Heima er bezt - 01.10.1993, Page 26
Sigurlaug Guðmundsdóttir:
Dreymt fyrlr slysl
Fyrir mörgum árum dreymdi mig draum sem mér
hefur orðið minnisstæður. Þetta var um hásumarið
eða í júní. Draumurinn var á þá leið að mér þótti
ókunnugur maður koma til mín og segja við mig:
„Nú varð hroðalegt slys í Fagradal í gær.“
Það fór eftir. Það gerðist í Búrfellinu. Nokkrir
menn frá Fagradal og Böðvarsdal voru að vinna
við að lagfæra veginn yfir Búrið. Þar á meðal var
Andrés á Fagradal, Pétur frá Böðvarsdal og fleiri.
Ennþá er farið um Búrfell því það er styttra en að
fara yfir heiðina. Með Pétri var sonur hans ungur.
Fékk hann að fara með þeim fyrir þrábeiðni hans,
sökum þess að veðrið var svo gott og þeir þetta
margir í hóp að engin hætta var talin á að hann
slyppi í hvarf frá þeim.
Eftir að þeir höfðu drukkið kaffið lögðu þeir sig
og drengurinn hjá þeim. En þar sem svo heitt var í
veðri sofnuðu þeir allir, og var drengurinn hjá
pabba sfnum. Að stuttri stundu liðinni vaknaði Pét-
ur og þá var drengurinn þeim horfinn. Þeir brugðu
allir skjótt við og hófu þegar að leita hans. Sáu þeir
brátt hvar hann var kominn alveg að bjargbrúninni
og á sömu stundu steyptist hann fram af henni.
Engum sem þar fer ofan verður lífs auðið og eng-
um er þar fært niður nema fuglinum fljúgandi.
Ekki reyndist nokkur leið að nálgast lík drengsins
því urð er þar mikil alls staðar og alveg út í sjó.
Þetta var alveg hryllilegt slys. Alitið var að hann
hefði séð fugl sem hann hefði ætlað að elta en ver-
ið á svo hraðri ferð að hann hefði ekki náð að
stöðva sig auk þess sem Iandinu hallar þar mjög í
átt til bjargbrúnarinnar.
En það merkilega við þetta hörmulega slys var
það að móður mína, sem ekkert vissi um þetta,
dreymdi líka alveg nákvæmlega það sama þessa
sömu nótt og var alveg viss um að þetta myndi
vera rétt.
Seinna um daginn fréttum við svo um það sem
gerst hafði.
Segi menn svo að ekkert sé að marka drauma.
Eigum til afgreiðslu teinamöppur til geymslu á
Heima er bezt.
Hver mappa tekur 12 tölublöð, einn árgang og kostar
kr. 750.- að viðbættum sendingarkostnaði
Sendum í póstkröfu ef óskað er.
|SkjaJdborg(
ÁRMÚLA23, 108 REYKJAVIK
HEIMA ER BEZT - ÞJÓÐLEGT HEIMILISRIT
er bezt