Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1993, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.10.1993, Qupperneq 25
Hér má sjá að sjórinn er vel heitur. Þarna mun hraun renna neðansjávar. I gegnum ferðir mínar í Surtsey hef ég kynnst mörgum góðum drengjum og eignast góða vini. Einn þeirra er sem fyrr segir Sigurður Þórarins- son, sem er hverjum manni ógleymanlegur sem honum kynntist. Við lentum í ýmsum ævintýrum á ferðum okkar til og frá Surtsey. Eitt sinn þegar við vorum þar ásamt fleirum og varðskip átti að sækja okkur skall á óveður svo ekki var hægt að lenda. Vindur stóð þannig að hlé var þeim megin sem hraunið er en þar er að- djúpt og sjórinn búinn að brjóta á hrauninu svo að þar höfðu myndast klettar, líklega 2 til 3 metrar á hæð. Fengum við fyrirmæli um að fara upp á klettana og sæta lagi og stökkva niður í gúmmíbát sem varð- skipið sendi eftir okkur. Þetta gekk ágætlega, við tókum undir okkur stökk og stukkum af klettinum niður í bátinn. Hættan var sú að við lentum í sjónum þar sem kvikan var svo mikil að báturinn hentist fram og aftur. En allt gekk vel og mér er minnisstætt að ég stökk með gítar Árna Johnsen í fanginu og komumst við klakklaust um borð í varðskipið bæði ég og gítarinn. Gróður nemur land Surtsey hefur breyst mikið frá því að ég kom þangað fyrst. Sjórinn hefur brotið svo mikið af eyjunni að hún er að mörgu leyti óþekkjanleg frá þvi sem var. Hún er orðin miklu minni með tuga metra háum standbergjum og fuglabjörgum. Gróður er farin að nema land í Surtsey, en hann átti erfitt uppdráttar lengi vel vegna sandfoks en nú er mestur hluti sandsins fok- inn burt og þá skapast möguleikar á því að varanlegur gróður myndist í eyjunni. Ekki kæmi mér á óvart að Surtsey ætti eftir að breytast enn frekar og að um aldamót verði hún að mestu græn að sumarlagi. Surtsey er mér afar kær enda stórkostlegt að fylgjast með myndun hennar frá upphafi. Eins og áður segir reyni ég að komast þangað eins oft og færi gefst og síðustu ferð mína þangað fór ég ásamt Karli T. Sæmundssyni húsameistara fyrir tæpri viku með dyggri aðstoð þyrlu ' Landhelgisgæslunnar. Pálsbœr sem nýlega var byggður íSurtsey. Heima er bezt 345

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.