Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1993, Page 27

Heima er bezt - 01.10.1993, Page 27
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast 13. þáttur Við hefjum þáttinn að þessu sinni á tveimur limr- um sem Gissur O. Erlingsson sendi okkur urn at- burði sem urðu í þjóðmálunum nýlega, en hann segir: Dísu og Nonna íflokknum viðflíkum, föllum á knéfyrir Ijúflingum slíkum. Hún laus er við linku og lumar á skinku en hann tiplar rogginn á kalkúnakríkum. Kratar eru krötum ekki verstir, við kjötkatlana sitja þeir núflestir, aðrir hara híða hetri ogfrjórri tíða, er allir kratar verða að krásum sestir. Sigfús Þorsteinsson frá Rauðavík veltir fyrir sér ævistriti vinnumanns í eftirfarandi erindum: Vinnumaður Hann fœddist tiI fátœklingskjara ogfékk að reyna það, að hans vœru hakinn og skóflan en hvorki penni né hlað. Hann þjónaði alltaf öðrum, annaðist hesta og kýr, og vinnumannsins vinir voru húshóndans dýr. Hann stritaði myrkranna milli við mold eða reiðingstorf og meðan hann mátti sig hræra hann mundaði Ijá og orf. Mokaði hann mykju og taði, hann mokaði heyi og snjó, en aðrir máttu þó moka moldinni, þegar hann dó. Spor Eg horfi út um gluggann, sé hríðinafalla og hylja mín nýgengnu spor. Hver mun þau þekkja er klaka leysir og þau koma undan snjónum í vor? Ásmundur U. Guðmundsson frá Akranesi segir eftirfarandi vísu hafa orðið til ,,þegar andinn hóf sig á flug í norðanþræsingi:“ Þorri hvergi sló afslóð slæðing sínum Ijótum. Vítisköldum voðum hlóð vasklega að gjótum. „Sömuleiðis þessi, er flest snerist í andhverfu sína:“ Skortir hana víst afvana, verkin flana blaðið á. Heima er bezt 347

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.