Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1994, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.11.1994, Blaðsíða 36
VHH sjéMMMSkll syÉwjfIf j3i\h stfíiséruin Cæsor Mar: Siglt um nistur Áriö 1917 var komin mikil harka í kafbátahernaö Þjóöverja. Þá var engu hlíft og má segja aö allt sem flaut hafi verið skotið niður. Um þetta leyti var höfundur þessara endurminninga staddur í Englandi. Þar var allt í öngþveiti, sjómannaheimili full af atvinnulausum sjómönnum, en uggur svo mikill í mönnum að fáir vildu fara á sjóinn. En Cæsar Mar fór á sjóinn, og eins og gefur að skilja fóru viðburðaríkir tímar í hönd. í þessum minningum segir hann frá mörgu, sem sjómönnum kemur kunnuglega fyrir sjónir en aðrir undrast. Hann segir skrumlaust og skemmtilega frá atburðum, sem nú er farið að fyrnast yfir. JóhannJ.E. Kúld: ifllllst ýfinn sðsr Bók þessi er lokabindi Kúlds ævintýra. Hún spannar yfir tímabilið frá byrjun síðari heimsstyrjaldar fram á síðustu ár. Þar er sagt frá kynnum höfundar við fjölmarga nafnkennda menn, innlenda og útlenda. Svo sem á fyrri árum voru störf Jóhanns æði fjölbreytt. Umfangsmikil skipaverslun á vegum KRON, þrjú ár í björgunarliði breska sjóhersins við ísland, birgðavarsla og birgðastjórn á Keflavíkurflugvelli, og matsmaður var Jóhann í 12 ár. Fræðslustörf um fiskvinnslu og fiskmat á vegum Fiskimálasjóðs, ótölulegur fjöldi blaðagreina um fiskimál og fjölmargt fleira mætti nefna sem ber á góma í þessari bók. Hún er hafsjór af fróðleik um flest það er snertir meðferð á fiski og raunar allt er að sjávarútvegi lýtur. i ,000.- Sérstakur pöntunar- seðill fylgir blaöinu |Skjaddborg ARMULA23 ©67 24 00 HEIMA ER BEST • SKJALDBORG HF. ÁRMÚLA 23 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-88 24 00

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.