Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Side 6

Heima er bezt - 01.02.1998, Side 6
í slíkar ferðir. Var þá smá garnspotti bundinn í horn hans og hélt ég þar í. í taumi var Gráni léttari en jafnvel nokk- ur hundur hefði getað verið. Búendur þeirra bæja er ég var sendur til, létu, er þeir sáu til okkar Grána, ær föður míns út og er ég sá það sleppti ég Grána. Aldrei brást það að hann fór þegar að kanna sitt lið rétt eins og roskinn og reyndur herforingi. Þó að ég skildi ekki mál dorra (sauðsins) þá skyldu kind- urnar það, því þær röðuðu sér upp og röltu á eftir Grána er tekið hafði stefnuna heim á leið. Þarna fór aldrei á milli mála hver var foringinn og hver var óbreyttur liðs- maður. Síðara atriðið sem mér er í fersku minni er að haustið 1936 er ég var átta ára, man ég eftir mesta rjúpnageri hér í sveitinni, sem ég hef nokkurn tímann séð. Tíðarfar var gott þetta haust. Hér til suðurs bera hæðir og klettar við loft heiman að séð og slík var rjúpnamergðin á morgnana að líkast var sem allt væri með lífsmarki og á sífelldri hreyfingu er rjúpnaskarinn fór á kreik. Þessir fallegu og góðlegu fuglar gerðu sig heimakomna og sérlega virt- ist fara vel á með þeim og hænsnfugl- um hlaðvarpans og ljárhúsanna, enda segja gamlar sagnir að hér sé um nána frændsemi að ræða. Þar sem jjúpurnar voru svona spakar og gæfar, reyndi ég mikið til að hand- sama þær til að gæla við þær eins og ég gerði oft við hænsnin. Slíkt bar þó eng- an árangur því þær virtust einfaldlega segja hingað og ekki lengra „góurinn.“ Þegar ég var um fermingu fylgdist ég oft með rjúpnahreiðrum sem voru hér í tugatali í um það bil hundrað metra íjarlægð norður af Laufási, en vegna ijöldans hafði ég enga tölu á þessum hreiðrum. Nú er svo komið að ijúpnahreiður hef ég ekki séð í áratugi. Ekki veit ég með neinni vissu hvað þessu veldur, en trúlega er hér um marga samverkandi þætti að ræða er valda því að stofninn hér fer minnkandi umfram hefð- bundnar stærðarsveiflur milli ára. Uppvaxtarár Ég held að uppvaxtarár mín hafi verið svipuð og hjá öðrum börnum hér um slóðir á 3. og 4. áratugunum. Snemma fór ég að vinna og var látinn hjálpa til við þau verk sem ég réði við og aldur og geta leyfðu. Sérstaklega er mér vatnsaksturinn minnisstæður. A uppvaxtarárum mínum varð að spara allt vatn hér, svo sem kostur var á og mun svo hafa verið á mörgum býlum hér um slóðir. í Austurgörðum var vatn sótt í læk sem rann í um 4-500 metra ijarlægð frá bænum. Þegar fullorðnir menn sóttu vatn fóru þeir með hest, vagn eða sleða, eftir atvikum, að læknum. A farartækinu voru tunna eða tunnur, sem þeir jusu fullar með fötum og óku svo heim. Þegar ég síðan átti að fara að sækja vatnið kom það í ljós að ég var of stuttur og kraftlítill til þess að ausa upp í tunnu og því smíðaði faðir minn lágan kassa er hann setti á milli kjálkanna á vagngrindinni. Síðan gróf hann niður vatns- bakkann svo að ég gæti ekið út í lækinn og látið vagninn standa þar á meðan ég fyllti kassann. Þegar byrjað var að steypa húsið í Laufási, þá kom það í minn hlut að sækja allt vatn sem til þess þurfti og gekk það vel. Vatnsvandamál okkar leystust svo að hluta til er bjáru- jám kom hér á húsþök og hægt var að safna vatni af þök- um í ílát. Endanleg lausn fékkst svo er lind úr fjalli ofan Auðbjargarstaða var virkjuð. Lindin annaði vatnsþörf bæj- anna Þórseyri (nú úr byggð), Syðri-Bakka og Keldunes- bæja, og gerir það enn. Þetta var dýr en góð fjárfesting. Rafstöðvar Fyrir um tveimur árum fór ég að liuga að því hvenær vindrafstöðvar komu hér um slóðir, en þær voru for- verar alls rafmagns hér. Ég komst strax að því að þetta mundi ég ekki og sama var að segja um aðra þá er ég leitaði til. Um síðir fann Guðrún Árnadóttir á Meiðavöllum í Keldu- hverfi, í gamalli dagbók sinni, að fyrsta stöðin hafi verið sett upp á Keldunesi 10. nóvember 1937 og var það 6 volta stöð. Næst kom 12 volta stöð að Framnesi 1939, en upp úr 1940 fór þessum stöðvum ört íjölg- andi. Sex volta stöðin var aðeins notuð til hleðslu á útvarpsrafhlöðum og bílarafgeymum en þær 12 volta nýttust bæði til hleðslunnar og ljósa. Mig minnir að vindrafstöð kæmi að Laufási rétt fyrir jólin 1941. Þessa stöð settu upp bræðumir Sigurður og Baldur Skarphéðinssynir á Hróarsstöðum í Öxarfirði. Ein 32ja volta stöð kom hér í Kelduhverfið og var það að Krossdal, sem er næsti bær við Kvistás. Því miður brást þessi stöð væntingum manna. Allar þær vindrafstöðvar er hér komu voru bilanagjam- ar og erfiðar í rekstri en þeim var þó haldið gangfæmm fram um 1960, en þá komu hér Hatz díselrafstöðvar á flesta bæi. Ekki man ég hver framleiðslugeta þeirra stöðva var. Ég tel mig muna það rétt að útvarp hafi komið hér á flesta bæi fljótlega eftir að útsendingar þess undratækis hófust. Þótt ég muni ekki ártöl þar um, þá man ég vel að Vindrafstöð. 46 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.