Heima er bezt - 01.06.1995, Page 21
fyrstu árin í Grundarfirði og þaðan
stundaði hann sjósókn. Þau fluttust
síðan að Setbergi og bjuggu þar í
nokkur ár. Leiðin lá svo aftur í
Grundarfjörð.
Arið 1971 hófu þau uppbyggingu
allra húsa á jörðinni Vatnabúðum,
og fluttu þau þangað endanlega árið
1979 og hafa búið þar síða. Stunda
þau eingöngu kúabúskap.
Þau eiga fjóra syni, þá Þráinn Jök-
ul, sem búsettur er í Færeyjum, Sæ-
vald Fjalar, búsettan í Grundarfirði,
Ægir Berg á Húsavík og Gunnar Jó-
hann heima á Vatnabúðum.
Lfm störf sín segir Ragnhildur:
„Eg er nú bara húsmóðir, eins og
sagt er og helstu áhugamál mín eru
lestur góðra bóka, ég horfi gjarnan á
sjónvarpið þegar það býður upp á
eitthvað sem vekur áhuga minn. A
meðan að heimsmeistaramótið í
handknattleik stóð yfir horfði ég á
marga leiki. Mér finnst handboltinn
skemmtilegur en hins vegar leiðist
mér fótboltinn, hann er miklu gróf-
ari.
Eg dunda mér svo-
lítið við að búa til
keramikstyttur. Ég fæ
sendar grindur í þær
sem ég svo móta í leir
eftir eigin höfði. Síð-
an sendi ég þetta á
Elliheimilið í Grund-
arfirði, þar sem ég fæ
leirinn brenndan. Þar
er til ágætur brennslu-
ofn.
Mér finnst gaman
að þessari iðju og
auðvitað gef égg þetta
allt frá mér.
Eitthvað fæst ég við útsaum, hann
er svo skemmtilegur og svo tekur
maður auðvitað alltaf eitthvað í
Vatnabúðir.
Barnabörn Ragnhildar og Elísar:
1. Ragnhildur Rún Ragnarsdóttir.
2. Hjalti Vignir og Sœrós Osk
Sævarsbörn.
Þórdísarstaðir, Suðurbær, Setberg og
Vindás. Ut með Grundarfirði að
vestan blasir svo sjálf Kvíabryggjan
við, en þann stað munu flestir lands-
menn einhvern tíma hafa heyrt
nefndan.
Fremst í Grundar-
firðinum miðjum er
svo Melrakkaeyjan.
Hér er ákaflega fal-
legt og víðsýnt Það
sést vel yfir Breiða-
fjörðinn allt upp á
Barðaströnd, yfir á
Fellsströnd og inn til
Stykkishólms. Þar
sést t.d. nýja, fallega
kirkjan vel. Svo sér
maður auðvitað
margar eyjarnar sem
Breiðafjörðurinn er
hvað þekktastur fyrir.
Hér við Vatnabúðir
eru tvö falleg smá-
vötn og það er einmitt af þeim sem
bærinn dregur nafn sitt.“
prjóna.
Vatnabúðir eru yst á nesi því sem
skagar út í Breiðafjörðinn á milli
Grundarfjarðar að vestan og Kolgraf-
arfjarðar að austan. Framarlega á
nesinu rís Eyrarfjallið hátt og tignar-
legt upp í 352ja metra hæð.
Sveitin hér dregur nafn sitt af
3. Elísa Berglind og Snorri Berg
Ægisbörn.
þessu fjalli og heitir Eyrarsveit.
Fyrir austan Vatnabúðir eru bæirnir
Skallabúðir, Naust og Nýjabúð. Að
vestanverðu og í átt að Grundarfjarð-
arkauptúni eru bæirnir Akurtraðir,
Hér lauk Ragnhildur máli sínu og
mér finnst að ég, sem ritari þessa
pistils, borinn og barnfæddur Breið-
firðingur, geti ekki látið hjá líða að
taka undir orð hennar að við fjörðinn
sé víða fallegt og víðsýni mikið.
Heima er bezt 201