Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.02.1998, Qupperneq 9
greip mig svo mikill ótti, að er læknirinn spurði hver ætti þennan grip, kannaðist ég ekkert við hann. A stofunni vorum við þrír og þar sem hinir tveir neituðu eignaraðild sinni bárust öll bönd að mér. Þessu lauk svo með því að ég gekkst við króanum og er ég hafði það gert, segir Guðmundru Karl mér að spila fyrir sig einn tjörugan ræl, sem ég og gerði, því ekki gat ég neitað svo einfaldri bón. Ástæðan fyrir ótta mínum var sú að ég taldi það sjálf- gefið að á spítalaherbergi væri forboðið að vera með nokkra þá hluti er valdið gætu öðrum ónæði. Guðmundur Karl var hár maður og grannur, glettinn og snar í snúningum. Um leið og ég byrjaði að spila rælinn, þreif hann ungan aðstoðarmann sinn taki og þeyttust þeir vítt og breitt um stofugólfið. í stofúnni voru þrjú vel breið rúm og yfir þau stökk læknirinn léttilega fram og tilbaka, en hinn ungi aðstoðarmaður horfði undrandi á þessa léttu fimleika yfirmanns síns. Að loknum rælnum taldi ég mig kominn úr miklum háska, þar sem ég fékk engar ávítur og ekkert var amast við nikkunni. En Adam var ekki lengi í Paradís. Er Guð- mundur Karl var nýgenginn burt snarast hjúkrunarkona inn, gengur að mér og kveðst vera send af fröken Jó- hönnu yfirhjúkrunarkonu og eigi hún að biðja mig að koma niður á spítala og spila þrjú lög fyrir sjúklinga og starfsfólk. Þessari beiðni neitaði ég harðlega, m.a. á þeim forsendum að ég mætti ekki stíga í hinn sjúka fót minn án leyfis læknis míns og með þau skilaboð fór hjúkkan. Stuttu síðar birtist svo sjálf fröken Jóhanna í eigin per- sónu. Hún kvað lækni minn leyfa mér að fara niður með sinni aðstoð og bað mig fyrir alla muni að koma og spila áminnst þrjú lög fyrir fólkið. Ég taldi mig ekki geta neitað svona vel beðinni bón og saman örkuðum við fröken Jóhanna niður á gang. Þessu lauk svo með því að ég spilaði þrjú lög á ganginum fyrir þá, sem þangað komust, en að því loknu spilaði ég þrjú lög á öllum þeim herbergjum þar sem einhver sjúklingur lá. Þessa spilasögu var ég búinn að ákveða að segja ekki, enda fannst mér hún jaðra við sjálfs- hól, en að vel athuguðu máli ákvað ég að láta hana koma hér, vegna þess hve fallega hún endaði. Er ég hafði lokið spili mínu leit ég kringum mig og þá sá ég sjón sem tók mig nokkra stund að átta mig á. Það voru allir grafalvarlegir og á hvörmum sumra sá ég blika tár. Hvað var að ske? Hafði ég spilað svona illa? hugsaði ég, en svo áttaði ég mig. Þetta fólk hafði aldrei fengið svona heimsókn. Það hafði margt aldrei séð svona stóra og fallega harmóniku og hjá ýmsum voru liðin mörg ár síðan þeir höfðu heyrt þau ljúfu lög sem ég hafði spilað hér. Fólkið var einfaldlega svo hrært að það gat ekkert sagt né haldið aftur af tárum. Því er það svo að ég tel þetta hafa verið eitthvert besta verk sem ég hef unnið um mína daga. Eftir að allt var afstaðið varðandi spiliríð, komst ég að því að þegar Guðmundur Karl fór frá mér, hafi hann farið beint til fröken Jóhönnu og sagt henni hve vel hann hafði skemmt sér og hvatt hana til að fá mig niður og spila þar fyrir fólkið. Á þeim árum, sem ég spilaði á dansleikjum, voru þeir vel sóttir. Víndrykkju var mjög stillt i hóf, en auðvitað fengu menn sér í glas, eins og sagt var, en ég tel að al- mennt hafi menn kunnað vel með vín að fara. Það munu hafa liðið 10 ár frá því að ég hóf spila- mennsku mína og þar til að ég komst að því að sú atvinna hentaði mér ekki og því hætti ég öllu opinberu spiliríi. Brýr á Jökulsá á Fjöllum Árið 1907 var fyrsta brúin byggð á Jökulsá á Fjöllum. Var hún staðsett neðan (norðan) gljúfranna, austan Ás- byrgis og var hún eina brúin á Jöklu gömlu þar til ný brú kom milli Grímsstaða á Fjöllum og Mývatnssveitar. Smíði þeirrar brúar hófst árið 1946 og það hittist svo vel á fyrir mig að á sama tíma var ég tilbúinn að fara út á vinnumarkaðinn og því réðst ég þar til almennra starfa. Smíði þessarar brúar gekk vel og lauk henni 1947 en ' :: : vígð var brúin ekki formlega fyrr en árið 1948. Þessi mikla brú stytti verulega allar vegalengdir milli Suður-, Vestur- og Aust- urlandsins.. Fyrst í stað vann ég þau störf er til féllu Heima er bezt 49

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.