Heima er bezt - 01.11.1994, Blaðsíða 36
VHH sjéMMMSkll
syÉwjfIf j3i\h stfíiséruin
Cæsor Mar:
Siglt um nistur
Áriö 1917 var komin mikil harka í kafbátahernaö
Þjóöverja. Þá var engu hlíft og má segja aö allt sem
flaut hafi verið skotið niður.
Um þetta leyti var höfundur þessara endurminninga
staddur í Englandi. Þar var allt í öngþveiti,
sjómannaheimili full af atvinnulausum sjómönnum, en
uggur svo mikill í mönnum að fáir vildu fara á sjóinn.
En Cæsar Mar fór á sjóinn, og eins og gefur að skilja
fóru viðburðaríkir tímar í hönd. í þessum minningum
segir hann frá mörgu, sem sjómönnum kemur
kunnuglega fyrir sjónir en aðrir undrast. Hann segir
skrumlaust og skemmtilega frá atburðum, sem nú er
farið að fyrnast yfir.
JóhannJ.E. Kúld:
ifllllst ýfinn sðsr
Bók þessi er lokabindi Kúlds ævintýra. Hún spannar yfir
tímabilið frá byrjun síðari heimsstyrjaldar fram á síðustu
ár.
Þar er sagt frá kynnum höfundar við fjölmarga
nafnkennda menn, innlenda og útlenda.
Svo sem á fyrri árum voru störf Jóhanns æði fjölbreytt.
Umfangsmikil skipaverslun á vegum KRON, þrjú ár í
björgunarliði breska sjóhersins við ísland, birgðavarsla
og birgðastjórn á Keflavíkurflugvelli, og matsmaður var
Jóhann í 12 ár. Fræðslustörf um fiskvinnslu og fiskmat á
vegum Fiskimálasjóðs, ótölulegur fjöldi blaðagreina um
fiskimál og fjölmargt fleira mætti nefna sem ber á góma
í þessari bók. Hún er hafsjór af fróðleik um flest það er
snertir meðferð á fiski og raunar allt er að sjávarútvegi
lýtur.
i ,000.-
Sérstakur pöntunar-
seðill fylgir blaöinu
|Skjaddborg
ARMULA23 ©67 24 00
HEIMA ER BEST • SKJALDBORG HF. ÁRMÚLA 23 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-88 24 00