Heima er bezt - 01.11.1994, Síða 16
Gunnar Bjamason:
Af
Ásgeiri Bjarnasyni
í Knarrarnesi
hinum mikla „eyjabónda“ við Faxaflóa
Annar hluti
s
Eg minnist nokkurra
róðra frá síðari árum
hans í Knarramesi, er
ég fékk að taka þátt í.
Þá höfðu fiskiróðrar
fyrir Mýrum legið
niðri um áratugi, sök-
um þess að fiski-
göngur lögðust þar
frá fljótlega eftir að
togarafiskirí kom í
algleyming.
ú hafði þess orðið vart eitt vor-
ið, að fiskihlaup kom á hinar
gömlu fiskislóðir undan Mýr-
unum. Reri nú faðir minn nokkra
róðra með okkur sonum sínum og
fleiri unglingum. Fiskuðum við vel
nokkra daga, en svo kom að því að
fiskur fór að tregðast þar sem hann
hafði verið. Faðir okkar sagði jafnan
fyrir hvar og hvemig línan skyldi
lögð og veittum við því litla athygli í
fyrstu. En nú skyldi leita á nýjar
slóðir, og þeirri fiskileit gleymi ég
ekki. Fyrst miðaði hann nákvæmlega
hvar byrjað skyldi að leggja línuna.
Sat hann í skutnum og gaf hana út en
sagði okkur, er rerum bátnum, jafn-
framt hvert stefna skyldi og fylgdist
vel með kennileitum á landi. Var nú
farið í krókum, eins og verið væri að
feta sig áfram eftir hlykkjóttu einstigi
innan um vegleysur á landi og gekk
svo uns lóðin var öll komin í sjó. En
reynslan varð sú er hún var dregin
inn í bátinn, að þama hafði fiskurinn
falið sig, því að nú var hann nærri á
hverjum öngli. Fékk ég nú sönnur
fyrir því er hinn gamli háseti föður
míns tjáði mér um það, hversu ná-
kunnugur hann hafði verið öllum
leynum fisksins á þessum slóðum.
Þessarar þekkingar hafði hann aflað
með eigin athugun og það sem meira
var, geymt hana í minni sínu, svo að
hún var honum tiltæk aftur, þó að
hann hefði ekki þurft á henni að
halda í a.m.k. tvo áratugi.
Vinnubrögðum álíka og þessum
beitti hann á flestum öðrum starfs-
sviðum. Snemma á búskaparámm
sínum tók hann að stunda kartöflu-
rækt og jók hana með árunum. Átti
hann lengi allmikla og frjósama kart-
öflugarða. Hann lét sér mjög annt um
þessa ræktun og stundaði hana ekki
ólíkt tilraunastöð, enda aflaði hann
sér allra upplýsinga um kartöflurækt-
ina, sem fáanlegar voru. Hann aflaði
sér margvíslegra afbrigða af kartöfl-
um og bar þau saman við önnur, en
372 Heima er best