Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.1993, Page 30

Heima er bezt - 01.10.1993, Page 30
hafði ekki minna að segja, að allt sem hann sagði var sett fram svo skýrt og greinilega að jafnvel barn hlaut að skilja hvað hann átti við. Það var eitt- hvað það við manninn sem skar sig úr öllum fjöld- anum. Manni fannst hann stórbrotinn. Það mátti og öllum vera ljóst að hér mælti sá sem var sannur fé- lagshyggjumaður. Ég kynntist Steinþóri þó nokkuð síðar. Þau kynni breyttu furðulítið þeirri heildar- mynd sem ég fékk af honum við fyrstu kynni. Þetta voru sem sagt fyrstu kynni mín af félagsmál- um kennarastéttarinnar. Síðar átti ég eftir að kynnast þeim nánar og um tíma að taka nokkurn þátt í þeim sjálfur. Það hafði verið venja að kennarar á Vestfjörðum héldu fund á Isafirði í páskavikunni. Þeir komu með Djúpbátnum sem þá fór alla leið til Patreks- fjarðar. Var dvalið á Isafirði fimm til sex daga. Var furða hvað þessir fundir voru vel sóttir. Þetta gátu verið allerfið ferðalög, þó ferðin væri ekki lengri en þetta, frá Patreksfirði til Isafjarðar eða norður á Strandir. Fyrsta veturinn sem ég var fyrir vestan fór ég auðvitað á þennan fund, enda stutt hjá okkur að fara sem bjuggum í Bolungarvík. Fundirnir voru haldnir í barnaskólanum. Mér varð mjög starsýnt á þennan hóp sem þarna mætti og fannst strax að þarna væri margt sérkennilegra og eftirtektarverðra manna. Ég veitti því strax athygli hvað margir höfðu tamið sér settlegt og virðulegt fas, einkum hinir eldri skólastjórarnir. Björn H. Jónsson, skólastjóri á Isafirði, setti fundinn. Hann var ákaflega settlegur og virðulegur í allri fram- komu. Gat hann þess er hann setti fundinn að honum fyndist rétt að kjósa einhverja af yngri mönnunum til að gegna fundarstjórastarfi og stakk upp á mér sem fundarstjóra. Mér meira en brá. Þessu starfi hafði ég aldrei gegnt áður og vissi í raun og veru ekki neitt sem laut að fundarstjórn, í hvaða röð skyldi bera upp tillögur o.fl. Svona fávís var ég og fákunnandi í félagsmálum. Þetta er nú kannski ótrúlegt en vinnumennska í fámennri og strjálbýlli sveit bauð ekki upp á mikla þjálfun í félagsmálum. En hér þýddi ekki að mögla. Starfann varð ég að taka að mér og láta sem minnst bera á vankunnáttu minni og minnimáttarkennd. Einhvern veginn tókst þetta stórslysalaust. Enn eru mér í fersku minni flestir þeir sem mættir voru á þessum kennarafundi á Isafirði það herrans ár 1934. Fjölmargir þeirra eru nú horfnir yfir móðuna miklu. Það sem mér fannst mest áberandi í fari þeirra margra, einkum hinna eldri og þá sérstaklega skóla- stjóranna, var virðulegt fas og að hafa tamið sér fág- aða framkomu. Það þótti heldur ekki svo lítilfjörleg staða í þá daga að vera skólastjóri. Þá var það einnig annað sem var áberandi, það var hvað þeir voru flestir vel máli farnir. Ekki eingöngu að þeir voru vel mælskir, hitt var ekki síður eftirtektarvert hvað allt var skýrt og greinilegt sem þeir létu frá sér fara. Flest bar þess merki að þeir hefðu stundað mælsku- list árum saman. Þetta er gjörólíkt því sem maður heyrir nú á þing- um samtakanna. Mér finnst fáir kunna að taka til máls eða þeir leggja sáralítið upp úr þeirri þjálfun. Þarna var Sveinn Gunnlaugsson skólastjóri frá Flateyri, þrautþjálfaður mælskumaður, orðfimur í besta lagi og átti auðvelt með að krydda mál sitt skáldlegum tilvitnunum, enda skáldmæltur í besta lagi. Þarna var einnig nafni hans, Sveinn Halldórs- son skólastjóri frá Bolungarvík, einnig ágætlega vel máli farinn og skáldmæltur. Það sem einkenndi hann mest var hinn ótrúlegi kraftur og gneistandi lífsfjör. Húmoristi var hann svo af bar. Þarna sá ég líka í fyrsta sinn Friðbert Friðbertsson skólastjóra frá Suðureyri í Súgandafirði. Hann var tæplega meðalmaður á hæð, yfirlætislaus en bauð af sér góðan þokka. Það var ekki eins mikill gustur af honum og þeim nöfnunum sem ég nefndi hér að framan. Þó fannst mér næstum því að hann bæri af flestum sem þarna voru. Mér fannst Friðbert kunna svo vel að fá aðra til að veita því athygli sem hann sagði. Hann hækkaði og lækkaði róminn eftir því sem honum þótti við eiga og þagnaði skyndilega, þegar hann vildi leggja áherslu á það sem hann sagði. Jafnvel þögnin getur haft áhrif. Þá voru það tveir ungir menn sem vöktu sérstaka athygli rnína, þeir Helgi Hannesson kennari í ísa- firði, stórglæsilegur maður, vel máli farinn og vörpulegur svo af bar. Hinn var Þórleifur Bjarnason, þá kennari á ísaftrði, síðar námsstjóri og kunnur rit- höfundur. Mig undraði hið glæsilega og skáldlega orðaval hans. Ég hugsaði með sjálfum mér að gaman væri að vera orðinn svona vel máli farinn. Skyldi ég nokkurn tíma geta náð þessum skörungum? 350 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.