Heima er bezt - 01.11.1994, Blaðsíða 5
Dr. Karl Kortsson, fyrrverandi héraðs-
dýralæknir á Hellu, fluttist hingað til
lands frá Þýskalandi árið 1950 ásamt
fjölskyldu sinni, og hann starfaði sem
dýralæknir á Hellu í 35 ár við góðan
orðstír. Einnig var hann ræðismaður
Sambandslýðveldisins Þýskalands á Suð-
urlandi. Hann situr samt ekki með hendur
í skauti, þó að hann hafi látið af störfum
fyrir níu árum. Hann á sér fjölbreytt
áhugamál, og má m.a. nefna, að hann fer
á skíði á vetuma og stundar ávaxta- og
blómarækt í litlu gróðurhúsi, sem er
byggt við hús hans á Freyvangi 11. Þar
býr hann nú einn, en hann missti konu
sína, Carmen Maríu Róbertsdóttur-
Thony, s.l. vor. Þá hefur dr. Karl skrifað
endurminningar sínar og koma þær út nú
fyrir jólin í íslenskri þýðingu undir nafn-
inu Dýralæknir í stríði og friði.
Ásgeir Guðmundsson
rœðir við dr. Karl Helmut-
& Briickner Kortsson.
ftiv M' ^ fyrrverandi héraðs-
dýralœkni á Hellu
SUNNUDAGS*
BARN...”
IHH
HjHj
Heima er best 361