra fyrir fólk sem vill hugsa fyrir ókominni tíð, því ólíkt er að flytja hingað en troðast í ólöglega húsmennsku í þurrabúð sem oft verður til að auka hinni vinsælu hreppsnefnd of mikið álag við þá sem brjóta landsins lög... Þú sagðir þegar við skildum að ég mætti hitta Markús, sem var í Litlabæ og fá hjá honum 40 kr. Nú hef ég séð hinn fyrrnenfnda Markús. Hann skuldar sveitarsjóði Vestmannaeyja 4-500 kr. Hann er að byggja stórt timburhús og skuldar hér líka. Hvað getur hann misst? Þá verð ég að minnast á máltækið: Það er ekki af skolla að hafa nema skinnið. ...Eg hef þénað síðan ég kom til Ameríku frítt 500 dollars... Svona er nú efnahagur minn hvort sem þú trúir mér eða ekki. Mér leiðist alltaf og líkar ekki vinnan. Nú eru eftirmenn mínir að gjöra eitthvað við Neptúnus og veit að þeir gjöra allt betur en ég. Hvað hyggur þú að lausamað- ur þyrfti að hafa að krónutali til að hafa það gott heima? Eg á við ef einhvern langaði heim eftir einhvern ff % 1. setning teins. Það liggur hvorki meira né minna við ef þetta er skakkt, þó lítið feil sé, en að eimlestin fer út af brautinni. Þú segðir víst skrýtið ef þú sæir mig þegar ég er að matreiða í mig þegar ég sit við eldavélina og hef 2-3 merkur af kaffi. Eg hætti á járnbrautinni þann 16. desember. Þann 17. tók ég kulda og lagðist í lungnabólgu. Það þótti mér ekki gott því ég átti vísa vinnu fyrir 2 dolla á dag. Þann 21. fór ég til Spanish Fork, versnaði við flutninginn og fékk tak. Ég lá í 20 daga, svo fór ég á fætur og það er fljótur bati. Tvær sortir af meðöl- um hef ég fengið og fljótt skipti til batnaðar eftir fáar inntökur. Nú er 10. janúar og ég hef farið út í þrjá daga, samt ekki með læknisleyfi, því strangt bann hef ég að koma ekki undir bert loft. Þú sagðir heima að ég drykki kaffi dauður, en 12 daga smakkaði ég það ekki. Ekki hef ég farið til kirkju ennþá síðan ég kom ... 300 manns liggja í Salt Lake City í lungna- bólgu. 334 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.