Heima er bezt - 01.11.1994, Síða 14
að íslendingar skyldu
geta skipulagt leiðtoga-
fund Reagans og Gor-
batsjovs 1986 á aðeins
hálfum mánuði. Þar
voru fremstu „kipp-
menn” landsins að
verki!
Þjóðin er deilugjöm
og erfitt að stjóma
henni, en þegar vegið
er að lífsbjörg hennar
stendur hún saman eins
og einn maður. Islend-
ingar eru íhaldssamir í
eðli sínu. Oft halda
menn í það sem fyrir
er, þó að það sé löngu
orðið úrelt. Það tekur
tíma að fá fólk til að
fallast á nýjar hug-
myndir. Og hafi Islend-
ingur sannfærst um
ágæti einhverrar hug-
I önnum dagsins. myndar, ræðst hann
ósjaldan í framkvæmdir
af meira kappi en forsjá. Mig undrar ekki, þó að
margir bændur sem hættu kúabúskap til að stunda
loðdýrarækt og fiskeldi hafi beðið fjárhagslegt
tjón. Þeir unnu að góðu málefni, en reiknuðu dæm-
ið ekki rétt.
Útlendingar eru ósjaldan spurðir um álit sitt á ís-
lensku þjóðlífi. Efast Islendingar um sjálfsímynd
sína? Þeir þurfa ekki að hafa neina minnimáttar-
kennd, því að þeir vinna mörg afrek. Ottinn við að
aðrar þjóðir troði þá í svaðið er líka ástæðulaus.
Þeir geta haft í fullu tré við hvem sem er þegar þeir
vilja. Sem dæmi má nefna útfærslu fiskveiðiland-
helginnar í 200 mílur og þorskastríðið. Heilbrigð
þjóðemishyggja er af hinu góða, en útúrboruháttur
og einangrunarstefna er engum holl. í mikilvægum
samningum verða Islendingar að leggja áherslu á
stöðu eyjarinnar gagnvart stórveldum Evrópu.
Ég gerí ráð fyrír, að margs sé að minnast frá
starfi þínu sem dýralœknir hér á landi Í35 ár.
Að sjálfsögðu á ég margar minningar frá þessum
árum, en ekki gefst tími til að rekja það allt í þessu
stutta viðtali, enda geri ég ítarlega grein fyrir dýra-
læknisstörfum mínum í endurminningum mínum.
Ég ætla samt að nefna þrjú dæmi frá fyrstu mánuð-
um dvalar minnar hér á landi, þegar mikið reið á
að ég gæti sýnt fram á, hvers ég væri megnugur.
370 Heima er best