Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Page 10

Heima er bezt - 01.02.1998, Page 10
hækkaður í tign svo um munaði. Ég var settur á strengina ásamt þremur öðrum mönnum. Okkur var ætlað að skrapa burt geymslubikið sem á þeim var og síðan átti að tjarga þá eða mála. Við þetta verk var ég í um það bil mánaðartíma en fór þá að mála sjálfa brúna með þeim fokki er þar vann. Við brúarsmíðarnar við ána munu um 130 manns hafa unnið er flest var, en það var ekki langur tími sem svo margir unnu þar samtímis. Það var oft kátt í kotinu, eins og maður gæti sagt. Hreinlætisaðstaða fyrir fólkið var ekki beysin, vatn til hreinlætisaðstöðu, matargerðar og þess háttar, þurfti auðvitað að sækja að og þó ég muni hverju sinni. Ég var búinn að vera við ána nokkra daga þegar svo bar við að ferjumaðurinn sem fór með bátinn, veiktist og varð að hætta störfum og auðvitað þurfti þetta að bera upp á dag þar sem snögglega þurfti að koma manni yfir ána. Því var það að í hádegisverðarhléinu kemur verkstjórinn i matsal okkar og spyr hvort hér sé einhver sem kunni róður á straumvatni. Þar sem enginn gaf sig fram segist ég hafa reynt slíkt lítilsháttar og án fleiri orða var ég drifinn í að fara yfir ána með manninn er þangað þurfti. Nafni þess heiðursmanns hef ég alveg gleymt. Pramminn, sem var fyrst á ánni, var ------------------ ekki merkilegur og gæta þurfiti fyllstu varúðar í allri umgengni við hann svo vel færi. Sérstaklega vegna þess hve lé- legur botn hans var. Þessi fyrsta ferð mín gekk að óskum og upp frá þessu varð þetta mitt starf allt til þess að ganga mátti yfir hina nýju brú eftir rúmt ár, eða á næsta sumri. Þarna skeði margt skemmtilegt, margir voru afar hræddir við að fara þarna yfir Jöklu gömlu, meðal annars vegna hins mikla straumhraða. Oftast þurfti að ausa prammann eftir hverja ferð, svo mikil var ágjöfin, sérstaklega í miklum árvexti og hvassviðri. Gaman hafði ég af því að sjá hraust- lega menn setja hönd fyrir augu uns land var tekið hinu megin og auðvitað tel ég að þessi gerning- ur þeirra hafi stafað af hræðslu og eða ótta. Sjálfum fannst mér þetta ástæðulaust. Tvívegis lenti ég í ánni en komst klakklaust upp úr henni í bæði skiptin. Við þennan lélega pramma var svo gert fljótlega og ég tók ástfóstri við hann vegna þess hve léttur og lipur hann var. Hvað um prammann varð efitir hans daga á ánni vissi ég aldrei þótt ég spyrðist fyrir um hann. Tveimur öðrum prömmum var bætt við er þörf fyrir þá óx en þeir hentuðu illa, voru háir og þungir og pössuðu því illa við þetta verkefni en þó varð að notast við þá, því allmikið móta- og byggingarefni barst að og varð yfir að fara. Stundum barst svo mikill flutningur að, að alla prammana varð að nota samtímis. Prammana hrakti allmikið undan straumi í hverri ferð er yfir var farin. Því varð að draga þá upp með landi er að var komið í hvert sinn. Við dráttinn voru tveir menn, ann- ar dró prammann en hinn stjakaði honum frá bakkanum. Þetta var svona í fyrstu en síðan komst ég upp á það lag að binda dráttarbandið á réttan stað í bátinn svo að ég gat nýtt strauminn til þess að halda honum frá landi og þar með þurfti ég ekki lengur neinn hjálparmann og með þessu lagi var erfiðið mikið minna. Eftir að ferjumannsstarfinu lauk sumarið 1947 var ég Pramminn, sem segirfirá í greininni. Steypumöl sóttyfiir smá kvísl í ánni, sem oft var reyndar þurr. Tjaldbúðir í baksýn. Kraninn. Hann þótti stór 1946 og hefur sennilega verið það. 50 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.