Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 5

Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 5
Ingvar Björnsson: Bílar, brú viðgerðir Rœtt við Harald Þórarinsson í Kvistasi Sumarið 1993 átti ég leið um Öxarfjörð og Kelduhverfi og lenti þá í einstœðum hremmingum, sem ég mun lengi muna. Bíll minn bilaði langtfrá mannabústöðum upp með Jökulsá á Fjöllum eins og frá greinir í frásögn minni þar um í janúarhefti HEB. Þótt ótrúlegt sé þá tel ég þær raunir, sem ég lenti þarna í, hafa orðið mér til mikillar gœfu. Hún liggur í því að vegna óhapps míns þá kynntist ég einstöku gœðafólki en það er fjölskyldan í Kvistási, þau Haraldur, Björg og Indriði, svo og bræðurnir Guðmundur og Gunnlaugur Theódórssynir að Austaralandi í Öxarfirði. Þeir síðar nefndu komu mér að Aust- aralandi ásamt bíl mínum, veittu mér ríflegar veitingar meöan ég beið komu Haraldar er sótti mig og bíl minn, sem hann dró á verkstæði sitt að Kvistási. Frá þessari stundu hefur verið góð vinátta milli mín ogþessa fólks. Þar sem ég vissi að Haraldur htmaði á ýmsum fróðleik, sem gjarnan mætti á þrykk út ganga, bað ég hann að segja mér ágrip sögu sinnar. Eftir nokkrar vangaveltur varð hann við þeirri bón minni og fer frásögn hans hér á eftir: r Eg heiti Haraldur Þórarinsson, fæddur 27. maí 1928 að Ólafs- gerði í Kelduhverfi í Norður- Þingeyjarsýslu. Foreldrar mínir voru hjónin Þórarinn Haraldsson frá Austurgörðum, fæddur 29. janúar 1902, dáinni 30. júní 1981 og Kristjana Stefánsdóttir frá Ólafsgerði, fædd 25. janúar 1896, dáin 1. desember 1938. Báðir þessir bæir eru í Kelduhverfi. Sitt fyrsta búskaparár bjuggu foreldr- ar mínir á Húsavík vegna vanheilsu föður míns, en frá 1929-38, bjuggu þau að Austurgörðum. Móðir mín andaðist 1938 og erum við systkinin þá orðin Ijögur talsins. Var ég þeirra elstur. Árið 1939 fluttum við að nýbýlinu Laufási er byggt var á hálfri jörð Austurgarða. Að Laufási fluttist einnig Kristjana Haraldsdóttir föðursystir mín, er tók við bústjórn hjá föður mínum. Var hún síðan hjá okkur meðan heilsa og aldur entust. Ekki get ég hælt mér af sérlega góðu minni frá æskudögum mínum. Þó standa tveir þættir þar upp úr. Annars vegar man ég glöggt eftir tveimur kind- um, sem faðir minn átti. Önnur var hvít með kolsvarta augabrún yfir öðru auga er setti áberandi og sérstæðan svip á hana, hin var grár sauður og því ein- faldlega kallaður Gráni. Hann var for- ystusauður og fannst mér hann nánast hafa mannsvit. Oft kom það fýrir að kind eða kindur frá okkur, röltu á næstu bæi og dveldu þar næturlangt. Að morgni var ég svo sendur eftir þess- um ám. Alltaf hafði ég Grána með mér Heima er bezt 45

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.